Fréttablaðið - 18.05.2009, Síða 43
MÁNUDAGUR 18. maí 2009 27
Pepsi-deild kvenna:
ÍR-Valur 1-10
Bryndís Jóhannesdóttir - Dagný Brynjarsdóttir
3, Katrín Jónsdóttir 2, Helga Sjöfn Jóhannsdóttir,
Hallbera Guðný Gísladóttir, Anna Garðarsdóttir,
Kristín Ýr Bjarnadóttir, sjálfsmark.
Afturelding/Fjölnir-Fylkir 1-3
Margrét Þórólfsdóttir - Danka Podovac, Rúna Sif
Stefánsdóttir, Anna Björg Björnsdóttir.
KR-Keflavík 6-0
Hrefna Huld Jóhannesdóttir 6.
Breiðablik-Stjarnan 0-1
Björk Gunnarsdóttir.
GRV-Þór/KA 0-3
Rakel Hönnudóttir 2, Mateja Zver.
STAÐAN:
Fylkir 3 3 0 0 14-2 9
Stjarnan 3 3 0 0 8-1 9
Valur 3 2 0 1 15-5 6
Þór/KA 3 2 0 1 15-6 6
Breiðablik 3 2 0 1 9-4 6
KR 3 1 0 2 7-4 3
Aftureld/Fjöln. 3 1 0 2 4-9 3
GRV 3 1 0 2 3-8 3
Keflavík 3 0 03 1-15 0
ÍR 3 0 0 3 2-24 0
ÚRSLIT
HANDBOLTI Fari svo að Aron
Kristjánsson taki tilboði danska
félagsins Århus GF mun Sigur-
bergur Sveinsson fylgja honum
til Danmerkur, að því er heimild-
ir fréttastofu Stöðvar 2 herma.
Sigurbergur stefndi framan
af vetri að komast í atvinnu-
mennsku en ákvað að skuldbinda
sig Haukum áður en tímabilið
kláraðist.
Forsendur munu aftur á móti
breytast nokkuð ef Aron fer frá
liðinu og yrði það mikið áfall
fyrir Íslandsmeistarana að missa
þjálfarann sinn sem og bestu
skyttuna. - hbg
Íslandsmeistarar Hauka:
Fer Sigurbergur
með Aroni?
SIGURBERGUR SVEINSSON Fer hugsan-
lega til Danmerkur. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓTBOLTI Margrét Lára Viðars-
dóttir opnaði markareikning sinn
fyrir Linköping í dag þegar hún
tryggði liðinu sigur á Djurgården,
1-0. Margrét Lára kom af bekkn-
um á 70. mínútu og skoraði sigur-
markið tíu mínútum síðar.
Það gengur ekki eins vel hjá
fyrrum þjálfara Margrétar Láru,
Elísabetu Gunnarsdóttur, en lið
hennar, Kristianstad, tapaði sjö-
unda leik sínum í röð í deildinni
og er enn án stiga. - hbg
Sænski kvennaboltinn:
Fyrsta mark
Margrétar Láru
MARGRÉT LÁRA Komin í gang.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÓTBOLTI Það er breytt landslagið
í kvennaboltanum í ár. Yfirburðir
Vals og KR eru ekki þeir sömu og
hafa verið undanfarin ár og önnur
lið eru farin að blanda sér í slag-
inn.
Stjarnan og Fylkir eru þau lið
sem byrja tímabilið með mestum
látum en bæði lið hafa unnið alla
þrjá leiki sína í deildinni.
Stjarnan vann mjög sterkan
sigur á Blikum um helgina og
Stjarnan ætlar að berjast á toppn-
um þrátt fyrir áföll fyrir tíma-
bilið.
Fylkisliðið er einnig að koma
skemmtilega á óvart og verður
líklega ekki valtað mikið yfir það
í sumar líkt og venjan hefur verið
undanfarin ár. Íslandsmeistarar
Vals hafa tapað einum leik í sumar
og það gegn Breiðablik. Valsstúlk-
ur rúlluðu létt yfir ÍR um helgina
en ÍR-liðið virðist ekki eiga mikið
erindi í deildina.
Norðanstelpur í Þór/KA hafa
einnig verið að bíta frá sér og
verða örugglega sterkar með Rakel
Hönnudóttur í broddi fylkingar.
KR-ingurinn Hrefna Huld
Jóhannesdóttir var samt að öðrum
ólöstuðum maður helgarinnar en
hún skoraði öll sex mörk KR gegn
Keflavík.
Hrefna er nýkomin aftur til KR
og byrjar vel í sumar. - hbg
Hrefna var stjarna helgarinnar í Pepsi-deild kvenna:
Fylkir og Stjarnan efst
SJÓÐHEIT Hrefna Huld skoraði öll sex mörk KR gegn Keflavík um helgina.
FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL