Fréttablaðið - 18.05.2009, Qupperneq 35
MÁNUDAGUR 18. maí 2009
TÖKUM NOTUÐ VEL MEÐ FARIN HJÓL UPPÍ NÝ
SKIPTIMARKAÐUR
MEÐ NOTUÐ REIÐHJÓL
19.995
44.995
64.995
BARNAHJÓL
VERÐ FRÁ
AÐ TALA FYRIR ÍSLANDS HÖND
Málþing 20. maí í Salnum Kópavogi
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
9
08
35
Að tala fyrir Íslands hönd er yfirskrift málþings sem verður haldið í Salnum í Kópavogi
miðvikudaginn 20. maí kl. 8.15-12.00.
Málþingið er á vegum hinna ýmsu samtaka atvinnurekenda, Útflutningsráðs, Almannatengslafélags
Íslands og Ferðamálastofu. Innlendir og erlendir fyrirlesarar fjalla um orðspor Íslands, fortíð og framtíð.
Kynntar verða niðurstöður úr viðhorfsrannsókn sem Útflutningsráð og Ferðamálastofa hafa látið
gera í Danmörku, Þýskalandi og Bretlandi um viðhorf almennings til Íslands.
Meðal þeirra sem flytja erindi eru David Hoskin frá Eye-for-Image í Danmörku, Geoff Saltmarsh
frá The Saltmarsh Partnership í Bretlandi, dr. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra í Ósló,
Andrés Jónsson, formaður Almannatengslafélags Íslands og Urður Gunnarsdóttir, blaðafulltrúi
utanríkisráðuneytis.
Hafa atburðir síðustu mánaða skaðað orðspor okkar erlendis? Hafa skilaboð okkar til erlendra
fjölmiðla og umheimsins verið skýr? Hefur verið höggvið skarð í ímynd okkar og hefur viðhorf
almennings til Íslands og Íslendinga hjá helstu viðskiptaþjóðum okkar breyst?
Skráning og nánari upplýsingar um dagskrá málþingsins eru á vef Útflutningsráðs,
www.utflutningsrad.is
Hrafnhildur Arnardóttir er komin
heim og opnaði sína fyrstu sýningu
hér á landi í galleríi i8 á laugardag-
inn en sýningin er framlag þeirra
í i8 til Listahátíðar. Hrafnhildur
er búsett í New York þar sem hún
starfar jöfnum hönd undir nafninu
Shoplifter − Búðarþjófur.
Auk þess að hafa sýnt víða á
alþjóðavettvangi hefur Hrafn-
hildur tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum á landinu hin síðustu ár
og þar hefur hár verið henni hug-
leikinn efniviður. Skemmst er að
minnast plötu Bjarkar Guðmunds-
dóttur, Medúlla, en myndir voru
fyrr á öldum unnar úr mannshári
sem var þá eins og nú söluvara
fátækra kvenna. Margar íslenskar
konur stunduðu það þá að selja hár
sitt, en hár var þá aðallega notað
í hárkollur en líka sem þráður og
efni í vef í myndlist. Þangað sækir
Hrafnhildur hefðina.
Á sýningunni í i8 gallerí verða
til sýnis glæný verk sem sumpart
byggja á þeirri textílhefð sem hún
hefur þróað undanfarin ár en um
leið er greinileg stefna tekin í átt
til upprunans. Hrafnhildur var
menntuð í Myndlista- og handíða-
skólanum gamla og vann þá eink-
um í málverk. Í vinnslu hennar
með vef má sjá greinilegar tilvís-
anir í abstrakthefðir málverks og
teikningar tuttugustu aldar, bæði
expressjónisma, geómetríu og
minimalisma. Margt í áferð verk-
anna minnir á hluta af lífsverki
Ásgerðar Esterar Búadóttur sem
vann sín verk mikið í hár. Hrafn-
hildur vinnur með þessar mód-
ernísku hefðir með skírskotun í
handverk, hönnun og skreytilist.
Á sýningunni verða verk unnin
beint á vegg, lágmyndir, teikning-
ar og ljósmyndir en minnisstæð-
ar eru ljósmyndir sem hún hefur
sýnt hér sem sumar vísuðu beint í
superrealismann.
Í viðtali við Rafskinnu, tímarit
um listir í fyrra sagði hún enda:
„Ég leyfi mér að vaða milli list-
greina og tengi öll mín áhugasvið
og þráhyggju myndlistinni. Ég hef
unun af því að vera á gráu svæði
og hleypa því að sem mér finnst
koma verkunum við, enda er það
í eðli mínu að halda sem flestum
dyrum opnum og rannsaka far-
vegi sem í fljótu bragði virðast
ekki eiga heima í myndlistinni en
smjúga svo þangað á endanum. Ég
get stundum ekkert gert að því,
það er eins og efniviður og hug-
myndafræði velji mann en ekki á
hinn veginn.“
Hrafnhildur Arnardóttir sýndi
síðast hér á landi á sýningum í
Listasafni Reykjavíkur, Pakk-
hús postulanna, 2006 og ID – Lab,
2008. Þá hafa verk hennar verið
mjög sýnileg undanfarið í New
York. Í samstarfi með tónskáldinu
Nico Muhly vann hún að uppsetn-
ingu verks í The Kitchen, 2008,
tók þátt í samsýningunni It’s Not
Your Fault í Luhring Augustine-
galleríinu, sama ár og á nú verk
til sýnis í MOMA-listasafninu sem
hún vann í samstarfi með Assume
Vivid Astro Focus þar sem saman
er stefnt verkum hennar úr hári og
ljósatúbum.
Sýning Hrafnhildar Arnardótt-
ur í i8 gallerí er hluti af dagskrá
Listahátíðar í Reykjavík og sýn-
ingarstjórn er í höndum Markús-
ar Þórs Andréssonar.
pbb@frettabladid.is
Ofið í mannshárið
MyndlistHrafnhildur Arnardóttir er komin heim með ný verk sem hressa áhorfand-
ann eins og jafnan er með verk þessarar skemmtilegu listakonu.
FréttAblAðið/Anton
Auglýsingasími
– Mest lesið