Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 42
400
6. mynd. Mimatsu-línurit. Á myndinni má sjá mánaðarlegan vöxt Showa-Shinzan frá
upphafi til loka. Mimatsu-diagram showing the growth of the Showa-Shinzan dome.
þekkist á jörðinni, mynduð fyrir um
það bil 70.000 árum. Hún er yfir 20
km í meðalþvermál. Umhverfis öskj-
una eru gríðarlega miklar gjósku-
hlaupamyndanir. Öskjubarmarnir ná
frá 633 til 1233 m yfir hafflöt og öskju-
botninn er í 340 til 700 m hæð. Askjan
er því að meðaltali yfir 400 m djúp.
Þröngt skarð, myndað við höggun og
rof, er í öskjuvegginn að vestan en
annars eru allbrattir misgengjaveggir
allt umhverfis botninn. Upp af öskju-
botninum rís svo ung þyrping keilu-
eldstöðva. Þar er í gangi stöðug og
áköf gufu- og hveravirkni mcð gasút-
streymi (8.mynd). Með nokkurra ára
millibili hafa þar orðið stakar gos-
sprengingar af strombolian gerð og
inn á milli koma gufusprengingar. Þar
heitir Naka-dake og er í 1500 m hæð.
Þetta mikla eldfjall, Aso, situr mislægt
ofan á jarðmyndunum frá fornh'fs- og
miðlífsöld. Askjan og keiluþyrpingin
innan hennar er gróðri vafin og þar
búa þúsundir manna og nýta sér þessa
frjósömu náttúru. Það virðist ekki
hafa mikil taugastrekkjandi áhrif á
Japani að búa svona innilokaðir í eld-
fjalli sem fyrr á tímum hefur eytt öllu
lífi á fleiri hundruð ferkílómetra svæði
umhverfis. Japan er þéttbýlt land og
frjósamt og öll landgæði nýta þeir af
mikilli kostgæfni. En þeir vita vel af
hættunni og á fjallinu er eftirlitsstöð
sem stöðugt fylgist með öllum breyt-
ingum, sem á því og í því verða og
nokkur leið er að mæla. Þar eru tugir
mælistaða og framkvæmdar mælingar
af öllum hugsanlegum gerðum. Ur
þessu öllu er lesið jafnóðum í von um
að íjallið komi ekki aftan að íbúum
sínum með hamförum og dauða en
muni segja til sín áður en hættan skell-
ur yfir svo íbúarnir geti brugðist við
aðsteðjandi hættu. (Kuno 1962, Mina-
to 1977, Ono o.fl. 1981, Watanabe og
Sudo 1988).
Unzen-dake heitir 1360 m hátt eld-
fjall á litlum skaga, Shimabara-hanto
sem er inni í flóa vestan til á Kyushu,
um 35 km austan við Nagasaki. Þetta
er eina eldfjallið á Kyushu sem ekki
er á Kirishima-beltinu. Það stendur
eitt og stakt tugi km fyrir vestan belt-
ið. Þetta er samsett keilufjall allflókið
að byggingu, gert úr þrem megin eld-
152