Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 1954, Side 27

Náttúrufræðingurinn - 1954, Side 27
ISLENZKIR FUGLAR VIII 19 unum, en þeir yfirgefa hreiðrið skömmu eftir að þeir koma úr egginu. Kjóinn er algerður farfugl hér á landi, og eru engin dæmi þess, að kjóar hafi sézt hér að vetrarlagi. Á vorin kemur hann á tímabil- inu frá miðjum apríl til miðs maimánaðar, en algengast mun þó vera, að hann komi í kringum mánaðamótin apríl og maí. Hann kemur því að jafnaði heldur fyrr en krían- Á haustin fer hann tiltölulega snemma eða um svipað leyti og krían. Aðalbrottfarartíminn er síðari helmingur ágústmánaðar, en ekki er þó óliklegt, að nokkur hluti kjóanna fari fyrr eða fyrri hluta ágústmánaðar eða jafnvel síðast í júlí. Fyrstu vikuna í september sést oft enn nokkur slæðingur af kjóa, en úr því má heita, að hann liverfi með öllu, og eftir miðjan sept- ember verður kjóa ekki vart. Ekkert er vitað um vetrarheimkynni íslenzka kjóans, en gera má ráð fyrir, að þau séu í sunnanverðu Atlantshafi. Mjög fáir kjóar hafa verið merktir hér á landi, og aðeins einn hefur náðst aftur erlendis- Það var ungur fugl, er skotinn var í ágúst austur af Fogoeyju við Nýfundnaland, en hann hafði verið merktur hér sem ungi árið áður. Fæða kjóans er mjög margbreytileg, og sama er að segja um að- ferðir þær, er hann beitir við fæðuöflunina- Eins og kunnugt er, gerir hann mikið að því að ræna aðra fugla æti sínu með þvi að leggja þá í einelti, unz þeir sleppa æti, er þeir bera í nefinu, eða spúa upp nýgleyptri fæðu. Hér á landi eru það einkum kría, rita, lundi og fýll, sem verða fyrir harðinu á kjóanum, hvað þetta snertir. Mér er þó ekki kunnugt um, að kjóinn ásæki fýlinn annars staðar en í Mýrdal og undir Eyjafjöllum, en þar verpur fýllinn víðast alllangt frá sjó. Ég hef einnig séð kjóa ásækja fálka og svartbaka og reyna að hrekja þá frá bráð sinni. Auk þess tekur kjóinn egg og unga ýmissa fuglategunda og drepur smærri fugla svo sem spörfugla og smávað- fugla. Hann forsmáir heldur ekki hræ og annan úrgang (svo sem fiskslor), og hann er sólginn í köngulær, skordýr og skordýralirfur. f grasmaðksárum gerir hann t. d. talsvert gagn með því að eyða gras- maðki (lirfu grasfiðrildisins). Eitthvað nærist hann einnig á jurta- fæðu, meðal annars bæði krækiberjum og bláberjum. Það hefur lengi verið vitað, að fjöldahlutfall svartra og skjóttra kjóa er mjög breytilegt innan útbreiðslusvæðis kjóans á jörðinni. Það hefur komið í ljós, að syðst í heimkynnum kjóans eru svartir kjóar langalgengastir, en eftir því sem norðar dregur fjölgar skjóttu kjó- unum, og í sumum íshafslöndum eru langflestir kjóanna skjóttir- Enskur fuglafræðingur, H. N. Southern, hefur rannsakað þetta fyrir-

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.