Náttúrufræðingurinn - 1970, Blaðsíða 45
NÁTTÚRUFRÆÐINGURINN 39
þótt hrafnsandaregg séu að jafnaði auðþekkt frá öðrum andareggj-
um.
Toppönd (Mergus serrator). hessi tegund var ein sjaldgæfasta
varpöndin í Skógum. Árið 1967 sáust t. d. aðeins 3—5 fuglar nokkr-
um sinnum, að líkindum alltaf sömu fuglarnir. Árið 1968 sáust
engar toppendur í Skógum, en aftur á móti 4 blikar á bakka Borgar-
víkur gegnt Skógum, en þeir gætu þó engu að síður hafa átt kollur
á Skógasvæðinu. Árið 1969 sáust svo 3 blikar og 1 kolla á flugi og
voru það einu toppendurnar, sem sáust Jrað ár. Þrjú lireiður fundust.
Það fyrsta 7. júní 1965 með 9 eggjum (0), en tvö fundust 24. júní
1969 með 8 og 9 eggjum (útungst. 1 og 0). Á svæðinu verpa kannski
5 pör árlega.
Æðarfugl (Somateria mollissima). í Skógum var hvergi þétt
æðarvarp, en hreiður fundust á víð og dreif. Hins vegar verpur
æðarfugl í þúsundatali í hólmum í Héraðsvötnum. Öll hreiðurgerð
æðarfugisins er frábrugðin hreiðurgerð annarra anda. Eru hreiðrin
t. d. alltaf opin, þ. e. ekki hulin gróðri. Þá virtist æðarfugiinn ekki
eiga sér neitt sérstakt kjörlendi, en varp jafnt í fúamýrum sem
í þurrum móum. Egg eru færri en hjá öðrum öndum, en algengasti
eggjafjöldinn var 4—5 egg í hreiðri eða 3—5 eggjum færra en hjá
hinum öndunum, sem urpu í Skógum. Líklega verpur æðarfugiinn
fyrstur allra anda, en flestöll egg, sem athuguð voru með vatns-
prófun, höfðu útungunarstigið 3, auk Jress sem varla sáust ungar
hjá öðrum öndum en æðarfugii. Æðarfuglinn var langalgengastur
á Héraðsvötnum, en Jrað liafa að mestu verið fuglar úr varphólm-
unum. Æðarfugl var eina andartegundin, sem virtist halda sig á
Héraðsvötnum.
Fálki (Falco rusticolus). Fálk sá ég aðeins einu sinni í Skógum.
Var einn fugl á sveimi yfir svæðinu, en spóar, kríur og hettumáfar
angxuðu hann mjög, svo að lokum flaug hann á brott og hvarf úr
augsýn. Þetta var 25. júní 1969.
Fjallrjúpa (Lagopus mutus). Tvö fyrstu athuganaárin sást
ekki rjúpa í Skógum, en fyrsti fuglinn, karri, hélt sig á sanra svæð-
inu alla athuganadagana árið 1966. Ekki fannst neitt hreiður þótt
Jrað hafi sennilega verið Jrar. Árið 1967 brá svo við, að rjúpum hafði
ijölgað mjög frá fyrra ári, en þetta ár sáust alls 5—7 karrar og
1—3 kvenfuglar. Fuglarnir voru mikið á flakki um svæðið, en
Jró voru 5 karrar nokkurn veginn svæðisbundnir, einn í suður-