Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 27
teljast, þ.e. Scutellinia cejpii (Vel.)
Svrcek.
Árið 1984 ferðaðist danski sveppa-
fræðingurinn Henrik Götzsche víða
um iandið, í þeim tilgangi að safna
hér slímsveppum og asksveppum.
Niðurstöður af asksveppakönnuninni
birtust 1987 í Acta botanica islandica.
Þar er getið fjögurra flagsólartegunda
sem ekki voru áður þekktar hér á
landi. (Sjá tegundaskrána hér á eft-
ir).
Um 1985 fréttist að norski sveppa-
fræðingurinn Trond Schumacher í
Osló, væri að vinna að heildarkönnun
á ættkvíslinni Scutellinia. Þótti mér
bera vel í veiði, og fór fram á að mega
senda honum þau sýni af ættkvíslinni,
sem geymd voru í sveppasafni Nátt-
úrugripasafnsins á Akureyri, sem
voru eitthvað um 30, til nafngreining-
ar. Tók hann vel í þetta, og skilaði
sýnunum aftur nafngreindum sumarið
1987. Einnig greindi hann nokkur ein-
tök af tlagsól, sem Bernt Lynge og
Johannes Lid höfðu safnað hérlendis
sumarið 1937, og varðveitt eru í
plöntusafni Oslóarháskóla.
Niðurstaða þessarar greiningar
Schumachers eru 8 nýjar flagsólarteg-
undir, áður óþekktar hér. Hann hefur
einnig samið mikla doktorsritgerð um
Scutellinia, þar sem 45 tegundum er
ýtarlega lýst og álíka margra annarra
getið. Ekki hefur ritgerð þessi verið
prentuð, en verður væntanlega gefin
út að hluta til, í ritsafninu Opera bot-
anica. Vil ég hér með færa Trond
Schumacher innilegar þakkir fyrir
ómetanlega aðstoð við að greina þessa
erfiðu ættkvísl.
ÍSLENSKAR FLAGSÓLAR-
TEGUNDIR
Scutellinia arenosa (Vel.) Le Gal - Fundin
af Götzsche 1984 á Vaðlaheiði nyrðra, í
um 550 m h. í skurði í mosa og leir.
(Götzsche 1987). (Tegundin er ekki
viðurkennd af Schumacher 1987).
Scutellinia cejpii (Vel.) Svrcek - Fundin af
K. og L. Holm 1971, við Saurbæ í Fljót-
um í Skagafjarðarsýslu í hallamýri við
veginn. (Holm & Holm 1984).
Scutellinia crínita (Bull.) Lamb. - Sam-
kvæmt greiningum Schumachers er
tegund þessi fundin á þremur stöðum á
Norðurlandi. Hörður Kristinsson safn-
aði henni fyrst í Herðubreiðarlindum í
ágúst 1962 og síðan aftur í Heilagsdal
við Bláfjall í Mývatnssveit 1974, og loks
safnaði Guðbrandur Magnússon henni
við flugvöllinn á Siglufirði árið 1980. Á
öllum stöðunum mun hún hafa vaxið í
sendnu, mosagrónu landi við læki eða
tjarnir. Hæðarmörkin eru milli 0 og
700 m.
Scutellinia crucipila (Cooke & Phill.) J.
Morav. - Götzsche fann þessa tegund á
brunabletti í Laugardalnum í Reykja-
vík 2. ág. 1984, en annars vex hún
vanalega í rakri mold innanum mosa.
Hún var áður talin til Cheilymenia.
(Götzsche 1987).
Scutellinia heterosculpturata Kullm. &
Raitv. - Fyrst safnað af undirrituðum í
Hrafnsgerði, Fellum á Héraði austur,
4. ágúst 1962, og síðan fundin á Sand-
víkurheiði við Vopnafjörð 1972, við
Heiðarhús á Flateyjardalsheiði 1965 og
við Háls í Svarfaðardal 1982. Vaxtar-
staðirnir eru allir blautt, mosagróið
land í mýrurn eða flóum, enda er teg-
undin talin hafa kjörlendi sitt í slíku
landi.
Scutellinia kerguelensis (Berk.) O. Kuntze
- Þessi tegund hefur aðeins fundist í
Þjórsárverum hér á landi. Þar safnaði
Hörður Kristinsson henni við laugar, í
um 650 m h., 28. júlí 1971. Erlendis vex
hún við ýmsar aðstæður.
Scutellinia macrospora (Svrcek) Le Gal -
Þessari tegund safnaði ég fyrst í Öxna-
dal í Framdölum upp af Bárðardal í S.
Þing., í um 650 m h., 25. ágúst 1974.
Síðan fann H. Götzsche hana í SA-hlíö
Oksins við Kaldadal, 750 m h. og lík-
lega einnig í Merkurhrauni í nágrenni
137