Fréttablaðið - 18.05.2009, Page 24
18. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR8 ● fréttablaðið ● sumarbústaðir
Hjónin Margrét Jónsdóttir
og Jakob Jakobsson hafa
átt margar af sínum ljúfustu
stundum í Sunnuhlíð, sínu
öðru heimili á sumrin.
Þegar blaðamann og ljósmyndara
Fréttablaðsins ber að garði hjá
hjónunum Margréti Jónsdóttur,
fyrrverandi fréttamanni, og Jakobi
Jakobssyni, fiskifræðingi og fyrr-
verandi forstjóra Hafrannsókna-
stofnunar, mæta þau húsbóndan-
um þar sem hann ýtir á undan sér
hjólbörum. Hann er á leið að bera
úrgang á melana utan við girðingu
sumarhúss þeirra.
Um árabil hirtu þau Margrét og
Jakob hey af hinum ýmsu lóðum í
Reykjavík og báru á melana. Í dag
eru þau ekki alveg jafn stórtæk en
færa þó ævinlega allan úrgang af
eigin lóð í Reykjavík upp eftir. Og
húsfreyjan tók líka fjallið
sem gnæfir yfir bústaðn-
um í fóstur fyrir tuttugu
árum. Hún fékk ýmsa til
að leggja sér lið við að
græða fjallið. Á þeim
tíma var það svart
en nú er það farið að
grænka mikið, sem
auk græðslunnar er
því að þakka að fellið
hefur verið friðað.
Sunnuhlíð er skammt frá
Reykjavík. Þegar þangað er komið
verður maður borgarinnar hins
vegar ekki var. Það kunna þau hjón
vel að meta og verða fegin vorinu
ár hvert, þegar tími er kominn
fyrir sveitina. „Við erum sveita-
börn og eigum voðalega erfitt með
að vera á malbikinu á sumrin,“
segir Margrét. Jakob tekur
undir það og bætir við: „Og
ég er nú sjómaður líka.“
Jakob eignaðist bústað-
inn fyrir tæplega fjörutíu
árum. Húsið er þó eldra
og hluti þess er síðan
fyrir stríð. Þann hluta
endurbyggðu þau
hjónin fyrir um
tuttugu árum í
nákvæmri eftir-
mynd hins eldri.
Byggingarefnið
var þó annað,
en sá gamli var samansettur úr
kassafjölum, klæddum með tjöru-
pappa og bárujárni, eins og þá tíðk-
aðist. Nýrri hluti hússins er síðan
frá 1950.
Oft hefur verið líflegt á sumar-
heimili þeirra hjóna, húsið fullt af
börnum og barnabörnum og gest-
ir velkomnir. Sjónvarp og tölv-
ur fá hins vegar ekki að koma inn
fyrir hússins dyr. Þau hjónin kjósa
heldur félagsskap hvor annars, ná-
granna sinna og vina. Þau vilja þó
ekki kannast við að slappa lítið af.
„Nei, við erum óttalegir letingj-
ar, njótum helst að sitja hér inni
við arininn og drekka kaffi,“ segir
Margrét.
Ekki var þó leti hjónanna meiri
en svo þennan dag, að nú átti að
fara í það verk að bera öll húsgögn
út á hlað og þrífa húsið í hólf og
gólf. Þannig hefst hvert vor hjá
þeim Jakobi og Margréti. - hhs
Sveitafólk sem tók
heilt fjall í fóstur
Jakob ber úrgang á á melana.
Gatið úr stofunni inn í eldhúsið er vinsælt hjá börnum, enda tilvalið fyrir ýmsa leiki.
Í matjurtagarðinum rækta þau hjónin grænmeti og hinar ýmsu kryddjurtir.
Margrét gerir vettlinga með vattarsaumi,
fornri saumaaðferð sem fáir þekkja í dag.
Gamall lampi speglast í blómaspegli.
Margrét
með hluta
af kassafjöl-
unum sem
notaðar
voru í gamla
bústaðnum.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/G
VA
Sími: 586 8080 • Kjarna • Þverholti 2 • 207 Mosfellsbær • www.fastmos.is
10 ár
í Mosfellsbæ
Mosfellsbæ Einar Páll Kjærnested,lögg. fasteignasali
Sumarhús við Klettsfl öt í Húsa-
felli. 22,2 fm sumarhús + ca. 8
fm svefnloft (ekki skráð), heitt
vatn, rafmagn, heitur pottur og
sólpallur með skjólveggjum.
Húsið var allt tekið í gegn að
innan vorið 2007 og getur allt
innbú fylgt. Sundlaugin, golfvöll-
urinn og verslunin í mjög stuttu
göngufæri. Öll skipti skoðuð (bíll, fellihýsi, hjólhýsi)
V. 7,9 m. 4563
Klettsfl öt - Húsafelli
Mjög fl ottur 112,8 fm sumar-
bústaður í byggingu við
Herjólfsstíg 18 í landi Ásgarðs í
Grímsnesi. Húsið er fullfrágengið
að utan, klætt með liggjandi
viðarklæðningu. Stór timbur-
verönd að sunnan og vestan-
verðu með heitum potti. Að
innan er húsið fulleinangrað og
rakavarið, hitalagnir eru komnar ísteyptar í plötu. Flott tækifæri
fyrir laghentan einstakling að koma sér upp glæsilegum bústað
í sumar. V. 21.9 m. 3504
Herjólfsstígur - Ásgarðslandi
50,2 fm sumarbústaður ásamt
bátaskýli rétt við Meðalfellsvatn
í Kjós. Húsið stendur á 1.600 fm
gróinni lóð á fallegum stað.
Í húsinu er kalt vatn og rafmagn.
Töluvert af innbúi fylgir með
bústaðnum. Bústaðnum fylgir
bátaskýli og bátur við
Meðalfellsvatn. V 11,9 m. 3760
Meðalfellsvegur - m/bátaskýli
SUMARHÚS
Auglýsingasími
– Mest lesið
6