Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 38
32
NÁTTÚ RU FRÆÐINGURINN
og hreiðurefni sömuleiðis hrossanál, svo og dúnn. Kafendur urpu
einnig mest á sömu slóðum og buslendurnar. I suðurhólfinu fann
ég t. d. aldrei kafandahreiður. Alls fundust 102 kafandahreiður í
Skógum eða rúmlega helmingi færri en buslandahreiður. Þessi
mismunur stafar eflaust af því, að allar buslendur höfðu hafið varp,
þegar athuganir voru gerðar, en ekki nema lítill hluti kafanda, að
undanskildum árunum 1968 og 1969. Sé litið á heildarstofn verp
andi buslanda og kafanda (sjá töflu I), kemur í ljós, að fjöldinn
mun vera svipaður. Auk jiess sem taflan sýnir áætlaðan fjölda
varpanda (para) í Skógum, sýnir hún einnig eggjafjölda, sem byggð-
ur er á hreiðrum með mikið stropuðum (2) eða unguðum (3) eggjum.
Hreiðrum með óunguðum (0) og lítið stropuðum (1) eggjum er
sleppt af ásettu ráði, þar sem þau myndu gefa lægri meðaleggjafjölda.
Helztu gögn, sem stuðzt hefur verið við við gerð töflunnar, eru
hreiðurkort yfir fundin hreiður, en auk þess hef ég við áætlanir um
árlegan fjölda varppara stuðzt lítið eitt við talningar framkvæmdar
á svæðinu.
Að lokum vil ég færa Finni Guðmundssyni sérstakar þakkir fyrir
margþætta aðstoð við samningu þessarar greinar. Einnig vil ég
þakka Agnari Ingólfssyni og Arnþóri Garðarssyni fyrir veitta aðstoð
í sambandi við gerð töflu I og samningu enska útdráttarins.
II. TEGUNDASKRÁ
Himbrimi (Gavia immer). Himbriminn var ekki varpfugl í
Skógum. Hef ég aðeins séð hann öðru hverju á flugi yfir svæðinu á
leið til sjávar, einn og einn í senn.
Lómur (Gavia. stellata). Lómur var algengur á svæðinu, auk þess
sem hann varp á svæðinu og í grennd við Jiað. Einnig varð ég hans
oft var á flugi til sjávar, eins eða fleiri í senn. Stundum sáust lómar
á Miklavatni. Fyrsta lómshreiðrið fannst 5. júní 1966. Tvö lítið
stropuð egg (1) voru í hreiðrinu, sem byggt var upp í grunnri flæði-
tjörn. Hreiðurefnin voru rennblaut, en Jrar var aðallega um mosa
og gulstör að ræða. Árið 1967 var einnig lómshreiður í Skógum, en
það eyðilagðist í flóði. Þetta hreiður var í litlum hólma og var að
mestu gert úr gulstör. í því voru tvö mikið stropuð egg (2). Úr
fjarlægð sást yfirleitt ekki nema álegufuglinn við þessi hreiður, en
er verið var við Jrau kom hinn makinn oftast fljúgandi neðan frá