Náttúrufræðingurinn - 1977, Qupperneq 40
4. TAFLA
Þungi, lengd, mesta ummál og holdastuðull silunga úr Elliðavatni,
Gullbringusýslu (urriði)
Raðtala Silungur veiddur Þungi, g Lengd, cm Ummál, cm Holdastuðull
1 16. maí 1970 240 29,5 13,5 1,04
2 ti ii ii 460 36,5 16,5 0,95
3 1. maí 1977 850 45,0 23,0 0,93
Meðaltal . . . 517 37,0 17,7 0,97
syni mínum og Sverri Þorsteinssyni í
Klúku í Fljótsdal. í þeirri ferð veidd-
um við m. a. fiskana, sem þungi og
mál eru gefin á í 3. töflu.
Eins og fram kemur í 3. töflu hafa
silungarnir í Fossárvatni verið í ágæt-
um holdum, enda þótt þeir séu ekki
eins holdmiklir og eldissilungarnir.
Vera má, að silungur í Fossárvatni sé
smærri nú heldur en áður var, sökum
þess að of mikil fjölgun hafi orðið í
vatninu.
Að lokurn skal getið mælinga á
þremur urriðum úr Elliðavatni. Tvo
þá fyrstu veiddi Gunnar, sonur minn,
en þann þriðja Kjartan, sonur minn.
Urriðarnir í 4. töflu eru mun hor-
aðri heldur en bleikjurnar í töflurn
1, 2 og 3, en þó ekki langt frá því
holdastigi, sem talið er viðunandi.
Allir urriðarnir voru etnir nýir, soðn-
ir og voru ágætlega bragðgóðir. Á j>að
er rétt að benda, að urriðarnir eru
veiddir í maí, en bleikjurnar mun
seinna, og má gera ráð fyrir, að átu-
skilyrði á veiðitímanum hafi verið
hagstæðari fyrir bleikjurnar heldur en
urriðana.
102