Fréttablaðið - 18.05.2009, Síða 14
18. maí 2009 MÁNUDAGUR
UMRÆÐAN
Óskar Hrafn Ólafsson skrifar
um hvalveiðar
Það er orðinn árviss viðburður að talsmenn ýmissa umhverf-
is- og dýraverndunarsamtaka rísi
upp á afturlappirnar og mótmæli
takmörkuðum hvalveiðum Íslend-
inga. Viðkomandi samtök hafa
ekki fært fram nein haldbær rök
fyrir því hvers vegna ekki eigi að
nýta hvalastofna með sjálfbærum
hætti. Sýnt hefur verið fram á að
hvalastofnar í Norður-Atlantshafi
hafa stækkað mikið síðustu ára-
tugina. Fyrir því hafa Íslendingar
og fleiri fundið vegna þess mikla
magns af fiski sem hvalahjörðin
skóflar í sig á ári hverju.
Erlendir umhverfisverndar-
sinnar geta ekki ætlast til þess að
Íslendingar einir borgi fæðið fyrir
þessa afræningja. Ef þeir vilja
ekki að hvalir séu veiddir þá er
lágmarkskrafa að þeir taki þátt í
að borga fæðiskostnaðinn. Það má
líkja þessu við ótta manna
vegna eyðingu regnskóg-
anna á Amazonsvæðinu.
Hvert tré þar bindur tíu
sinnum meira af koltví-
sýringi en tré á Íslandi
og það er því mikið í húfi.
Ekki er hægt að ætlast
til þess að þeir, sem hafa
atvinnu af skógarhögginu,
séu sendir heim bótalaust.
Þeir þurfa að lifa eins og
aðrir og því er eina ráðið að greiða
þeim bætur fyrir að hætta skógar-
högginu.
Svo vikið sé aftur að hvalamál-
unum og stærð hvalastofnanna
umhverfis landið þá má leiða að
því líkur að hvalirnir éti nytja-
fisk að verðmæti tveggja millj-
arða evra á ári hverju. Mín tillaga
er sú að erlend umhverfisvernd-
arsamtök eða ríkisstjórnir þeirra
ríkja, sem hvað harðast hafa
beitt sér gegn hvalveiðum Íslend-
inga, borgi 70% af fæðiskostnaði
hvalanna. Íslendingar geta tekið
30% á sig. Gerist þetta þá er sjálf-
sagt að hætta hvalveiðum.
Ef ekki þá á að auka hval-
veiðar og nýta stofnana
með sjálfbærum hætti.
Málið er einfalt. Sá, sem
á kartöflu- eða kálgarð,
stuggar við þeim sem stela
úr garðinum. Hann skýtur
gæsirnar sem leggjast á
kálið. Hið sama eigum við
að gera til þess að vernda
nytjastofnana í hafinu sem
þessi þjóð hefur lengstum lifað svo
til alfarið á. Höldum hvalastofnum
í skefjum með skynsamlegum veið-
um. Ef einhverjir vilja hins vegar
taka þátt í að greiða fyrir fæðu
þeirra þá er sjálfsagt að skoða það
mál. Með nútímatækni er hægt að
merkja hvali og fylgjast með ferð-
um þeirra með aðstoð gervihnatta.
Þeir, sem tækju hvali í fæði, gætu
þá fylgst með ferðum þessara dýra
og því hvar þau eru að éta hverju
sinni.
Höfundur er fyrrverandi
skipstjóri.
Hver á að bæta fæðiskostnaðinn?
ÓSKAR HRAFN
ÓLAFSSON
UMRÆÐAN
Haraldur Flosi Tryggva-
son og Kristín Péturs-
dóttir skrifa um Evr-
ópumál
Fjölmargir eru þeirrar skoðunar að aðild að
Evrópusambandinu kæmi
landi og þjóð vel. Þá eru
aðrir þeirrar skoðunar
að Evrópusambandsaðild
komi Íslandi og Íslend-
ingum illa. Langflestir í
þessum hópum eru jafn-
framt þeirrar skoðunar
að lýðræðisfyrirkomulag-
ið sé það fyrirkomulag
sem best hentar íslensku
samfélagi. Iðulega er þetta
fólk sammála um að leggja
beri samning um aðild að
Evrópusambandinu í dóm þjóðar-
innar.
En þá eru ekki allir taldir. Til eru
þeir sem eru hræddir um að samn-
ingur um aðild að Evrópusamband-
inu verði ekki góður og að þjóðin
muni þrátt fyrir það samþykkja
slíkan samning í kosningum. Ótti
kemur í veg fyrir að þetta fólk vilji
ganga til samninga. Sami ótti setur
lýðræðishalla á íslenskt samfélag,
því sumir virðast reiðubúnir til að
berjast gegn aðildarvið-
ræðum á þessum grund-
velli. Sú afstaða kemur í
veg fyrir að þjóðin geti
kosið um málið.
Til að koma til móts við
viðhorf síðastnefnda hóp-
inn hafa stjórnmálamenn,
bæði á hægri og vinstri
væng stjórnmálanna, lagt
til að þjóðin kjósi um það
hvort ganga eigi til samn-
inga um aðild að Evrópu-
sambandinu. En um hvað
ætti slík kosning að snú-
ast? Væri ekki réttast að
þar væri spurt hvort þú
óttist um að aðrir velji á
endanum eitthvað sem
þér ekki líkar. Með öðrum
orðum þá snerist spurning-
in um hvort þú óttaðist lýð-
ræði eða ekki. Hverskonar
ákvörðun kæmi út úr slíkri
kosningu? Ef niðurstaðan yrði sú
að þjóðin óttaðist ekki lýðræðið þá
mætti túlka hana þannig að taka
skuli ákvörðun um málið reista á
rökum. Að öðrum kosti væri niður-
staðan sú að þjóðin vildi láta óttann
stjórna sér, hún teldi rétt að leita
ekki upplýsinga. Val af þessu tagi
getur engan veginn talist til upp-
lýstrar ákvarðanatöku og er óboð-
legt lýðræðisþjóð.
