Náttúrufræðingurinn - 1954, Side 17
SÉÐ FRÁ ÞJÖÐVEGI
II
3. mynd. Bergskriður milli Gunnsteinsstaða og Móbergs í Langadal séðar fré suðri.
Bærinn á myndinni er Gunnsteinsstaðir, skarðið upp til hægri Strjúgsskarð, en
Móbergshnúkur með Stofum til vinstri við það. — Rockslides in Langidalur, N of
the farm Gunnsteinsstadir. View to the N. — Ljósm. S. Þórarinsson.
jökull, sem hefði nagað sig inn í hlíðina og ekið saman jökulgörðum
fyrir framan sig. Er svo víða, að erfitt er að sjá, fyrr en eftir nána
athugun, hvort skálarjökull hefur verið að verki eða bergskriða hlaup-
ið fram. Svo er t. d. um Stórutjarnarskál sunnan Ljósavatns í Ljósa-
vatnsskarði. Lítur út sem þar hafi skálarjökull sorfið sig inn í Stóru-
tjarnarfjall og hlaðið upp jökulgörðum fyrir framan sig, en þó hygg
ég sönnu nær, að bergskriða mikil hafi hlaupið fram úr Stórutjarnar-
fjalli. Heitir þar Níplióll fremst í hólunum, en Níphólsvatn er á milli
hóla og hamrahlíðar.
Þegar kemur niður í öxnadalinn, sést skriða, Varmavatnshólar, á
vinstri hönd, þegar kemur skammt norður fyrir brúna yfir öxna-
dalsá, eða nokkru innar en gegnt Gloppu. önnur skriða er utar í
dalnum, gegnt Fagranesi. Eru báðar þessar skriður hájaðraðar og
skriðuörin mjög greinileg í fjallshlíðinni. Og svo koma þeir háu hól-