Fréttablaðið - 18.05.2009, Qupperneq 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Eldhúsið er mitt uppáhaldshorn.
Mig hafði lengi dreymt um svart
eldhús með háglansáferð og lét
mér einhvern tíma detta í hug að
mála eldhúsið mitt svart en það
vakti ekki mikla lukku hjá vinum
og vandamönnum, sem þótti þetta
brjálæðisleg hugmynd. Þegar ég
skoðaði þessa íbúð þá réð eldhús-
ið úrslitum,“ segir Sólveig Péturs-
dóttir bókavörður, og bætir við að
auðvelt sé að þrífa eldhúsið.
„Ég er mun hrifnari af þessu eld-
húsi svona heldur en ef það væri
bara hvítt. Allir litir njóta sín og
einnig er eitthvert japanskt yfir-
bragð sem ég er hrifin af. Skær-
ir litir á móti svörtu eru sérstak-
lega fallegir,“ segir Sólveig. „Mér
líður voðalega vel í eldhúsinu og í
íbúðinni sem ég flutti í fyrir tæpu
ári síðan og er afskaplega heima-
kær.“
Í eldhúsinu eru stórir glugg-
ar sem hleypa mikilli birtu inn
í rýmið og gegnir það líka hlut-
verki borðstofu. „Þetta er vagga
heimilisins. Þarna sitjum við og
borðum, lærum og gerum allt sem
gera þarf. Opið er inn í stofuna þó
að vísu sé smá veggur sem skilur
að eldhús og stofu, þetta er alveg
eins og ég vil hafa það. Við erum
með ylströnd á móti okkur, fínan
og skjólgóðan pall þannig að hér
er gott að vera. Bara fuglasöngur
og kerið,“ útskýrir hún ánægð en
Sólveig býr í Sjálandshverfinu í
Garðabæ.
Sólveig viðurkennir að hún hafi
gaman af litlum hlutum og nýtur
þess að dúlla við heimilið. „Þetta
eru oft svolítið óhefðbundnir hlut-
ir sem ég heillast af, skemmtilegar
myndir og sniðugt dót. Síðan þarf
ég að hafa útvarp nálægt mér í eld-
húsinu og þykir óskaplega vænt
um hrærivélina mína þannig ég
er svolítil dundukella í mér,“ segir
hún og brosir. „Ég les hönnunar-
blöð og geri mér kaffi latte, hef
gaman af búðum eins og Kokku
og skoða þar eldhúsáhöld og annað
smálegt.“ hrefna@frettabladid.is
Hjartað slær í eldhúsinu
Svört eldhúsinnrétting með háglans hafði lengi verið draumur Sólveigar Pétursdóttur bókavarðar. Þrátt
fyrir ýmsar úrtölur lét hún loks drauminn rætast þegar hún flutti og sér svo sannarlega ekki eftir því.
Sólveig er ánægð með svarta eldhúsið sem uppfyllir gamlan draum. „Ég er eldhúskona fram í fingurgóma, geri mikið af kaffi latte
og hef gaman af að fá fólk í mat, en ég er svokallaður hamfarakokkur og nota uppskriftir ekki mikið,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STYRKIR voru afhentir úr Húsverndarsjóði Reykjavíkur á dög-
unum. Hæsta styrkinn fékk Kirkjutorg 4, rúmar 1,6 milljónir króna.
Hlutverk sjóðsins er að veita styrki til endurgerðar eða viðgerða á
húsnæði eða öðrum mannvirkjum í Reykjavík, sem hafa sérstakt
varðveislugildi af listrænum eða menningarsögulegum ástæðum.