Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 50
DKS þræðirnir skiptast í starfsein-
ingar sem kallast gen. Hvert gen er
að meðaltali um 1000 kirnispör á
lengd. í einum þræði geta verið þús-
undir gena.
Hinar tvöföldu DKS sameindir eru
eftirmyndaðar af stakri kostgæfni í
sérhverri frumukynslóð. Þættirnir
tveir skiljast að, og hvor þeirra um
sig er notaður sem mót þegar nýr tvö-
faldur þráður er smíðaður. Þannig
eru myndaðar tvær nýjar tvöfaldar
sameindir. Hvor uni sig er gerð úr
einum gömlum þætti og öðrum nýj-
um og livor um sig er nákvæmlega
eins og sú eina sem fyrir var (1. rnynd).
Við frumuskiptingu hafna þessar
nýju tvöföldu sameindir hvor í sinni
frumu. Nýju frumurnar tvær og for-
eldrisfruma þeirra hafa því allar sarns
konar DKS, kirnispar fyrir kirnispar.
Með þessum hætti erfist gerð kjarn-
sýrunnar frumu fram af frumu og líf-
veru fram af lífveru. Ef lífveran æxl-
ast með kynæxlun er kjarnsýran bor-
in í kynfrumum á milli kynslóða.
Hvítur (prótín) eru gerðar úr svo-
nefndum peptíðkeðjum, einni, tveirn-
ur eða fáeinum, sem settar eru saman
úr amínósýrum. Algengt er að 200—
400 amínósýrur séu í slíkri keðju.
Dæmigert gen ræður amínósýruröð
einnar slíkrar keðju, en eiginleikar
peptíðkeðjunnar ráðast einmitt af
amínósýruröð hennar. Það er kirnis-
röð gensins sem ákvarðar amínósýru-
röðina. Hver þrjú kirnispör i 1)KS
þræði gens ráða stöðu einnar amínó-
sýru í peptíðkeðjunni sem af því er
mótuð. 1 frumunni ræðst amínósýru-
röðin þó ekki Ireint af sjálfum DKS
þræðinum heldur er tekið af honum
afrit, gert úr skyldu kjarnsýrunni RKS
(RNA). Þetta afrit er síðan notað sem
2. mynd. Túlkun á erfðaboðum. Annar þáttur tvöfaldrar DKS sameindar (sá efri á
myndinni) er umritaður ylir í RKS, svonefnda mRKS. Þessi sameind er síðan notuð
sem mót við röðun amínósýra í peptíðkeðju. Röðunin (þýðing kjarnsýruboðanna) íer
fram með aðstoð margbrotins efnakerfis í umfrymi frumunnar.
DKS
umritun
uu luj IGJ IGJ-QJJ LAJlUJlAJlc]LcJlGJlAJL0J IITl0 RKS
þýðing
'------------V-------------'
leucýl
valýl — týrosýl — arginýl — glýcýl
112
peptið-
keðja