Fréttablaðið - 18.05.2009, Blaðsíða 18
„Framsæknustu arkitektar þessa
tíma í arkitektúr eins og Guðjón
Samúelsson og Gunnlaugur Hall-
dórsson lögðu allt sitt í að hanna
þarna heilsusamlegt og fallegt
umhverfi fyrir alþýðufólk. Mér
finnst það stórkostleg hugsjón,“
segir Pétur um verkamannabústað-
ina við Hringbraut sem risu milli
1930 og 1940 og mörkuðu tímamót
í byggingarsögu borgarinnar.
Pétur telur bústaðina hafa stað-
ist vel tímans tönn og segir þá
eftirsótta að búa í. „En til að átta
sig á gildi þeirra fyrir fólkið sem
þar flutti inn í upphafi þarf að lesa
um aðbúnaðinn í Pólunum.
Þetta var til dæmis í fyrsta sinn
sem baðherbergi sáust í íbúðum hjá
verkafólki. Þau voru þvílíkur lúxus
að fólk bauð vinum og kunningjum
heim til sín á sunnudögum í bað.
Auðvitað var hugað mjög að hag-
kvæmni við gerð húsanna, hver fer-
sentimetri var nýttur og það þótti
of dýrt að hafa svalir. En það var
tekið tillit til sólaráttar og skjól-
myndunar. Þetta var manneskju-
leg byggð og miklu skynsamlegri
en margt af því sem hefur verið
gert á síðustu árum.“ Hagkvæmar
og notalegar íbúðir hafa ekki þótt
spennandi viðfangsefni í arkitekt-
úr að undanförnu að sögn Péturs.
„Fyrir nokkrum árum var haldin
hugmyndasamkeppni um félags-
legar íbúðir framtíðarinnar og það
var mjög lítil þátttaka,“ upplýsir
hann. „Tíðarandinn var þannig.“
gun@frettabladid.is
Vinum boðið heim í bað
Stórir draumar um íbúð alþýðumannsins nefndist erindi Péturs H. Ármannssonar arkitekts á málþingi
sem haldið var vegna áttatíu ára laga um verkamannabústaði. Hann fór í heimsókn á Hringbrautina.
Núnir ljósarofar eftir áratuga notkun.
Upprunalegur eldhúsbekkur í einum af
verkamannabústöðunum. Eins og sjá
má er hann bæði hirsla og hægindi.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Manneskjuleg byggð og miklu skynsamlegri en margt af því sem hefur verið gert á síðustu árum,“ segir Pétur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Garðyrkjufólk fyllist eldmóði á
vorin enda ótal verkefni að glíma
við. Eitt af því er að bera á gras-
flötina ef hún er fyrir hendi. Gott
er að gera það nokkrum sinnum
framan af sumri til að fá ræktar-
lega lóð og nú er tímabært að gefa
henni fyrsta skammtinn. Kjörið
er samt að kantskera beðin áður.
Nauðsynlegt er líka að fylgjast
með veðurspánni og bera á þegar
rigning er í kortunum því í mikl-
um þurrki er hætta á að áburður-
inn brenni grasið.
Sums staðar er mosi til vand-
ræða. Þá er magnesíumkalkið
hentugt efni. Einföld og ódýr lausn
til að minnka mosavöxtinn er að
bera það á þrisvar yfir sumarið.
- gun
Lóðinni gert til góða
Grasið verður grænt og þétt ef það fær góðan áburð. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
Á vefsíðunni www.houseof3.
com má kaupa hina fjölbreytt-
ustu vegglímmiða. Slíkar vegg-
myndir hafa verið vinsælar
undanfarin ár enda oft auð-
veldara að líma þær á vegg-
ina en að veggfóðra. Þá er líka
einfaldara að rífa límmiðana af
veggjunum þegar fólk er orðið
leitt á þeim og vill breyta til.
Hér má sjá það nýjasta
frá vefversluninni en vegg-
myndirnar eru ekki aðeins
svartar heldur fylgja þeim glitr-
andi steinar sem lífga sannar-
lega upp á ljósakrónurnar og
rammana.
Glitrandi ljósakróna á vegg
VEGGLÍMMIÐAR SEM STIRNIR Á.
HITABLETTIR á viðarborðum eru hvimleiðir. Gamalt húsráð er
að leggja hvítt handklæði, ekki of þykkt, yfir hreint borðið. Síðan er
straujað yfir blettina með gufustraujárni. Passa þarf að þurrka alla
gufu sem eftir verður strax. Upplýsingar af husrad.wordpress.com.
