Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 36

Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 36
20 18. maí 2009 MÁNUDAGUR folk@frettabladid.is Kevin Federline hefur nánast ekkert komist í fréttir eftir að fyrrverandi eiginkonan náði sæmilegri geðheilsu. Nú eru bandarískir fjölmiðlar hins vegar farnir að veita honum meiri athygli þótt fréttaefn- ið sé Federline ekki að skapi. Því dansar- inn er í stað K-Fed kallaður Feiti-Fed. Hann er sagð- ur hafa bætt á sig 25 kílóum síðan hann og Britney skildu árið 2006. En nú hefur Federline ákveðið að setja sér stólinn fyrir dyrnar og mætir í líkamsræktina á hverjum degi. „Kevin hefur aldrei verið mikið fyrir líkamsræktarstöðv- ar, hann hefur haldið sér í formi með því að dansa. Nú er hann hins vegar mættur á hverjum degi og rífur í lóðin þrjá tíma í senn.“ Af fyrrverandi eiginkonunni er það hins vegar að frétta að fyrrverandi samstarfs- menn hennar reyna nú af öllum mætti að fá nálg- unarbanni á sig hnekkt. Fyrst var það umboðs- maðurinn Sam Lufti og nú er það lögfræð- ingurinn Rob Eardly. Hann krefst þess að nálgunarbanninu verði aflétt og því má ljóst vera að andlit Britney Spears verður eitthvað lengur í blöðunum fyrir annað en bara tónlist. Federline vill komast í form FEITUR Kevin Federline þykir nokkuð mikill um sig þessa dagana en hann er að taka sig á. FYRIR DÓMSTÓLUM Sagan endalausa um Britney Spears virðist engan endi ætla að taka. F í t o n / S Í A 25. – 26. maí 49.900kr. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum og miði á tónleikana. Innifalið: Flug með sköttum og öðrum greiðslum, hótelgisting í tvær nætur ásamt morgunverði og miði á tónleikana. Nánar á expressferdir.is eða í síma 5 900 100 Beyoncé 02-höllinni London 02-höllinni LondonVerð á mann Verð á mann í tvíbýli 78.900kr. 12. – 14. júní Britney Spears TÓNLEIKAR með Express ferðum TILBOÐ! Í ár eru liðin 40 ár síðan hljómsveit- in Trúbrot steig fyrst á svið og af því tilefni hefur öllum fjórum plöt- um sveitarinnar verið safnað saman í viðhafnarútgáfu. Með öskjunni sem hýsir plöturnar fjórar fylgir 52 blaðsíðna bók sem rekur sögu Trú- brots í máli og myndum. Trúbrot var ofursveit stofn- uð upp úr Hljómum og Flowers. Í upphaflegri útgáfu voru Gunnar Þórðar son, Rúnar Júlíusson, Karl J. Sighvatsson, Gunnar Jökull Hákonarson og Shady Owens, en það var nokkur hreyfing á manna- skipan og þeir Gunni og Rúnar voru einu meðlimirnir sem voru í sveitinni á öllum fjórum plötun- um. Magnús Kjartansson kom inn á plötu númer tvö og var atkvæða- mikill í sveitinni eftir það. Þegar Trúbrot varð til höfðu erlendar poppsveitir verið að þróa sína tónlist yfir í flóknari og fram- sæknari hluti. Trúbrot var stofnuð undir áhrifum frá þeim hræringum og lagði mikinn metnað í lagasmíð- ar og útsetningar. Á fyrstu plötunni voru sjö lög eftir Gunnar Þórðarson og fjögur tökulög í mjög breyttum útsetningum, þeirra á meðal var útgáfa Karls J. Sighvatssonar á Pílagrímakórnum úr Tannhäuser eftir Wagner með texta eftir Þor- stein Eggertsson. Sú útgáfa fór fyrir brjóstið á mörgum og siðapostular Ríkisútvarpsins gengu svo langt að rispa lagið á þeim eintökum sem stofnunin átti. Það