Fréttablaðið - 18.05.2009, Page 2
2 18. maí 2009 MÁNUDAGUR
585-6500 audur.is
Stattu vörð um viðbótarlífeyris-
sparnaðinn þinn
Opinn kynningarfundur
Háskólanum í Reykjavík, Ofanleiti 2, 3. hæð
Mánudaginn 18. maí kl. 17:15
Allir velkomnir
SAMGÖNGUR „Ég held að það sé
alveg ljóst að það verður ekki frítt
fyrir námsmenn í Strætó næsta
vetur,“ segir Jórunn Frímanns-
dóttir, stjórnarformaður Strætó bs.
Hún segir að mikill vilji sé til þess
að niðurgreiða strætókort fyrir
námsmenn í stað þess að hafa þau
ókeypis.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun
um hvort eða hvernig verður komið
til móts við námsmenn nú þegar
tveggja ára tilraun með ókeypis
strætisvagnaferðir virðist komin
á endastöð. Jórunn segir að reynt
verði að ná lendingu sem fyrst, í
öllu falli fyrir sumarfrí.
Reynslan sýnir að námsmenn
sem ekki taka strætó eru ekki lík-
legri til að byrja þótt þeir fái ókeyp-
is kort, segir Jórunn. Þeir sem noti
strætó á annað borð fari þó fleiri
ferðir. Farþegum hefur fjölgað á
þessu ári, en Jórunn segir að það
sé frekar tengt slæmu efnahags-
ástandi en því að námsmenn hafi
verið duglegir að nota strætó.
Þrátt fyrir erfitt ástand í fjár-
málum sveitarfélaga segir Jórunn
fullan vilja til þess hjá þeim sveitar-
félögum sem standi að Strætó
bs. að skerða þjónustustigið ekki
frekar en þegar er orðið. Allir vilji
standa vörð um þessa mikilvægu
þjónustu, um það sé mikil eining í
eigendahópnum. - bj
Tveggja ára tilraun með ókeypis strætóferðir fyrir námsmenn komin á endastöð:
Námsmenn þurfa að borga
FJÖLGAR Farþegum Strætó hefur fjölgað
á þessu ári, en það tengir Jórunn Frí-
mannsdóttir, stjórnarformaður Strætó
bs., frekar við efnahagsástandið en að
námsmenn séu að nýta sér ókeypis
ferðir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Guðlaugur Magni Óðinsson
lést í bílslysi skammt sunnan
við Dalsá í
Fáskrúðs-
firði á laug-
ar dag. Guð-
laugur var
sautján ára
gamall, til
heimilis að
Króksholti 6
á Fáskrúðsfirði.
Guðlaugur var í bíl sem ekið
var út af þjóðvegi 92 fyrir
botni Fáskrúðsfjarðar á laugar-
dagsmorgun.
Lést í bílslysi
ÚTIVIST Landsmenn nutu margir
einmuna veðurblíðu í gær, og fór
hitinn í nítján stig í höfuðborginni.
Fjölmargir notuðu tækifærið og
stunduðu útivist af ýmsu tagi, fóru
í sund, hjólatúra og gönguferðir í
góða veðrinu.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands var veðrið gott víð-
ast hvar í gær, og fór hitinn mest í
tuttugu stig á Þingvöllum. Heldur
var þó kalt í þokulofti víða á Aust-
urlandi. Spáð er áframhaldandi
veðurblíðu víða um land. Höfuð-
borgarbúar geta því hlakkað til sól-
ríkrar og þurrar viku, en reikna má
með rigningu um næstu helgi.
- bj
Spáð áframhaldandi sólríku og þurru veðri víða um land í vikunni:
Hitinn í 20 stig á Þingvöllum
MEÐ SNÚNINGI OG DÝFU Nauthólsvík
var þéttsetin í góða veðrinu í gær. Þessir
drengir æfðu stökk fyrir lengra komna á
sandinum.
FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
HEILBRIGÐISMÁL Varðveitt eru líf-
sýni úr um 300.000 Íslendingum
í lífsýnasafni sem að stærstum
hluta er geymt á Landspítalan-
um en einnig á Akureyri og í lít-
illi rannsóknarstofu í einkaeigu á
höfuðborgarsvæðinu.
Ekki eiga allir Íslendingar
sýni í safninu, aðeins þeir sem
eitthvað hefur verið fjarlægt af.
Elsta sýnið er frá því um 1935.
„Þegar fólk kemur til lækn-
is og eitthvað er fjarlægt, hvort
sem það er varta af húðinni, heilt
lunga eða leg, þá er gerð sjúk-
dómsgreining og svo er varðveitt
pínulítið sýni um óákveðinn tíma
til að hægt sé að skoða sýnið ef
sjúkdómur kemur aftur upp hjá
þessum sjúklingi,“ segir Jóhann-
es Björnsson, yfirlæknir á Land-
spítalanum og formaður stjórnar
Lífsýnasafnsins.
Sýnin eru einn sinnum tveir
sentimetrar að stærð og eru varð-
veitt í læstum hirslum. Þau eru
eingöngu notuð í tvenns konar til-
gangi; í nafnlausum vísindarann-
sóknum og til að þjónusta sjúk-
linga. „Varðveittur er lítill hluti af
hverju sýni til að geta þjónustað
viðkomandi einstakling. Ef hann
fær til dæmis illkynja meinsemd
í húð og fæðingarblettur hefur
verið tekinn fyrir þrjátíu árum
er sýnið skoðað aftur,“ útskýrir
Jóhannes.
„Læknir, sem fjarlægir til
dæmis blett af húðinni, sendir
hingað sýni og við gerum á því
greiningu og sendum honum svar.
Síðan er hluti af sýninu varðveitt-
ur hér,“ segir hann.
Sýnin eru varðveitt þannig að
þau eru „fixuð eins og það er kall-
að, í formalíni. Það drepur allan vef
og því eru þau gerð óvirk. Síðan eru
þau steypt inn í vax,“ segir Jóhann-
es og tekur fram að sýni séu aðeins
tekin af veiku fólki.
Á Íslandi eru í gildi lög frá
árinu 2000 þar sem kveðið er á
um söfnun, meðferð og aðgang að
lífsýnum í lífsýnasafni. Jóhann-
es segir að slík söfn séu í þús-
undatali um allan heim en það
sem geri safnið hér á landi sér-
stakt sé að Íslendingar séu svo
fámennir að allt safnið sé nánast
á sama stað.
Samkvæmt lögum er gert ráð
fyrir ætluðu samþykki sjúklings
fyrir því að lífsýni verði vistað í
lífsýnasafni enda sé getið um það
í almennum upplýsingum frá heil-
brigðisstarfsmanni eða heilbrigð-
isstofnun. Sá sem lífsýnið er úr
getur hvenær sem er afturkallað
samþykki sitt og skal lífsýninu þá
eytt. ghs@frettabladid.is
Lífsýni úr 300 þúsund
Íslendingum varðveitt
Geymd eru sýni úr 300 þúsund Íslendingum á Landspítalanum, Akureyri og á
einkastofu í Reykjavík í rannsókna- og þjónustuskyni. Læknar sem taka vörtur,
fæðingarbletti eða leg senda sýni í safnið. Ekki eiga allir Íslendingar þar sýni.
ÞEGAR EITTHVAÐ ER FJARLÆGT Til eru sýni úr 300 þúsund Íslendingum og nær
safnið aftur til um 1935. Í safninu eru aðeins sýni af einstaklingum sem eitthvað
hefur verið fjarlægt af, til dæmis varta eða fæðingarblettur, en læknar senda sýnin til
rannsóknar á Landspítalann og um leið er hluti varðveittur í lífsýnasafninu.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Óskar Páll, var ekki fúlt að
enda á bak við Rybak?
