Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1954, Page 26

Náttúrufræðingurinn - 1954, Page 26
18 NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN Hvað varpkjörlendi snertir er kjóinn ekki við eina fjölina felldur. 1 sumum landshlutum verpur hann aðallega eða nær eingöngu í mýrum eða flóum, ýmist í víðáttumiklum, samfelldum mýrarflákum eða í litlum mýrarslökkum eða flóasundum. Á slíkum svæðum virð- ist kjóinn oft sækjast eftir að verpa í fenjum eða foræðum eða í grennd við slíka staði, enda þótt hreiðrið sjálft sé ávallt á sæmilega þurrum stað. 1 öðrum landshlutum, þar sem lítið er um mýrlendi, verpur kjóinn í þurrlendi, bæði mólendi, hraunum og sandi. Meðal annars er kjóinn líklega algengari varpfugl á söndunum sunnan- lands en nokkurs staðar annars hér á landi. Þar verpur hann sums staðar í dreifðum byggðum, en eigi að síður hefur hvert par glöggt afmarkaða hreiðurhelgi- Allmikil kjóavörp eru einnig á Héraðssandi og á söndum fyrir botni sumra flóa og fjarða á Norðurlandi. En það er langt frá því, að kjóinn verpi alls staðar i byggðum. Mjög víða, einkum þar sem kjóinn verpur í mýrlendi, verpa kjóapörin á stangli, eitt og eitt par alveg út af fyrir sig, og helgar hvert par sér þá all- stórt svæði, er það ver fyrir öðrum kjóum. f hraunum og á söndum verpur kjóinn varla nema þar, sem um einhvern gróður er að ræða. Hann sættir sig því ekki við hraun, nema þau séu nokkuð mosavaxin og gróin eða sandorpin, og á söndum verpur hann gjarna á mosa- teygingum, þar sem raki er i jörð, eða í melgrasflesjum eða melkoll- um á foksandssvæðum- Hér á landi er aðalvarptími kjóans í kringum mánaðamótin maí og júní- Hreiður með 2 eggjum hefur fundizt hér 23. maí, en fyrr er mér ekki kunnugt um, að kjóar hafi fundizt hér fullorpnir. Ann- ars verpur langmest af kjóanum í síðustu viku maí og fyrstu viku júnímánaðar. Hreiðurgerð kjóans er mjög óvönduð. Hreiðrið er að- eins grunn laut (þvermál 18—21 cm, dýpt 3—5cm), stundum alveg ófóðruð að innan, en oftar reytir kjóinn þó svolítið af sinu eða mosa í hreiðrið. Eggin eru 2, stundum aðeins 1, og fleiri en 2 egg hafa aldrei fundizt í kjóahreiðri hér á landi, svo að vitað sé. Eggin eru grágræn, mógræn eða móbrún (sjaldnar) með dauffjólubláum skurn- blettum og dökkmórauðum dílum eða flikrum, sem stundum renna saman í stærri skellur eða mynda hring í kringum gildari enda eggs- ins. Fyrir kemur, að eggin séu ljósblá, einlit eða aðeins með fáeinum brúnum dílum. Talið er, að ásetutiminn sé tæpar 4 vikur, og álitið er, að ungamir verði ekki fleygir fyrr en 3—5 vikum eftir að þeir koma úr egginu, en um þetta atriði er þó ekkert vitað með vissu. Bæði kynin taka þátt í útungun eggjanna og öflun fæðu handa ung-

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.