Náttúrufræðingurinn - 1977, Side 33
27, 29, 31, 33, 35. Fannst á st. 17, 19, 28.
Algeng tegund í flestum leirum í Breiða-
firði. Líklega útbreidd í fjörum hér við
land (Arnþór Garðarsson 1973).
Polydora ciliata (Jolinston). Var á sex
stöðvum. Algeng á st. 4, fannst á st. 2, 24,
26, 28, 30, á steinum í leirum. Hefur áður
fundist við suðvestur- og suðausturland.
Nyrsti fundarstaður hennar til þessa er
Gíslalaekur í Vatnsfirði.
Polydora quadrilobata Jacobi. Fannst á
11 stöðvum alls. Algeng á st. 9, 23, 24, 29,
35. Fannst á st. 4, 16, 22, 26, 32, 33. Mynd-
aði þéttta skán á leirum, jwr sem hún var
algengust. Hefur áður fundist við vestan-
vert landið frá suðvesturlandi til norð-
vesturlands (Arnj)ór Garðarsson 1973).
Cirratulus cirratus (O. Fr. Miiller). Var á
sex stöðvum. Algengur á st. 13, 34, fannst
á st. 1, 2, 3, 28. Yfirleitt í brimasömum
og skjólsælum, sendnum klettafjörum.
Ciiaetozone setosa Malmgren. Fannst á st.
32 í sandfjöru. Algeng umhverfis allt
land, en óvlða á fjörum.
lirada villosa Rathke. Algeng á st. 23 í
leiru.
Brada inhabilis Rathke. Var á 10 stöðv-
um alls. Algeng á st. 15. Fannst á st. 7,
14, 16, 17, 19, 21, 22, 23, 29. Fannst helst
og var algengust í úteyjunt og á Reykja-
nesi, í allbrimasömum og skjólsælum leir-
og sandfjörum, Jsar sem ferskvatnsáhrif
eru lítil. Hefur fundist umhverfis land
allt nema á Austfjörðum.
Scalibregma inflatum Rathke. Fannst á
tveimur stöðvum, 32 og 35, í sendnum
leirum.
Travisia forbesi (Jolinston). Á fjórum
stöðvum, algeng á st. 16 og fannst einnig
á st. 13, 15, 35. Var helst í grófum sand-
fjörum og leirum í úteyjum.
Ammotrypane aulogaster Rathke. Fannst
á st. 35, í grófri leiru.
Arenicola marina (L.), sandmaðkur. Var
á öllum söfnunarstöðvum nema þremur.
Fannst ekki á st. 12, 17, 18, enda hreinar
klettafjörur. Fannst á st. 1, 5, 11, 14, 32.
Algeng í hvers konar leirum og sandfjör-
unr í Breiðafirði og fannst einnig í kletta-
fjörum í sand- og leirpollum.
Pectinaria spp. Fannst á st. 32, í grófri
sandfjöru.
Fabricia sabella (Ehrenberg). Var á 26
stöðvum alls. Fannst ekki á st. 5, 12, 14,
19, 21, 25, 32, 33, 35. Fannst á st. 18 og
var algeng á öðrum stöðvum. Myndar
skán á steinum í flest öllum fjörum, nema
þar sem ferskvatnsáhrifa gætir í miklum
mæli. Einnig vantaði tegundina í sumar
allbrimasamar klettaijörur, einkum í út-
eyjum. Áður fundin við suðvestur- og
norðurland.
Priapulida
Priapulus caudatus (Lamarck), maðka-
móðir. Var á 12 stöðvum, algeng á st. 23,
24 og lannst á st. 9, 10, 13, 15, 16, 17, 19,
20, 21, 30. Var helst í úteyjum og á
Reykjanesi. Algengust í skjólsælum leir-
um.
Tegundafjöldi og
tegundasamsetning
Alls voru 68 tegundir fjörudýra
greindar úr Breiðafirði. Fjöldi teg-
unda á hverri stöð var frá 7 upp í
32. Um 88% stöðvanna hafa tegunda-
fjölda á bilinu 14—26, en meðalfjöldi
tegunda á stöð er 20.
Fjórar stöðvar skera sig mest úr
hvað tegundafjölda snertir. Á stöð 25
í Gilsfjarðarbotni fundust aðeins 7
tegundir. Fjaran þar er fíngerð leira
og tvær ár renna yfir hana. Má ætla
að fábreytileiki í tegundasamsetningu
standi í beinu sambandi við þau
erfiðu lífsskilyrði sem rikja þar. Á
stöð 5 við Vatnsdalsárós fundust að-
eins 11 tegundir. Við árósinn má bú-
ast við talsverðri seltulækkun af völd-
um ferskvatnsblöndunar. Hér fundust
ekki margar tegundir sem eru algeng-
95