er margt hreint stórkostlegt á þessari fyrstu plötu Trúbrots þó að hún sé ekki fullkomin. Lagasmíð- arnar eru sumar magnaðar, útsetn- ingarnar eru flottar og það eru til- þrif í spilamennskunni, en textar Þorsteins Eggertssonar við lögin Konuþjófurinn og Afgangar sýna að sveitin var komin styttra á leið textalega heldur en tónlistarlega. Á fyrsta disknum eru líka lögin af smáskífunum tveimur sem komu í kjölfarið og eru báðar hrein snilld. Önnur platan Undir áhrifum er heil- steyptari en frumsmíðin. Textarnir eru á ensku og nú eftir hljómsveitar- meðlimi sjálfa og tónlistin er undir miklum áhrifum frá bandarískum hippasveitum eins og CSN&Y. Fín plata. Þriðja platan, hin margróm- aða …lifun hefur að geyma þema- verk sem sveitin frumflutti á tón- leikum í Háskólabíói í mars 1971. Frábært verk sem stendur vel fyrir sínu enn í dag. Lokaplata Trúbrots, Mandala, er svo sísta plata sveitar- innar. Það er svolítið eins og vindur- inn sé aðeins farinn úr mönnum þó að á henni séu nokkur ágæt lög. Trúbrot var fyrsta íslenska ofur- sveitin og án efa ein af merkustu poppsveitum Íslands. Tvær af plöt- unum hennar eru í hópi hundr- að bestu platna Íslandssögunnar í kosningunni sem nú fer fram á tónlist.is, fyrsta platan og …lifun. Það er ekki ofmat og í raun á Undir áhrifum alveg heima þar líka. Þó að ekkert áður óútgefið efni sé í Trú- brotsöskjunni er gott að fá þessar plötur allar saman í einum pakka og sérstaklega mikill fengur í ítar- legum sögutexta Jónatans Garðars- sonar í bókinni sem fylgir. Trausti Júlíusson Flottur pakki Svo virðist sem upplausnar- ástand sé á Lýðvarpinu. Helsta stjarnan, Sirrý spá, er hætt og framkvæmda- stjórinn einnig. „Já, þetta passar. Ég er hætt á Lýðvarpinu,“ segir Sirrí Sigfús, spákona og útvarpsmaður. Sirrý spá, ein helsta útvarpsstjarna Útvarps Sögu, ákvað að söðla um og ganga til liðs við Lýðvarp- ið. Hún staldraði hins vegar stutt við þar. Hún gekk á dyr þegar hún komst að raun um að Ástþór Magnússon er potturinn og pann- an á Lýðvarpinu. „Ég hef aldrei verið hrifin af Ástþóri og ekki viljað koma nálægt neinu sem hann er að gera. Mér var tjáð að hann væri fluttur til Spánar og væri ekki eigandi stöðvarinnar. Það voru rosaleg gylliboð í gangi og mik- ill þrýstingur á mig að ég kæmi. Ég átti að vera með minn eigin þátt og mátti ráða mínum málum alfarið sjálf. En þetta eru ekkert nema svik og prettir,“ segir Sirrý. Hún var með þátt á Lýðvarpinu en þá gafst hlustendum kostur á að hringja inn. Þátturinn átti að vera frá níu til tíu að kvöldi en vegna gríðarlega mikilla viðbragða var Sirrý beðin um að lengja þáttinn um klukkutíma. Svo margir voru á línunni sem biðu. Og Sirrý varð að sjálfsögðu við því og allt leit vel út. En Sirrý heyrði svo af því að Ást- þór væri sá sem öllu réði en það sá hún ekki fyrir. En það er svo með þá sem gæddir eru spádómsgáfu, það er ekki á þeirra færi að spá fyrir sjálfum sér. „En þetta lagðist alltaf illa í mig. Og fyrsta kvöldið sem ég átti að fara í útsendingu var eins og reynt væri að koma í veg fyrir að ég færi á Lýðvarpið. Ég læsti lykl- ana mína inni í borðstofu og þar voru spáspilin mín. Ég hringdi á lásasmið en hann gat