Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er mánudagurinn 18. maí, 138. dagur ársins. 4.10 13.24 22.41 3.35 13.09 22.46 Opið 07 til 01 Lyfja Lágmúla - Lifið heil www.lyfja.is með ánægju Fjör fyrir alla fjölskylduna Danmörk er svo passleg. Þægilega stór, milt veðurfar, vinaleg og aðgengileg. Svo tekur enga stund að skjótast þangað. Bókaðu huggulega fjölskylduferð til Danmerkur á www.icelandexpress.is Það er tilvalið að fljúga á einn áfangastað í Danmörku, fá sér bílaleigubíl frá Budget, ferðast um landið og fljúga jafnvel heim frá öðrum áfangastað. Við bjóðum einnig mikið úrval af gisti- möguleikum; sjá nánar á www.icelandexpress.is. Álaborg Árósar Óðinsvé Hróarskelda Knuthenborg Skagen Billund Þýskaland Horsens Kaupmannahöfn Helsingør Silkeborg Silkeborg Skelltu þér í skemmtisiglingu með elsta sjófæra gufubáti í heimi frá Silkeborg til Himmelbjerget. Ring, ring! Það er flott að hjóla þar sem flatt er. Og flöt er Danmörk. Leigðu hjól á góðu verði og upplifðu landið öðruvísi. Í Lególandi í Billund er gaman að vera. Rússíbanar, bátar, sjó- ræningjar og eintóm ævintýri. Ekki klikka á frægustu kubbum í heimi. Listamenn sækja sér innblástur í fegurð Skagen á Jótlandi. Láttu hana ekki fram hjá þér fara. Nú höfum við eignast ekki bara eina, heldur tvær þjóðhetjur sem heita Jóhanna og þess munu líklegast sjást merki í nafnagjöf hvítvoðunganna á næstunni. Auk þess sem fjöldi stúlkubarna fær nöfn eins og París Þöll, Aþena Fló og Þúfa Dúfa mun nýfæddum Jóhönnum örugglega fjölga stór- fellt í þjóðskrá. Á Íslandi munu innan skamms tifa um ponsu- lítil Jóhanna Mist og agnarsmá Jóhanna Þrá. Því hvað er betra en fá í vöggugjöf hetjulegt nafn fyrstu konunnar sem varð forsætis- ráðherra landsins eða þeirrar sem næstum sigraði í Evróvisjón en lét okkur þó ekki sitja uppi með keppnina að ári? ÆTTERNI okkar getum við að miklu leyti rakið til Norðmanna sem þrifust illa í ströngum aga heimafyrir. Hingað til Íslands fluttu óþekktarormarnir og enn sér þess nokkur merki í skap- lyndi frændþjóðanna. Á meðan við spændum upp auðlindirnar og spreðuðum þeim í allskyns partý og vitleysu eins og enginn væri morgundagurinn, fara Norðmenn enn snemma í háttinn og dunda sér við víðavangshlaup og sparn- að í frístundum. En eins og gamla góða frændur sem horfa með góð- látlegu yfirlæti á gelgjustælana í unglingnum er dálítið notalegt að eiga þá að þegar í harðbakkann slær. Talandi um yfirlæti. HIN glæsilega Jóhanna Guðrún, sem við munum síðast í hlutverki barnastjörnunnar, flutti lag sem léttilega mætti heimfæra upp á Hrunið: Er það satt, er þetta búið? Hún stóð sig nógu vel til að vinna Evróvisjón nú um helgina. Reyndar munaði ekki nema hársbreidd. Hefðu Norðmenn spilað út einum af sínum venjubundnu slögurum værum við Íslendingar nú sigur- vegarar og þar með sannarlega þjóð í enn meiri vanda. Með bux- urnar á hælunum í peninga málum þyrftum við engu að síður að halda fjölþjóðlega keppni í glysi og sýnd- armennsku að ári. Spjátrungseðlið sem við tókum í arf frá umrædd- um forfeðrum og kom okkur að lokum á alþjóðlega vanskilaskrá, hefði séð til þess að þeirri keppni væri ætlað að toppa allar þær sem á undan komu. Sama hvað. MEÐ eldgamla Laugardalshöll og fokhelt tónlistarhús hefðu kostirnir samt ekki verið margir. Í fyrsta sinn í sögu Evróvisjón hefði keppnin verið haldin í leigutjaldi á hafnar- bakkanum í Reykjavík. Okkur hefur verið forðað frá sögu legri niðurlæg- ingu. Takk, Jóhanna! Þar skall hurð nærri hælum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.