Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 4
myndir sem ritgerðum fylgja. Gæði
myndanna minnka yfirleitt samfara
því að þær eru færðar úr lit yfir í svart-
hvítt og litir íslenskrar náttúru eru svo
fjölbreytilegir að ýmislegt nýtur sín
alls ekki til fulls án þess að litirnir séu
sýndir.
MÝVATNSBÓK
Akveðið hefur verið að gefa í tilefni
afmælisins út bók um náttúru Mý-
vatnssveitar. Mun hún líta dagsins ljós
nú á vormánuðum. Þetta verður veg-
legt rit með á annan tug greina um
ýmis náttúrufyrirbæri Mývatnssveitar.
Höfundar eru ýmsir þeir náttúrufræð-
ingar sem fengist hafa við rannsóknir
þar á umliðnum árum. Ritið mun
verða í kringum 300 blaðsíður með
fjölda mynda og vandað að allri gerð.
Mývatnssveit er með fjölbreytileg-
ustu stöðum á landinu hvað varðar
bæði lífríki og landið sjálft. Sveitin
hefur um langa hríð verið vinsælasti
ferðamannastaður á landinu, en ekki
hefur verið til nútímalegt yfirlitsrit um
náttúru svæðisins. Bók þessi ætti því
að verða kærkomin bæði ferðamönn-
um og áhugamönnum um náttúru
landsins.
MERKI FÉLAGSINS
Efnt var til samkeppni um merki
fyrir félagið. í dómnefnd um merkið
sátu Arnþór Garðarsson, prófessor,
Eggert Pétursson, myndlistamaður og
Kristín Þorkelsdóttir, auglýsingateikn-
ari. Hið nýja merki félagsins er teikn-
að af ungum teiknikennara, Kristínu
Arngrímsdóttur.
Merkið sýnir þríhyrndan Ðöt sem
getur táknað fjall en er jafnframt tákn
sköpunarinnar. Upp í þríhyrninginn
vaxa tvö kímblöð, tákn lífsins og
gróskunnar. Merkið mun verða notað
í ýmsu sambandi, eins og vani er um
svona merki.
FRÍMERKI
Samkomulag náðist við Pósstjórn-
ina um um útgáfu á tveim frímerkjum
í tilefni afmælisársins og komu þau út
hinn 9. nóvember 1989. Merkin bera
myndir af tveim frumkvöðlum ís-
lenskra náttúrufræða, þeim Stefáni
Stefánssyni (1863-1921) grasafræðingi
og Bjarna Sæmundssyni (1867-1940)
fiskifræðingi. Stefán var einn aðal-
hvatamaðurinn að stofnun félagsins
og einn af stofnendum þess. Bjarni
varð formaður félagsins árið 1905 og
var auk þess umsjónarmaður safnsins.
Hann gegndi þessum störfum í 35 ár,
allt til dauðadags árið 1940. Bjarni var
þannig mjög náið tengdur félaginu og
safninu um mjög langa tíma.
AFMÆLISDAGSSAMKOMA í
MÝVATNSSVEIT
Langa ferðin svo kallaða meðal fé-
lagsmanna er ein af sumarferðum fé-
lagsins, lengri en aðrar og álitin eins
konar aðalferð félagsisns á hverju ári.
Hún var á afmælissumrinu farin norð-
Hið nýja merki Hins íslenska náttúru-
fræðifélags. Merkið er teiknað af Kristínu
Arngrímsdóttur teiknikennara og bar sig-
ur úr býtum í samkeppni þeirri, sem efnt
var til um merki fyrir félagið.
114