Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 16

Náttúrufræðingurinn - 1954, Qupperneq 16
10 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN nefndrar skriðu. Framjaðar þessi er við nánari athugun mjög líkur norðvesturjaðri Vatnsdalshóla, með einstökum smáhólum framan við framjaðar hinnar samfelldu skriðu. 1. mynd er tekin af þessum Köldu- kinnarhólum og sér til suðurs inn Langadalinn, en 2. mynd er tekin frá Svínvetningabraut, vestan hólanna, og horft til austurs. Sést í fremstu hólaröðina framarlega á myndinni, en í bakgrunni sést skriðu- örið í Langadalsfjalli greinilega, og eru raunar tvö skriðuörin, því að sunnan við aðalskriðuna hefur minni skriða hlaupið fram og kom- izt nokkuð niður í hlíðina norðaustur af Geitaskarði. En í hvarfi við Köldukinnarhóla á myndinni er botn Langadals og Blanda. Þykir mér sennilegast, að skriðan hafi hlaupið fram yfir jökul, sem lá á dalbotninum. Án þess að hafa athugað það nánar, hefur mér virzt, frá þjóðveginum að sjá, að malarhjallarnir meðfram Blöndu séu yngri en skriðan, og eru hólar þessir því vart yngri en um 12000 ára. — Þessi skriða er ekki sú eina, sem ekið er yfir, þegar farinn er þjóð- vegurinn suður Langadahnn. Þar rekur hver bergskriðan aðra, allt suður að Hólahorni, upp frá Svartárbrúnni, og má segja, að meiri hlutinn af austurlilíð dalsins á þessari leið sé skriðum orpinn, og ná sumar þeirra niður i dalbotn. Upp af Holtastöðum hefur fjallið hlaup- ið fram, og einnig hefur hlaupið fram allþykk skriða skammt norð- ur af Fagranesi, en nær ekki nema niður í miðjar hlíðar. Or fjallinu upp af Móbergi, þar sem heita Stofur, hefur hlaupið fram mikil bergskriða og þykk, og standa eftir þverbrattir hamrar efst í fjallinu. Norðurjaðar skriðunnar er mjög hár og minnir á suður- jaðar Stífluhóla. Skriðan liggur niður að þjóðveginum um 0.4 km fyr- ir norðan Móberg. Má siðan heita nær samfelld skriða allt suður undir Gunnsteinsstaði, eða á 2.5 km breiðu svæði (3.mynd). Or Gunnsteinsstaðafjalli hefur hlaupið skriða, nær 1 km breið, niður undir þjóðveg, um það bil miðsvæðis milli Gunnsteinsstaða og Auð- ólfsstaða. Loks hefur breið skriða hlaupið fram úr Æsustaðafjalli, sunnan Æsustaða, og nær suður að áðurnefndu Hólahorni. Heita víða Katlar efst í skriðunum í Langadalnum neðan við þá þverbröttu hamra, sem þær hafa eftir skilið. Stóru og litlu Katlar eru í Æsustaðafjalli upp af Æsustaðaskriðunum, og Katlar eru upp af Móbergi. Þegar haldið er frá Hólahorni áfram til Bólstaðarhlíðar blasir við á hægri hönd bergskriða, fremur lítil um sig, en regluleg, sunnan Svartár, í norðurhlíð Skeggstaðafjalls. Heitir skriðuörið Grænaskál eða Nónsskál. Er það ekki ólíkt því, að þarna hafi verið lítill skálar-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.