Náttúrufræðingurinn - 1989, Page 37
4. mynd. Einfaldað þversnið af eyjabogasvæði og hinum virku jöðrum jarðskorpuflek-
anna. No. 1 og 2 eru efstu hlutar möttulsins, 3 er úthafsskorpan, 4 er forn megin-
landsskorpa, 5 er meginlandsskorpan sem er að myndast í eyjaboganum, yfir sökkvandi
úthafsskorpunni og 6 eru hafsbotnssetlög. Þetta snið má hugsa sér að liggi í gegn um
Japan og nái inn á meginland Asíu. Sniðið er þá séð norðan frá og vinstri jaðar þess veit
mót austri. Kyrrahafsflekinn er á leið niður og vestur undir Asíuflekann og þar uppi yfir
verður Japanseyjaboginn til. A simplified section through an island arc area.
á berginu vegna hinna miklu breyt-
inga á hitastigi og þrýstingi sem þarna
eiga sér stað.
4) kvikukerfið í jarðskorpunni og
eldfjallabeltið sem situr yfir því og
nærist af því og flytur bæði efnið og
orkuna úr iðrum jarðar til yfirborðins.
Öll japönsku eldfjallabeltin eru því
tengd sökki þungrar úthafsskorpu
undir léttari skorpu eyjaboganna. Ut-
hafsflekarnir sem hérna sökkva niður
í möttul jarðar eru tveir. Undir norð-
urhlutann; Kuril-eyjabogann, nyrðri
hluta Honshu-bogans og Izu-Mariana-
bogann, sekkur Kyrrahafsflekinn en
undir syðri hlutann, Nankai-bogann
og Ryukyu-bogann, sekkur Filipps-
eyjaflekinn. Sökkhraði Kyrrahafsflek-
ans er um helmingi meiri en Filipps-
eyjaflekans eða 10,5 cm á ári á móti 6
cm á ári (The American Association
of Petroleum Geologists 1984). Það
ætti því að öðru jöfnu að verða til
meiri kvika undir nyrðri eldfjallabelt-
unum en þeim syðri. Hvort þess gætir
í afköstum eldvirkninnar er óljóst.
Reyndar þarf þetta ekki að sýna sig í
afköstum á yfirborði því kvikan getur
líka storknað í skorpunni sem innskot.
Það er þó ljóst að nyrsti eyjaboginn
yfir sökkvandi Filippseyjaflekanum,
Nankai-boginn, er nú mun afkasta-
minni sem eldfjallasvæði en hinir.
Úthafsskorpan er að mestu leyti
gerð úr- basalti og skyldum bergteg-
undum sem eru tiltölulega þungar.
Það er því eðlilegt að hún verði fyrri
til þess að láta undan og sökkva þar
147