„Nei, ber er hver að Rybaki nema
bróður eigi í Noregi.“
Íslenska lagið Is It True? eftir Óskar Pál
Sveinsson endaði í öðru sæti í Eurovision
á eftir lagi Norðmannsins Alexander
Rybak, Fairytale.
INDLAND, AP Congress-flokkurinn
í Indlandi, með forsætisráðherr-
ann Manmohan Singh í farar-
broddi, bar sigur úr býtum í þing-
kosningum í landinu sem voru
haldnar á laugardag. Sigurinn
er einn sá öruggasti í Indlandi í
tæpa tvo áratugi.
Sigur flokksins og um leið
slæmt gengi indversku kommún-
istaflokkanna þýðir að umbætur
í trygginga- og lífeyrismálum
ásamt banka- og verslunarmálum
ná líkast til fram að ganga. Þrátt
fyrir það telja sérfræðingar ólík-
legt að frjálst markaðshagkerfi
verði innleitt í landinu í bráð.
Alþjóðafjármálakreppan hefur
fyrst og fremst komið í veg fyrir
það, enda halda Indverjar að sér
höndunum þegar kemur að fjár-
festingum erlendis. Ekki stendur
heldur til að losa um reglugerðir
tengdar fjárfestingum í nánustu
framtíð. - fb
Kosningum lokið í Indlandi:
Yfirburðasigur
hjá Congress
MANMOHAN SINGH Forsætisráðherra
Indlands er að vonum hæstánægður
með sigurinn í kosningunum. MYND/AP
AMSTERDAM, AP Súdanski upp-
reisnarleiðtoginn Bahr Idriss Abu
Garda hefur gefið sig fram við
Alþjóðastríðsglæpadómstólinn í
Haag. Hann er ákærður fyrir að
hafa framið stríðsglæpi í árás sem
kostaði tólf friðargæsluliða lífið í
Darfur-héraði árið 2007.
Abu Garda er sá fyrsti af
þremur sem eru grunaðir um að
bera ábyrgð á árásinni, sem er
formlega ákærður. Dómsmál-
ið er það eina sem hefur verið
höfðað gegn uppreisnarmönnum
í Darfur-héraði. Samkvæmt Sam-
einuðu þjóðunum hafa hátt í 300
þúsund manns látið lífið í Darfur
og um 2,7 milljónir misst heimili
sín frá árinu 2003. - fb
Súdani fyrir dómstóla í Haag:
Ákærður fyrir
stríðsglæpi
DARFUR Hátt í 300 þúsund manns hafa
látið lítið í Darfur-héraði á undanförnum
árum.
VIÐSKIPTI Skilanefnd Kaupþings
hefur höfðað mál gegn breska
fjárfestinum Robert Tchenguiz
fyrir breskum dómstólum.
Nefndin gerir kröfu um 180 millj-
ónir punda frá fjárfestinum.
Breska blaðið Guardian greinir
frá þessu í Sunnudagsblaði sínu,
Observer. Þar kemur fram að
upphæðin er söluhagnaður af
sölu á hlut Tchenguiz í bresku
verslunarkeðjunni Sommerfield.
Skilanefndin telur að hún hafi
átt að renna inn í bankann en
ekki beint til fjárfestisins. Vegna
annarra málaferla eru eignir
Tchenguiz tengdar Sommerfield
frosnar í Bretlandi. - kóp
Skilanefnd Kaupþings:
Höfðar mál
gegn Tchenguiz
Óku fram á bíl á hvolfi
Björgunarsveitarmenn, á leið heim frá
ráðstefnu á Akureyri, óku fram á bíl
á hvolfi í Hrútafirði í gær. Ökumaður
var einn í bílnum og hlúðu björgunar-
sveitarmennirnir að honum. Honum
var svo ekið til móts við sjúkrabíl sem
kom frá Hvammstanga.
SLYS
SPURNING DAGSINS