Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 42

Náttúrufræðingurinn - 1948, Side 42
136 NÁTTÚRUFRÆBINGURINN fram yfir Þrætustígshraun og tók að breiðast út uppi á hálendis- brúninni fyrir ofan Stóraskógsbotna. Jafnframt því sem hraunhafið stækkaði þarna uppi, tók brátt að renna kvísl frá því norður af brún- inni fyrir innan Rauðölduhnúk, langt frá Stóraskógsbotnum. En uppi á brúninni teygðist hraunhafið æ lengra suður í átt að Botna- fjalli. Furðulegt var að sjá þetta vestan úr sveitum. þegar skuggsýnt, var: Nótt eftir nótt glóði liraunið þarna að því er virtist tæpt frammi á brúninni á löngum kafla, en eins og það kinokaði sér við að velta fram af. Loks kom þó að því. Sunnudaginn 6. júlí kom hópur manna, sem var í fræðslu- og skemmtiferð á vegum Náttúrufræðifélagsins, að hrauntotu, sem var að skríða fram af brúninni fast sunnan við Ráuðölduhnúk. Tot- an var lág og deigkennd, en iítt þakin storkinni urð. Hraði hennar var aðeins 6 m á 20 mín., enda var hún ekki enn komin niður í mesta brattann. Næstu sólarhringa rann liver hrauntaumurinn við Jilið öðrum ofan þessa ltrekku. 10. júlí voru jreir orðnir átta. Síðan runnu þeir saman í f'ærri og breiðari hraunfossa. Á þessu gekk fram yfir miðjan ágústmánuð, og hafði þá mestur hluti gamla hraun- fossins inilli Rauðölduhnúks og Botnafjalls þakizt nýju hrauni. Aðeins syðst í honum var enn allstór skiki „óbrunninn", ]tað var í kringum Stóraskógsbotna. Aðfaranótt 22. ágúst sá ég vestan úr Bjólfelli, að stór og glóandi hraunálma var tekin að teygjast í fyrri stefnu hraunsins, þ. e. í vestur frá eldstöðvunum, og mátti búast við, að það drægi úr rennslinu í átt til Stóraskógsbotna. Samt hafði ég mjög litla von um, að þeim yrði þyrmt, því að nú sá ég enn nýjar glæður tæpt á brúninni upp af þeim, og rétt norðan við tjaldstaðinn minn garnla var bjartur eldtaumur siginn niður í miðja brekku. Kl. 11 árdegis kom ég að þessari nýju hraunálmu. Hún var þá komin neðst í brekkuna og gekk enn hratt fram, 20 m á 25 mín. En ekkert hraun var enn komið í lækjargilið. Ég gekk upp eftir því og skoðaði það, lækinn og lindirnar, við búinn, að nú sæi ég þetta allt síðasta sinni. Gilið fylgir alls staðar hraunjaðrinum, en er að mestu leyii skorið í móberg. Hraun er aðeins elst í norðurbarminum, þar sent gilið hefur holazt lítið eitt inn undir jaðar hraunfossins, svo að yzta rönd- in brotnaði niður. Þar gat að líta fróðlegan þverskurð af hraunfossi, víða 3—4 m þykkan. Hann skiptist í þrjú belti, svipuð að breidd:

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.