Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 18

Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 18
náttúruundur og hún hefur verið meira rannsökuð en aðrar sveitir landsins. Félögum verður boðið að árna félaginu heilla með því að skrá nöfn sín á Tabula gratulatoria. Stjórn- inni var ljóst að slík útgáfa yrði dýr og félagið hefur aldrei safnað sjóðum. Nokkrir aðilar hafa styrkt útgál'u bók- arinnar og eru Vísindaráði, Iðnaðar- ráðuneyti, Menntamálaráðuneyti, Náttúruverndarráði og Búnaðarbanka íslands færðar kærar þakkir fyrir þeirra góða framlag og þann hlýhug til félagsins sem felst í styrk þeirra við útgáfuna. Markmið félagsins eru enn þau sömu og þau voru við stofnun þess; að auka þekkingu manna á náttúrufræð- um og sérstaklega á náttúru Islands og auðvelda kynni af henni. Þessum markmiðum leitast félagið við að ná með almennum fyrirlestrum, náttúru- skoðunarferðum, námskeiðum og með útgáfu tímaritsins Náttúrufræð- ingsins. Félagið hefur lýst áhuga sín- um á að vera þátttakandi í nýju nátt- úrufræðihúsi og vill leggja sitt af mörkum til að óskabarn þess, glæsi- legt náttúruvísindasafn, megi rísa og blómstra. Það var lán Hins íslenska náttúru- fræðifélags í byrjun að til starfa fyrir það völdust einstakir hæfileika- og hugsjónamenn sem voru tilbúnir að fórna tíma sínum og kröftum fyrir fé- lagið. Öll starfsemi félagsins fyrstu áratugina hvíldi í raun á örfáum mönnum. Hið íslenska náttúrufræði- félag hefur alltaf treyst á framlag fé- laga sinna og mestöll vinna fyrir það hefur verið ólaunuð og lögð fram af áhuga og fúsum vilja. Það er ánægju- legt að vinna fyrir þetta félag, ekki síst þegar leita skal til fólks, vegna þess hve vel flestir taka þeirri mála- leitan að leggja vinnu af mörkum. Um leið og ég óska félaginu heilla á ald- arafmælinu vil ég þakka öllum þeim fjölmörgu sem hafa unnið fyrir félagið og lagt því lið. Að lokum vil ég lýsa þeirri von minni og trú að Hið ís- lenska náttúrufræðifélag megi áfram verða öflugur vettvangur allra þeirra, leikra og lærðra, sem unna íslenskri náttúru og vilja kynnast henni. 128

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.