Náttúrufræðingurinn

Ukioqatigiit

Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 44

Náttúrufræðingurinn - 1989, Qupperneq 44
8. mynd. Marglitur gjóskuveggur og gufuslæður í einum gíganna í toppi Aso-san. Steam clouds in a crater in Aso-san. Ljósm. photo Páll Imsland. km norður af Tokyo er eldfjallið Bandai-san. Þetta er eldkeila sem liggur upp að gömlu rofnu eldfjalli, Nekoma-dake. Bandai-san hefur myndast í sigdal sem liggur þarna í norðlæga stefnu og er frá tertíer. Fjallið nær 1818 m hæð. Keilan hefur sporbaugslaga grunnflöt, 10 og 7 km í þvermál. Efri hluti hennar hefur 20- 30° halla en hún er tiltölulega flöt neðra. Skeifulaga askja nærri 2 km í þvermál er í fjallinu norðantil. Veggir hennar eru allbrattir 60-70° og botn- inn meira og minna þakinn hverum og gufuaugum. Askja þessi myndaðist í miklu sprengigosi í fjallinu árið 1888. Gífurlegar gufusprengingar urðu í fjallinu. Þær muldu bergið og þyrluðu því af stað og eyddu norðurtindi þess, Kobandai. Hljóp efni hans sem aur- skriður aðallega til norðurs þar sem aurflóðin kaffærðu nokkur þorp og drápu um 460 manns. Þetta gos var um margt svipað gosinu í Mt.St.Hel- ens í Bandaríkjunum árið 1980. Ekki barst nein ný bergkvika upp á yfir- borðið í þessum sprengingum. Aur- skriðurnar stífluðu uppi ána Nagase- gawa og mynduðust við það nokkur stöðuvötn. Þar er nú þjóðgarður róm- aður fyrir náttúrufegurð og fjölbreytni í landslagi (Kuno 1962, Minato 1977). Izu-Oshima. í hafinu um 100 km suður af Tokyo fyrir mynni Sagami- flóans er eyjan Izu-Oshima (Stóra Izu- eyja) um 92 km2. Hún er hluti af Izu- Mariana-eyjaboganum og á Fuji-eld- fjallabeltinu, nyrsta eyjan á þcssu belti. Á eyjunni sést í leifar þriggja eldfjalla frá því snemma á ísöld en þau eru að mestu leyti hulin hraunum og gjósku (9.mynd) frá þeirri eldkeilu sem nú er þar virk og kallast oftast Oshima, um 760 m há. Mihara-yama 154

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.