Fréttablaðið - 18.05.2009, Qupperneq 33
MÁNUDAGUR 18. maí 2009 17
sjálfsskoðun í námi með þessum
hætt er eflaust mjög nýtt fyrir
mörgum,“ bendir hún á.
Undirbúningur að náminu hófst
fyrir um tveimur árum. Edda
hefur komið að honum sem full-
trúi á Þjónustumiðstöð Miðborgar
og Hlíða ásamt öðrum sem í sínu
starfi tengjast þessum málaflokki
með einhverjum hætti. Hópurinn
hefur hist reglulega á tímabilinu
til að þróa og skipuleggja námið í
samstarfi við ýmsa sérfræðinga,
sem hann hefur kallað til. Edda
segir að púlsinn á málefnum inn-
flytjenda hafi þar af leiðandi verið
tekinn á víðtækum grunni og þarf-
irnar greindar. „Það hefur verið
sérlega ánægjulegt að fá tækifæri
til þess að þróa þessa námsbraut,“
segir hún.
Afrakstur vinnunnar er eins og
áður sagði ný námsbraut í málefn-
um innflytjenda á meistarastigi.
Um er að ræða tveggja missera
45 (ECTS) eininga nám. Það verð-
ur einnig hægt að taka í fjárnámi.
Allar nánari upplýsingar er að
finna á vef Endurmenntunar Há-
skóla Íslands, www.endurmennt-
un.is.
vala@frettabladid.is
UM MÁLEFNI INNFLYTJENDA
rýnni þörf
NÁM Í SJÁLFSSKOÐUN Edda
Ólafsdóttir félagsráðgjafi og
einn af skipuleggjendum náms í
málefnum innflytjenda.
Nú eru gráðaostur og piparostur fáanlegir í handhægum plastöskjum. Sparaðu
tíma og fyrirhöfn við að rífa niður þessa sígildu sósuosta og galdraðu fram
fljótandi meistaraverk.
Við sósugerð er mikilvægt að hræra alltaf með
jöfnum hraða og mynda áttu með sósupísknum.
Þannig næst árangur. www.ms.is/gottimatinn
Sósukokkar athugið!
KJÚKLINGUR
6 stk. kjúklingabringur
3 dl sýrður rjómi
2 msk. sætt sinnep
1 msk. dijon sinnep
3 dl kornflögur
salt og nýmulinn svartur pipar
SÆTKARTÖFLUGRATÍN
1 kg sætar kartöflur
1 stk. meðalstór laukur
100 gr. beikon
4 dl rjómi
100 gr. piparostur rifinn
200 gr. gratínostur
salt
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-0
1
9
2
nýjung
á pizzun
a,
í sósuna
í pasta
Kjúklingur
með sinnepssósu
og sætkartöflugratíni
Takið skinnið af bringunum og setjið í
smurt form kryddið með salti og nýmuldum
svörtum pipar. Blandið saman sýrðum rjóma og sinnepi
og smyrjið yfir kjúklinginn. Stráið því næst muldum kornflögum
yfir svo þær hylji kjúklinginn vel . Bakið við 185° í u.þ.b. 30 mín eða þar til
bringurnar eru gegnumsteiktar. Berið fram með sætkartöflugratíni og fersku brokkolí.
Skrælið og skerið sætar kartöflur í teninga og saxið laukinn. Setjið í eldfast mót. Steikið
beikon á pönnu og hellið rjóma yfir, bætið í rifnum piparosti, blandið vel saman, hellið
rjómablöndunni yfir kartöflurnar og stráið loks gratínosti yfir. Bakið við 175° í 30–40 mín.
Aðgengi að Garðskagavita hefur
verið bætt til muna.
Garðskagaviti er vinsæll áfanga-
staður ferðamanna. Undanfarið
hefur verið unnið að því að gera að-
komuna að gamla vitanum aðgengi-
legri fyrir alla. Ferðamálasamtök
Suðurnesja létu vinna verkið fyrir
styrk frá Umhverfissjóði Ferða-
málastofu.
Ætlunin er að lagfæra aðgengi
að 20 ferðamannastöðum á Reykja-
nesi, en það er opinber stefna í
sveitarfélaginu að gera sem flesta
áfangastaði ferðamanna aðgengi-
legri fyrir alla. Næsta verkefni er
að bæta aðgengi að Gunnuhver á
Reykjanesi og að Valahnjúk.
Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamála-
stjóri og Oddný Harðardóttir bæjar-
stjóri klipptu á borðann á dögunum
með aðstoð Róberts Arons og opn-
uðu þannig aðgengi allra að Garð-
skagavita. - sg
Allir komast í
vitann sem vilja
VINSÆLL ÁFANGASTAÐUR
Erlendum ferðamönnum þykir
eftirsóknarvert að heimsækja
Garðskagavita. Aðgengið hefur verið
bætt til muna.
STÓRSKÁLD Nú eru 120 ár liðin frá
fæðingu Gunnars Gunnarssonar. Í tilefni
af því verður málþing helgað skáldinu
haldið í Þjóðarbókhlöðunni í dag.
MYND/GUNNARSSTOFNUN
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/A
N
TO
N