Borgartúni 25 | Reykjavík | Sími 570 4000 | raudakrosshusid@redcross.is | www.raudakrosshusid.is | Opið virka daga kl. 12-17
VIKUNA 18. – 22. MAÍ
Sálrænn stuðningur - Fjallað er um áhrif alvarlegra
atburða á andlega líðan fólks. Tími: 12.30-14.00.
Prjónahópur - Við ætlum að koma saman, prjóna, hekla,
fá okkur kaffi og hafa það notalegt. Tími: 13.00-15.00.
Gítarnámskeið fyrir byrjendur - Láttu drauminn rætast
og dustaðu rykið af gítarnum. Sex vikna námskeið. Farið
verður í undirstöðuatriði vinnukonugripanna. Annar tími
af sex. Skráning nauðsynleg. Tími: 15.00-16.00.
Ókeypis námskeið og ráðgjöf
Einkatímar í söng - Láttu drauminn rætast. Við bjóðum
upp á 10 söngtíma, hver tími er þrjátíu mínútur, kennt er
tvisvar í viku þriðjudaga og föstudaga. Takmarkaður fjöldi,
skráning nauðsynleg. Tími: 12.00-14.00.
Qi – Gong - Gunnar Eyjólfsson leikari kynnir Qi Gong sem
er aðferð mannsins til öflunar, varðveislu og dreifingar orku
um líkamann. Iðkun Qi Gong á uppruna sinn í Kína og hefur
þróast þar í aldanna rás. Undirstaðan er agaður líkams-
burður, öndun og hugsun eða einbeitni. Tími: 12.00-13.00.
Bókhaldsaðstoð - Það er mikilvægt að hafa yfirsýn yfir
fjármálin og góð leið til þess er að færa heimilisbókhald.
Fáðu aðstoð fagmanneskju. Tími: 13.00-15.00.
GPS staðsetningatæki - Hvernig virka GPS tæki og hin
nákvæmari DGPS tæki? Þátttakendum er kennt að nýta
tækin og GPS tölvuforrit. Tími: 13.30-15.00.
Áhugasviðskönnun - Ef þú hefur ákveðið starf eða nám
í huga, getur könnunin staðfest hugmyndir þínar. Skráning
nauðsynleg. Tími: 13.00-14.30.
Vinir í bata, tólf spora kerfið - Hópar sem vinna eftir tólf
spora kerfinu koma saman í kirkjunum til að vinna að
tilfinningalegum bata. Gangleg kynning. Tími: 15.00-16.00.
Barnið komið heim - Námskeið fyrir verðandi og ný-
bakaða foreldra sem vilja undirbúa sig fyrir eitt mikilvægasta
verkefni lífsins - að ala upp barn. Fyrsti hluti af þremur.
Skráning nauðsynleg. Tími: 16.00-20.30.
Föstudagurinn 22. maí
Mánudagurinn 18. maí
Þriðjudagurinn 19. maí
Miðvikudagurinn 20. maí
Fimmtudagurinn 21. maí
,,Hafðu það gott" - Hamingjudagskrá fyrir konur sem vilja
byggja sig upp með fyrirlestrum og léttum æfingum. Dans,
söngur, slökunarbingó og glaðningur. Sirrý félags- og fjöl-
miðlafræðingur og Bjargey Aðalsteinsdóttir íþróttafræðingur
fjalla um hvað við getum gert til að fjölga hamingjuhormón-
um og láta okkur líða vel. Námskeiðið er í tveimur hlutum,
síðari hlutinn verður 29. maí. Skráning nauðsynleg.
Tími: 13.00-16.00.
Tölvuaðstoð - Persónuleg aðstoð. Tími: 13.30-15.30.
Bókaklúbbur - Spjallað um bókina „Tár gírafans" eftir
Alexander McCall Smith. Tími: 14.00-15.00.
Slökun og öndun - Kennsla í slökun og djúpöndun.
Allir velkomnir. Tími: 16.30-17.00.
Lokað
Félagsvist og spil - Lauflétt skemmtun í lok vikunnar, já ég
set tvistinn út og ég breyti í spaða. Léttar veitingar í boði
hússins. Tími: 12.30-14.30.
Jóga - Viltu prófa jóga? Nú er tækifærið. Tími: 14.00-15.00.
Hláturjóga - Viltu losa um spennu og fylla lífið af hlátri og
gleði? Hláturjóga getur hjálpað til við að auðga lífið.
Tími: 15.30-16.30.