Við teljum að umtalsverð líkindi
séu til þess að Evrópusambands-
aðild væri gæfuspor fyrir íslenska
þjóð. Við erum sammála um að
mikil vægt sé að afla betri upplýs-
inga um málið með aðildarviðræð-
um og að niðurstaðan skuli borin
undir þjóðina til samþykktar eða
synjunar í lýðræðislegum kosn-
ingum. Við höfum ásamt tæplega
15.000 öðrum undirritað yfirlýsingu
þessa efnis á heimasíðunni www.
sammala.is í þeim tilgangi að hvetja
stjórnvöld til þess að ganga óhrædd
til aðildarviðræðna og þjóðina til að
ganga óhrædd til kosninga.
Við teljum brýnt að skoða alla
kosti sem gætu leitt til endurnýj-
aðs stöðugleika og hagsældar á
Íslandi. Látum ekki óttann við lýð-
ræðið koma í veg fyrir að þjóðin
taki afstöðu til þessa mikilvæga
máls.
Haraldur Flosi er lögfræðingur og
Kristín forstjóri.
Óttinn við lýðræðið
KRISTÍN
PÉTURSDÓTTIR
HARALDUR FLOSI
TRYGGVASON
Sami ótti setur lýðræðishalla
á íslenskt samfélag, því sumir
virðast reiðubúnir til að berjast
gegn aðildarviðræðum á
þessum grundvelli. Sú afstaða
kemur í veg fyrir að þjóðin geti
kosið um málið.
sumarferdir.is
Rimini
– nýr áfangastaður á Ítalíu
Ekta ítalskur matur
Ítölsk menning
Frábært strandlíf
Stutt til Feneyja
Einstök gestrisni
UMRÆÐAN
Inga Rut Ingadóttir, Lena Sólborg
Valgarðsdóttir og Steinunn Erla Sigur-
geirsdóttir skrifa um leikskólastarf
Mikil umræða hefur verið í þjóðfélag-inu og á Alþingi um Barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Rætt hefur verið
um Barnasáttmálann í tengslum við lög-
festingu hans hér á landi og nýleg mál
þar sem börn voru beitt líkamlegum refs-
ingum eða ofbeldi. Í námi okkar höfum
við unnið verkefni sem lýtur að innleið-
ingu þróunarverkefnis í leikskóla og var
ákveðið að taka Barnasáttmálann fyrir
sem viðfangsefni. Lítið efni er til um
kennslu eða fræðslu um Barnasáttmálann
og réttindi barna og það sem til er miðast
oft við eldri börn. Því var talsverð áskor-
un að vinna með efnið. Í 42. grein Barna-
sáttmálans kemur fram að þau ríki sem
samþykkja sáttmálann skuldbindi sig til
að kynna hann fyrir börnum og fullorðn-
um. Því ákváðum við að skoða hvernig
hægt væri að kynna börnum á leikskóla-
aldri réttindi þeirra og reyna að finna
hvaða leiðir væri best að fara í vinnu með
Barnasáttmálann.
Markmið með vinnu um réttindi
Markmið með vinnu með Barnasáttmál-
ann á leikskólum er að börnin velti fyrir
sér réttindum sínum, tjái sig og verði fær
um að segja sína skoðun án þess að særa aðra.
Mikilvægt er að fjalla um ábyrgðina sem fylg-
ir því að segja það sem manni finnst, það er ekki
hægt að segja allt sem manni sýnist.
Þetta er liður í því að styrkja barnið sem
einstakling og félagsleg færni þess eykst.
Vinnu með Barnasáttmálann er hægt að
tengja vinnu með gildi eins og ábyrgð,
umburðarlyndi og réttlæti og einnig lífs-
leikni. Ekki hefur skapast meiri umræða í
þjóðfélaginu en nú um gömlu, góðu gildin.
Sáttmálinn verður 20 ára í nóvember og
þá er stefnt að því að lögfesta hann og því
kjörið tækifæri að byrja núna að taka upp
Barnasáttmálann í leikskólum.
Af hverju Barnasáttmálinn?
Af hverju að vinna með Barnasáttmál-
ann? Jú það er mikilvægt að börn byrji
strax í leikskóla að tjá sig, segja sínar
skoðanir og venjist þannig lýðræðislegum
starfsháttum. Lýðræði lærist ekki á því
að fylgjast með heldur með því að vera
virkur þátttakandi. Með fræðslu okkar
erum við að byggja upp lýðræðislega
hugsun hjá börnunum þar sem þau eru
þátttakendur í lýðræðislegu þjóðfélagi.
Þau þurfa að vita að framlag þeirra skipti
máli og það sé þeirra réttur. Því skulum
við tryggja börnum farveg fyrir þetta í
leikskólum landsins.
Kynning á þróunarverkefnum útskrift-
arnema verður í Bratta, fyrirlestrarsal
Menntavísindasviðs Háskóla Íslands,
föstudaginn 15. maí og hefst hún kl. 9.
Eftir það verður hægt að skoða verkefni
nema í Fjöru, matsal skólans, og kynna
sér enn betur vinnu þeirra.
Höfundar eru útskriftarnemar í leikskólakennara-
fræðum við Háskóla Íslands.
Barnasáttmálinn í leikskólastarfi
STEINUNN ERLA
SIGURGEIRSDÓTTIR
LENA SÓLBORG
VALGARÐSDÓTTIR
INGA RUT
INGADÓTTIR