Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 23
Helgi Hallgrímsson
Flagsól
Scutellinia
INNGANGUR
Orðið flag hefur ýmsa merkingu, en
yfirleitt þýðir það gróðurlaust eða lítt
gróið yfirborð jarðvegs, enda oft talað
um moldarflag. í gróðurfræðinni hef-
ur orðið nokkuð sérstaka og vel skil-
greinda merkingu, en þar er það not-
að um hálfrakt og hálfgróið land, sem
gjarnan er alsett smáþúfum eða pöldr-
um. Það finnst einkum á láglendi á
mörkum mýra og móa, í fremur snjó-
léttum sveitum, og virðist haldast svo
til óbreytt í áratugi a.m.k. (Nánari
lýsingu á þessu gróðurlendi er að
finna í bók Steindórs Steindórssonar:-
Gróður á íslandi, 1964).
Gróðurlendið flag er mjög athyglis-
vert fyrir margra hluta sakir, ekki síst
fyrir það, að varla mun þess getið
annarsstaðar en á Islandi. Auk þess er
það uppáhaldsvaxtarstaður einu prím-
úlunnar sem vex hér á landi, Primula
stricta eða maríulykils, sem þó finnst
aðeins í Eyjafirði, og naflagrassins
(Koenigia islandica), sem er ein þeirra
örfáu jurta sem kenndar eru við Is-
land. Líklega er það engin tilviljun, að
þessi örsmáa blómjurt var uppgötvuð í
plöntusafni, sem Johan Gerhard Kön-
ig safnaði hér árin 1764-1765 og sendi
meistara Linné, sem í staðinn kenndi
ættkvíslina við safnarann og tegund-
ina við landið.
En það var fleira, sem Johan König
tók eftir í íslensku flögunum og safn-
aði þar, því hann var ótrúlega naskur
og fjölhæfur safnari. Af skrám sem
gerðar voru yfir plöntusafn hans frá
fslandi, af E. Muller, Johan Zoega
o.fl., sést að hann hefur safnað litlum,
rauðum, disklaga svepp, sem gjarnan
vex í flögum, og kallast því flagsól.
I skránum er sveppurinn nefndur
Peziza scutellata og var það nafn einn-
ig gefið af Linné, fáum áratugum áð-
ur. Hann er ein þeirra ca. 10 sveppa-
tegunda, sem getið er um í elstu
plöntuskrám frá íslandi og sýnir það,
að hann hefur vakið nokkra athygli.
Við nánari rannsókn reyndist þessi
„linnéska tegund“ vera samsett af
hópi náskyldra tegunda, sem geta ver-
ið allt að 70-80 talsins. Þær hafa geng-
ið undir ýmsum nöfnum, en árið 1887
var þeim gefið ættkvíslarheitið Scutell-
inia, sem er hið sama og eftirnafn teg-
undar Linnés, dregið af latneska orð-
inu scutella, sem merkir skál (sbr. ísl.
orðin skutull og skutilsveinn).
Nú eru þekktar um 15 tegundir af
ættkvíslinni Scutellinia hérlendis. Þær
eru allar svo líkar í útliti og háttum,
að varla er hægt að búast við því, að
aðrir en sérfræðingar greini þær sund-
ur. Mun því varla vera ástæða til að
gefa þeim sérstök íslensk heiti. Því
Náttúrufræöingurinn 59 (3), bls. 133-140, 1989.
133