Fréttablaðið - 18.05.2009, Page 26
18. MAÍ 2009 MÁNUDAGUR10 ● fréttablaðið ● sumarbústaðir
Á þeim tíma er sólin aldrei sest flykkjast Ís-
lendingar í sveitasæluna. Margir eiga eigin bú-
staði en flestir reyna að leigja þá í eina til tvær
vikur yfir sumarið.
Heilmikið umstang fylgir því að flytja heila
fjölskyldu út á land. Pinklum og töskum er troðið í
bílinn og svo er rennt af stað. Til að gera bústaðadvölina sem
ánægjulegasta er gott að huga að smáatriðunum. Börnin þurfa að
hafa eitthvað við að vera og hinir fullorðnu þurfa að láta fara vel
um sig. Hér má sjá nokkra hluti sem gera sumarbústaðaferðina að
notalegri upplifun.
Góðir dagar í
bústaðnum
Tími sumarbústaðaferða gengur senn í garð. Gott er
að skipuleggja sig vel áður en lagt er af stað og hafa
með sér nokkra hluti sem auka á notalegheitin.
Letileg sumarbústaðatilvera
nær hámarki í hengirúmi. Þetta
fæst í Ikea á 7.990 krónur.
Sólina er gott að sleikja í sólstól sem þessum.
Hann er á hjólum, er stillanlegur og með útdragan-
legum bakka. Fæst í Ilvu og kostar 34.900 krónur.
Púðar eru þarfaþing og auka á nota-
legheitin. Þessir fást í Ikea á 1.490
krónur stykkið.
Fátt er sveitalegra en bútasaumsteppi.
Þetta fæst í Ilvu og kostar 9.900 krónur.
Badminton er afþreying bæði fyrir
börn og fullorðna. Þetta badmin-
tonsett fæst í Rúmfatalagernum
á 399 krónur.
Heitir
sumardagar
kalla á kalda
hressingu á borð
við íspinna. Þessi
íspinnabox fást í Ikea á
295 krónur.
Börnin skemmta sér vel í
sætu tjaldi sem þessu. Það
fæst í Rúmfatalagernum,
fæst í nokkrum litum og
kostar 1.690 krónur.
FASTEIGNA-
MARKAÐURINN
Jón Guðmundsson, sölustj. og lögg. fast.sali. Guðmundur Th. Jónsson, lögg. fast.sali.
ÓÐINSGÖTU 4, SÍMI 570 4500, OPIÐ VIRKA DAGA KL. 9–17.
Netfang: fastmark@fastmark.is - www.fastmark.is
Óskum eftir öllum
stærðum og gerðum
sumarhúsa og
sumarhúsalóða á
söluskrá.
Mjög fallegur og hlýlegur 42 fm sumarbústaður í Hraunborgum í Grím-
snes og Grafningshreppi.Lóðin er 0,5 ha leiguland, í góðum trjálundi
,mikill veðursæld. Húsið er í góðu standi. Í húsinu eru 2 svefnher-
bergi, og baðherbergi með nýju salerni og sturtu.Eldhúsið og stofan
eru saman í rými ný eldhúsinnrétting. Nýr góður pallur er við húsið
sem snýr í suðurátt um 50fm að stærð. Rafmagnspottur er við húsið
.Geymsluskúr er á lóð og er hann 9 fm, en hann ekki fullbúin að utan
. Rafmagn er í húsinu og 200 lítra hitakútur.
Allar upplýsingar veitir: Hannes Steindórsson s699-5008
Hannes Steindórsson kynnir:
Auglýsingasími
– Mest lesið
8