Náttúrufræðingurinn - 1954, Page 35
NtJUNGAR ÚR GRÓÐURRÍKI ISLANDS
27
16.
17.
i Heydalnum og náði í 3 ótviræð
eintök af henni. Siðan hefur enginn
jurtasafnari komið á þessar slóðir, og
tegundin heldur ekki fundizt á öðrum
stöðum á landinu. Á ferðalagi mínu
vestra nú i sumar gafst mér tækifæri
til þess að athuga nákvæmlega út-
breiðslu hennar og afla mér fleiri ein-
taka. Skógelftingin vex innan til í
Heydalnum í svokölluðum Loðna-
skógi og á svæði, sem er um 300
metra langt. Er mikið af henni þama;
vex hún í góðu skjóli inni í ógrisjuðu
kjarrinu og er mjög þroskaleg. Þó óx
hún hvergi í norðurjaðri kjarrskógar-
beltisins, klóelftingin réð þar alger-
lega lögum og lofum. Noiiðan megin
árinnar á móts við Loðnaskóg fann
ég nokkur eintök í skóglausum, deig-
lendum jarðvegi, en J)au voru lágvax-
in og eymdarleg útlits. Ég leitaði
skógelftingarinnar víða innan um
birkikjarr, bæði annars staðar i Hey-
dalnum og með fram Mjóafirði, en
árangurslaust.
Epilobium collinum L. forma lacti-
florum f. nova. Klappadúnurt. Vík í
Mýrdal SA. 4/7 1953. Krónan mjólk-
urlit eða nær því hvít, að öðru leyti
ekki frábrugðin aðaltegund.
Fumaria ojficinalis L. Reykurt. Sól-
vangur í Fossvogi SV. 11/8 1951.
Slæðingur alblómgaður. Planta þessi
telst til reykjurtaœttarinnar (Fuma-
riaceae), sem er náskyld draumsól-
eyjarættinni. Hún er smágerð mjög,
marggreind og flækjukennd og ber
3. mynd. Erigeron boreale (Vierh.)
Simm. var. pycnophyllum v. nova.
Nýtt afbrigði af jakobsfífli
(natural size).
fjólublá krónublöð, sem eru dökk-purpuralit i oddinn.
Hordeum jubatum L. Silkibygg eða ikomabygg. Hofgarður á Snæfellsnesi V.
17/8 1952. Þetta er slæðingur, er á uppmna sinn að rekja til Vesturheims.
Hefur hans orðið vart ó nokkrum stöðum hér hin síðari órin, aðallega um
suður- og suðvesturhluta landsins. Er ef til vill að taka sér hér bólfestu.
Isoetes lacustris L. Vatnalaukur. Við Flóamannaklett í Þjórsárdal S. 28/6 1951.
Gísli Gestsson safnaði. Áður fundinn á einum stað ó S.
Leontodon auctumnalis L. forma Taraxaci L. Skarifífill. Afbrigði þetta, sem er
með einni körfu og mjög dökkhærðri biðu, fann ég á fjölmörgum stöðum við
Isafjarðardjúp. Virtist mér það algengara þar en á öðmm stöðum, er ég hef
18.
19.
20.