Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 17
21. mynd. A) Oxychilus alliarius (Miller), laukbobbi. B) Oxychilus draparnaudi
(Beck), breiðbobbi. C) Zonitoides nitidus (Miill.), vallbobbi. D) Zonitoides arboreus
(Say), húsabobbi.
Samnefni: Retinella hammonis, Hya-
linia radiatula, Retinella radiatula,
Hyalinia hammonis, Perpolita ham-
monis.
Algeng á láglendi um allt land. Teikn-
ingin er a£ íslensku eintaki.
Aegopinella pura (Alder), grundar-
bobbi. 20 mynd (D), 9. xnynd.
Samnefni: Retinella pura, Hyalinia
pura.
Fyrst fundin á íslandi 1942 (Hvera-
gerði, Armitage og McMillan 1963).
1966 fundust 6 eintök í Deildarárgili
í Mýrdal (Páll Einarsson). Lindroth
og félagar (1973) fundu eitt eintak
við Drangshlíð undir Eyjafjöllum
1967. Fundir Aegopinella pura í Mýr-
dal og undir Eyjafjöllum benda ein-
dregið til þess, að tegundin sé ekki
seinni tíma slæðingur. Teikningin er
af eintaki úr Mýrdal.
Oxychilus alliarius (Miller), lauk-
bobbi. 21. mynd (A).
Samnefni: Hyalinia alliaria, Polita
alliaria.
Finnst á láglendi um allt land.
Oxychilus draparnaudi (Beck), breið-
bobbi. 21. mynd (B).
Samnefni: Hyalinia lucida, Hyalinia
draparnaldi.
Slæðingur. Fannst 1965 við Tjörnina
í Reykjavík í nokkrum mæli (höf.).
Var hann þar enn 2 árum síðar. Mér
vitanlega lxefur hann ekki fundist á
79