Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 43

Náttúrufræðingurinn - 1948, Page 43
NÁTTÚRUFRÆBINGURINN 137 hraunurð efst og neðst, en samfelldari steypa í miðju. Undir hraun- inu liggur jarðvegslag, um metra þykkt,. með nokkrum röndum af ösku og vikri. Þar undir tekur við móberg, sams konar og í öllum suðurvegg gilsins. Efstu og langvatnsmestu uppsprettur lækjarins komu upp þétt saman úr vissu lagi móbergsins í suðurbarmi gilsins. Hinar efstu og stærstu voru rétt neðan við brúnina, og mátti við illan leik klifra niður að þeim, en fáeinum metrum vestar var ein lítil lind alveg uppi á brúninni. Hennar verður oftar getið og skal framvegis kölluð litla lindin. Frá öllum þessum lindum fossaði vatnið ofan sléttan móiiergshalla, hálan og ókleifan. Sá foss var um 5 m hár. Fyrir ofan fossinn var gilið vatnslaust, en frá honum rann lækurinn ofan eftir því niður á jafnsléttu og síðan út á vikursanda, þar sem hann seig sntám saman í jörð og hvarf. Rennslið í gilinu mældist mér um 30 I á sek., og eru þá með taldar tvær smásytrur, er koma t'ir öðrum og minni iindum en þeim, sem þegar er getið, og sameinuðust aðal- læknum um 100 m fyrir neðan fossinn. Hiti vatnsins í elstu lindunum, að með talinni litlu lindinni, var 4.6°, þ. e. hinn sami og í þau fjögur skipti, sem ég liafði mælt hann áður. (í júlí 1930 4\/>°, 8. apríl ’47 4.5°, 10. júlí 4.6° og 15. júlí 4.6°.) — Það er eftirtektarvert um þessar uppsprettur, að þær eru meðal hinna allra hlýjustu, sem til eru í Hekluhraunum og rnó- bergseyjum, sem upp úr þeim standa, og liggja þó liæst þeirra allra. — Þenna dag hlýnaði lækjarvatnið óvenju ört, eftir því sem lengra dró frá upptökum, enda var hlýtt í veðri, nokkurt sólskin og stormtir með sandroki, sem gruggaði lækinn. 100 m frá upptökum var liiti vatnsins orðinn 7,7° og öðrum 100 m neðar 8,3°. Mér dvaldist nokkuð lengi þarna í gilinu, ef til vill ekki eingöngu í rannsóknar skyni, ég var líka að kveðja. Að vísu bjóst ég varla við hrauninu niður í tjaldhvamminn minn né gilið þenna dag, en allar horfur voru á, að það mundi koma þar næstu daga. Vonin um grið var orðin ákaflega lítil. Og þegar ég kom tipp á brekkubrúnina lyrir ofan Stóraskógs- botna, varð sú von að engu. Undanfarna daga liafði hraunið hrúgazt þarna upp í háa brún. Sú brún stóð að vísu enn víðast kyrr. En hún hafði brostið, og út undan henni skreið nú hraunið með óvenju miklum hraða. Það hafði breiðzt langleiðina suður að rótum Botna- I jalls og var þai' nú sem óðast að fylla hin efstu drög þurra gilsins upp af Stóraskógsbotnum. Fyrirsjáanlegt var, að það nnmdi falla fram

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.