ekki komið fyrr en klukkan tólf en ég átti að vera mætt í útsendingu klukkan níu. Þannig að ég greip með mér spil sem ég hef ekki spáð með. Það gekk svo sem ágætlega en ég kem þarna ekki meir,“ segir Sirrý sem nú situr heima og hugsar næstu skref. Ástþór Magnússon býr nú um stundir á Marbella á Spáni en framkvæmdastjóri Lýðvarpsins til skamms tíma var Gunnar Kristj- án Steinarsson. Hann er einnig hættur og segir því svo farið með flesta: „Ég pakkaði saman og labb- aði út þegar Ástþór gaf út þá yfir- lýsingu í síðustu viku að hann ætl- aði ekki að borga einum né neinum neitt. Eftir standa í dagskránni þeir sem voru með honum í fram- boði,“ segir Gunnar. Hvort Sirrý snúi aftur á öldur ljósvakans og þá á Sögu er óvíst því Arnþrúður Karlsdóttir er þegar búin að ráða aðra spák- onu á stöðina – Siggu drottningu – eða frú Sigríði Júlíusdóttur sem að sögn Arnþrúðar ætlar að gefa fólki sínar persónulegu lottó-tölur sem hún reiknar út frá fæðingar- degi viðkomandi. jakob@frettabladid.is Stutt stopp á Lýðvarpi Ástþórs STÚDÍÓ LÝÐVARPSINS Þegar ljósmyndara bar að garði á Lýðvarpinu var Grétar Mar, fyrrverandi þingmaður, við míkrófóninn en upplausnarástand ríkir nú á útvarpsstöð- inni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON SIRRÍ SPÁ Hætti um leið og hún komst að því að Ástþór væri potturinn og pannan á Lýðvarpinu. Framkvæmda- stjórinn og fleiri pökkuðu einnig saman. Breska fyrirsætan Jordan lýsti því yfir tveimur mánuðum fyrir skiln- að sinn við Peter Andre að hún væri ástfangin af öðrum manni. Jordan, sem heitir réttu nafni Katie Price, opnaði hjarta sitt á bar og henti meðal annars frá sér giftingarhring sínum. „Katie sagð- ist vilja þennan nýja mann en hún vildi líka halda í fjölskyldulíf sitt með Peter Andre. Hún sagði að börnin sín væru sér mikils virði en hún væri ekki ástfangin af Peter,“ segir Mona Lewis, þátttakandi í sjónvarpsþáttunum Apprentice, sem sat undir yfirlýsingum Jor- dan. Í viðtali í breska blaðinu Mirror segir Mona frá því að Jordan hafi gert lítið úr ástarlífi hjónanna. „Pete er orðinn leiðinlegur í rúm- inu. Ég sakna kynlífsins með Dwight,“ á Jordan að hafa sagt og átti þar við fótboltamanninn Dwight Yorke sem er barnsfaðir hennar. Breska Heimsfréttablaðið greindi frá því í gær að skiln- aðurinn hefði átt sér langan aðdraganda. Þannig er haft eftir vini Peter Andre að tvö ár séu síðan þau hafi sofið saman. Jordan ástfangin af öðrum manni ÓHAMINGJA Skilnaður Jordan og Peter Andre hefur verið yfirvofandi í tvö ár. Hún missti áhugann á honum fyrir löngu síðan. NORDICPHOTOS/GETTY > ÉG ER EKKI FEIT Leikkonan Miley Cyrus er ósátt við að fólk sé að velta sér upp úr útliti hennar og segja að hún sé feit. Í síðustu viku birtust myndir af henni á bik- iní á Bahama-eyjum þar sem hún þótti hafa bætt á sig. „Ég er venjuleg stelpa og hef mína galla. Það er eitt og annað sem ég mætti laga en hættið að kalla mig feita,“ segir hún. TÓNLIST Trúbrot Trúbrot ★★★★ Trúbrot var ein af merkustu hljóm- sveitum íslenskrar poppsögu. Þessi heildarútgáfa sýnir að tónlist hennar þolir vel upprifjun og stendur fyrir sínu enn í dag.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.