Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 49

Náttúrufræðingurinn - 1989, Blaðsíða 49
Ólafur S. Ástþórsson Ritfregnir s Hafrannsóknir við Island I. Frá öndverðu til 1937 eftir Jón Jónsson Því liefur löngum verið haldið fram að f íslendingar eigi allt sitt undir liafinu c umhverfis landið og þeim auðlindum sem þar er að finna. Pess vegna má telja það í merkisviðburð á sviði íslenskrar nátt- c úrufræði þegar út kemur bók sem rekur e helstu þætti sögu, þekkingar og rannsókna ( á þessu mikilvæga umhverfi okkar. Hér á t ég við útkomu bókarinnar Hafrannsóknir e við ísland eftir Jón Jónsson fiskifræðing i og fyrrum forstjóra Hafrannsóknastofn- c unarinnar sem Bókaútgáfa Menningar- j sjóðs gaf út 1988. Bók Jóns er fyrra bindi i af sögu hafrannsókna við ísland, þar sem J þær eru raktar frá öndverðu og fram til í 1937. i Hafrannsóknir við ísland er metnaðar- s fullt verk, bæði frá hendi höfundar og út- i gefanda. Bókin er 340 bls. í stóru broti. í ' henni eru um 100 ljósmyndir, teikningar I og kort. Þar af eru margar litmyndir úr náttúrufræði- og vísindaritum fyrri alda (1. I mynd). í bókinni er ítarlegur úrdráttur á i ensku, atriðisorðalisti, listi yfir mannanöfn í og landafræðiheiti, svo og heimildalisti. 1 Bókin er yfirleilt þægileg aflestrar og rituð s á greinargóðu og skýru máli. < Frágangur bókarinnar er með ágætum, I villur eru fáar og ekki alvarlegar, en þó i finnst mér rétt að benda á þrjár. A bls. 18 1 segir að í fiskaþulunni í Snorra-Eddu sé i minnst á fjóra hryggleysingja (humar, ígul, 1 krabba og skelfisk), í raun eru þeir fimm | þar sem í þulunni er einnig getið um I marþvara. I myndatexta með mynd 2 er í getið um hagalfisk þar sem standa á hala- I Náttúrufræðingurinn 59 (3), bls. 159-162, 1989. 159 fiskur. í myndatexta með mynd 6 hefur orðið kúfskel fallið niður. Flestar myndir bókarinnar eru mjög áhugaverðar og gefa henni aukið gildi, en einmitt þessvegna kemst ég ekki hjá því að amast yfir tveimur lélegum myndum (myndir 59 og 60) sem fylgja frásögn af botnþörungarannsóknum Helga Jónsson- ar. Hvor mynd um sig á að sýna tvær teg- undir þörunga, en í raun eru þær svo óskýrar að það er einungis á færi fólks sem þekkir þörungana vel að greina þá í sund- ur á myndunum. Auðvitað er það ekki sök Jóns þó að myndir Helga hafi verið óskýr- ar, en ofangreindum myndum finnst mér að hefði mátt sleppa þar sem þær skýra lítt sjálfan textann. Til þess að gefa lesandan- um hugmynd um stórþörunga hefði hér verið nær að birta fallegar litmyndir af beltaskiptingu þeirra í fjörunni. Hafrannsóknir við ísland skiptist í tíu kafla og hver þeirra síðan í fjölmarga und- irkafla og hér er því einungis fært að drepa á örfá atriði sem getið er í hverjum kafla. Fyrsti kaflinn ber heitið „Frá Konungs- skuggsjá til Jóns Grunnvíkings". Þar er m.a. greint frá elstu frásögnum af hvölum, fiskum og öðrum sjávarlífverum við land- ið. í þessum kafla er einnig rakið það helsta sem þeir Jón lærði og nafni hans Grunnvíkingur rituðu um sævarbúa og birtar myndir úr ritum þeirra. Frásagnir þeirra nafnanna eru sambland af hjátrú, hindurvitnum og vísindalegum athugun- um, en samt stórmerkilegar og skemmti- legar aflestrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.