Fréttablaðið - 18.05.2009, Síða 41
MÁNUDAGUR 18. maí 2009 25
570 2400 og fáðu Fyrirtækjaöryggi í áskrift!Hringdu í
Verður góðu
dagsverki stolið
frá þér í nótt?
Kynntu þér öruggara Fyrirtækjaöryggi á öryggi.is
Nýjung í Fyrirtækjaöryggi
Fyrstu 2 mánuðir myndvöktunar fríir*
Tryggðu þér myndvöktun Öryggismiðstöðvarinnar á sértilboði
út maí - með myndvöktun er þitt fyrirtæki öruggara.
Með myndvöktun birtast myndir frá
eftirlitsmyndavélum í vaktmiðstöð Öryggis-
miðstöðvarinnar um leið og boð um óeðlilegar
mannaferðir berast frá öryggiskerfi.
Starfsmenn vaktmiðstöðvar geta þannig fyrr
staðfest innbrot, borið kennsl á innbrotsþjófa
og boðað lögreglu á staðinn.
* Hringdu í síma 570 2400 og kynntu þér
skilmála myndvöktunar.
www.oryggi.is
Enska úrvalsdeildin:
CHELSEA - BLACKBURN 2-0
1-0 Florent Malouda (4.), 2-0 Nicolas Anelka
(59.).
WEST BROMWICH ALBION - LIVERPOOL 0-2
0-1 Steven Gerrard (27.), 0-2 Dirk Kuyt (62.)
BOLTON WANDERERS - HULL CITY 1-1
1-0 Grétar Steinsson (25.), 1-1 Craig Fagan (45.).
EVERTON - WEST HAM UNITED 3-1
0-1 Radoslav Kovac (23.), 1-1 Louis Saha (37.),
2-1 Joseph Yobo (47.), 3-1 Louis Saha (75.).
MIDDLESBROUGH - ASTON VILLA 1-1
1-0 Tuncay Sanli (13.), 1-1 John Carew (56.).
NEWCASTLE UNITED - FULHAM 0-1
0-1 Diomansy Kamara (40.).
STOKE CITY - WIGAN ATHLETIC 2-0
1-0 Ricardo Fuller (68.), 2-0 James Beattie (75.)
TOTTENHAM - MANCHESTER CITY 2-1
1-0 Jermain Defoe (28.), 1-1 Valeri Bojinov (64.),
2-1 Robbie Keane (85.)
MAN UTD - ARSENAL 0-0
STAÐAN:
Man. United 37 27 6 4 67-24 87
Liverpool 37 24 11 2 74-26 83
Chelsea 37 24 8 5 65-22 80
Arsenal 37 19 12 6 64-36 69
Everton 37 16 12 9 53-37 60
Aston Villa 37 16 11 10 53-48 59
Fulham 37 14 11 12 39-32 53
Tottenham 37 14 9 14 44-42 51
West Ham 37 13 9 15 40-44 48
Manchester City 37 14 5 18 57-50 47
Stoke City 37 12 9 16 37-51 45
Wigan Athletic 37 11 9 17 33-45 42
Bolton 37 11 8 18 41-52 41
Blackburn 37 10 10 17 40-60 40
Portsmouth 36 9 11 16 35-55 38
Sunderland 36 9 9 18 31-48 36
Hull City 37 8 11 18 39-63 35
Newcastle 37 7 13 17 40-58 34
Middlesbrough 37 7 11 19 27-55 32
WBA 37 8 7 22 36-67 31
ÚRSLIT
FÓTBOLTI Alan Shearer, stjóri
Newcastle, var brjálaður út í
Howard Webb, dómara leiks New-
castle og Fulham um helgina.
Webb dæmdi af mark sem
Mark Viduka skoraði en sjón-
varpsmyndir sýndu að það var
kannski ekki algjörlega réttur
dómur hjá Webb dómara.
Newcastle tapaði leiknum, 0-1,
og er í fallsæti fyrir loka umferð
deildarinnar. Shearer fylgdi
Webb af velli og öskraði á hann.
Stjórinn hafði ekki róast mikið
þegar hann hitti fjölmiðlamenn í
kjölfarið.
„Við erum gríðarlega von-
sviknir með markið sem var
dæmt af. Ég er búinn að skoða
þetta atvik og það er nákvæm-
lega ekkert að því. Ég er veru-
lega vonsvikinn með þessa dóm-
gæslu,“ sagði Shearer foxillur.
„Ég náði ekki eyrum dómarans
eftir leikinn en ég mun halda
áfram að reyna. Stóru ákvarðan-
irnar hans voru rangar í dag.
Hann verður örugglega sammála
mér um það þegar hann hefur
skoðað atvikin aftur.“
Newcastle er stigi á eftir Hull
en á engu að síður von enda mun
Hull mæta Manchester United
í lokaumferðinni. Meistar arnir
munu reyndar mæta til leiks án
margra sinna sterkustu manna en
ungu leikmennirnir hjá félaginu
hafa sýnt góða takta í vetur. - hbg
Newcastle í vandræðum:
Shearer reiður
út í Webb
REIÐUR Alan Shearer var brjálaður út í
Howard Webb dómara.
NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES
FÓTBOLTI Liverpool rak síðasta nagl-
ann í kistu WBA í gær þegar liðið
vann 0-2 á The Hawthorns. WBA
leikur því í 1. deildinni að ári.
Jonathan Greening, fyrirliði
WBA, sagði að reynsluleysi hefði
orðið liðinu aðallega að falli á þess-
ari leiktíð.
„Það er engin rétt og engin röng
leið til þess að spila fótbolta. Við
spilum ákveðinn fótbolta og höfum
spilað ágætan fótbolta á köfl-
um. Reynsluleysi í bland við van-
þroska varð okkur líklega að falli.
Við sýndum það enn og aftur í dag
þegar við gefum mark á meðan við
erum inni í leiknum á fullu,“ sagði
Greening.
Hann hrósaði stuðningsmönnum
félagsins sérstaklega en þeir hafa
staðið þétt við bak liðsins í vetur
og sungu um að liðið kæmi strax
upp aftur eftir að fallið varð að
veruleika.
„Þeir hafa verið stórkostlegir í
allan vetur. Við erum búnir að vera
á botninum síðan í október en það
hefur engu máli skipt. Stuðningur-
inn hefur alltaf verið jafn frábær.
Við reyndum að framkvæma stór-
kostlegan flótta en það lá ekki
fyrir okkur að þessu sinni,“ sagði
Greening.
Greening sagðist vonast til þess
að Tony Mowbray yrði áfram með
liðið og hjálpaði því að komast
aftur í hóp hinna bestu sem fyrst.
„Við njótum þess allir að spila
undir hans stjórn. Okkur líkar
við þann bolta sem hann vill að
við spilum. Að sjálfsögðu ræður
stjórnin því hvort hún heldur
honum við stjórnvölinn. 1. deildin
er hörkudeild en við verðum að
láta slag standa og reyna að kom-
ast strax upp aftur,“ sagði þessum
fyrrverandi leikmaður Manchester
United. - hbg
WBA fyrsta liðið til þess að falla úr úrvalsdeildinni:
Reynsluleysið felldi okkur
BEINT UPP AFTUR Stuðningsmenn WBA hafa ekki gefist upp þó svo að liðið þeirra sé
fallið um deild. NORDIC PHOTOS/GETTY IMAGES