Fréttablaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 2
2 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
SVEITARSTJÓRNIR „Með fullri virð-
ingu fyrir mikilvægi þess að
rækta vinabæjartengsl þá hef ég
lýst þeirri skoðun minni á fundum
bæjarráðs að mér finnist það sér-
kennileg forgangsröðun að ætla að
fara í ferð sem þessa í því efna-
hagsástandi sem nú er,“ segir Rósa
Guðbjartsdóttir um ferð á vegum
Hafnarfjarðarbæjar á vinabæjar-
mót í Uppsala í Svíþjóð.
Lagt var upp í ferðina í gær.
Lúðvík Geirsson bæjarstjóri segir
að venjan sé sú að senda flokk
ungmenna og nú sé það leiklistar-
flokkur ungs fólks sem undirbúið
hafi sig frá því í fyrrahaust. Með
eru tveir leiðbeinendur, tveir emb-
ættismenn og tveir bæjarfulltrú-
ar; einn frá Samfylkingu og einn
frá VG. Sjálfstæðismenn sendu
ekki sinn fulltrúa til Uppsala.
„Ég tel að þegar við blasir niður-
skurður þá séu ýmis önnur verk-
efni í sveitarfélaginu brýnni og ég
er sannfærð um að flestir Hafn-
firðingar séu sammála mér í því,“
segir Rósa.
Lúðvík segir kostnað bæjar-
sjóðs af farseðlum verða um hálf
milljón króna. Uppsala borgi uppi-
hald og að auki fáist styrkur frá
Evrópusambandinu. Bæjarstjór-
inn segir að áður fyrr hafi öllum
bæjarfulltrúum staðið til boða að
fara á þetta vinabæjarmót. Í ljósi
ástandsins sé þátttakan nú tak-
mörkuð við einn fulltrúa frá hverj-
um flokki. Óþarfi sé að ýta undir
ranghugmyndir ytra um ástandið
á Íslandi. „Við tókum þá ákvörðun
að það væru röng skilaboð gagn-
vart vinaþjóðum og samstarfsþjóð-
um á Norðurlöndum að við værum
í þeirri stöðu að við gætum ekki
sent formlega fulltrúa frá okkur,“
segir Lúðvík Geirsson.
- gar
Minna kólesteról
www.ms.is
Benecol er náttúrulegur
mjólkurdrykkur sem
lækkar kólesteról í blóði.
Mikilvægt er að halda
kólesterólgildum innan
eðlilegra marka því of
hátt kólesteról í blóði er
einn helsti áhættuþáttur
kransæðasjúkdóma.
Ein flaska á dag dugar
til að ná hámarksvirkni.
Lára, ertu að spara þig?
„Já, ég er alltaf að spara.“
Fréttamaðurinn og fimm barna móðirin
Lára Ómarsdóttir gaf nýlega út bókina
Hagsýni og hamingja, þar sem kennt er
hvernig best sé að höndla kreppuna. Í
Fréttablaðinu í gær sagðist Lára bara hafa
sofið hjá einum manni. „Og loks þegar
strákurinn kom eftir fjórar stelpur gátum
við hætt þessu,“ sagði Lára.
Pilturinn
sem slas-
aðist við
byggingar-
vinnu við
grunnskól-
ann í Garði
að morgni
síðastlið-
ins þriðju-
dags lést á spítala á miðviku-
dag. Hann hét Kristján Falur
Hlynsson og var átján ára
gamall. Kristján var til heim-
ilis að Hlíðarvegi 70 í Ytri-
Njarðvík. Hann lætur eftir sig
foreldra og bróður.
Lést í
vinnuslysi
FJÁRMÁL Ríkisskattstjóri vill
upplýsingar frá íslenskum
bönkum um eignarhald 400
félaga sem
tengjast
Íslendingum og
eru skráð í
erlendum
skattavinjum.
Að sögn
Ríkisútvarps-
ins á að kanna
hvort svikið
hafi verið
undan skatti í
gegnum þessi félög. Haft er eftir
Skúla Eggerti Þórðarsyni
ríkisskattstjóra að slóð félaganna
sé vel falin. Reynist eigandi
félags Íslendingur eða íslenskt
félag verði athugað hvort gerð
hafi verið grein fyrir því í
skattframtali. „Skúli segir að séu
framtalsskil viðkomandi stórlega
athugunarverð verði málinu
vísað til skattrannsóknarstjóra
sem þá taki ákvörðun um
framhaldið,“ segir á ruv.is. - gar
Ríkisskattstjóri rekur þræði:
Eigendur 400
félaga á huldu
SKÚLI EGGERT
ÞÓRÐARSON
EFNAHAGSMÁL Peningastefnu-
nefnd var klofin í afstöðu sinni
til stýrivaxtalækkunar á fundi
sínum í byrjun maí. Þetta kemur
fram í fundargerð nefndarinnar
sem birt var á vef Seðlabankans
í gær.
Tveir nefndarmanna vildu
þriggja prósenta stýrivaxtalækk-
un. Seðlabankastjóri mælti hins
vegar með 2,5 prósenta stýri-
vaxtalækkun og var hún sam-
þykkt með þremur atkvæðum
gegn tveimur. Ekki kemur fram
í fundargerðinni hverjir greiddu
atkvæði með og hverjir á móti.
„Fundargerðin segir það sem
gerist á þessum fundum og
nefndarmenn eiga ekki að gefa
aðrar upplýsingar um þessa
fundi,“ sagði Gylfi Zöega spurður
um hvernig atkvæði hans hefði
fallið. - vsp
Klofin peningastefnunefnd:
Tveir vildu
meiri stýri-
vaxtalækkun
STJÓRNMÁL „Þetta er náttúrlega eins
og flest sem þaðan kemur; uppdikt-
erað og margfaldað með pí,“ segir
Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, um frétt Ríkisútvarpsins
í gær um að hann hygðist á fundi
Sjálfstæðisfélags Kópavogs á morg-
un ræða greiðslur bæjarins til fyr-
irtækis dóttur hans.
Eins og fram hefur komið hefur
bæjarráð Kópavogs falið endurskoð-
endum að kanna nánar viðskipti
bæjarins við fyrirtækið Frjálsa
miðlun sem hefur fengið greiddar
ríflega 51 milljón króna frá árinu
2000. Frjáls miðlun er í eigu dóttur
Gunnars og eiginmanns hennar.
Gunnar segir löngu ákveðið að á
fundi sjálfstæðismanna á morgun
fari hann yfir stöðu mála í Kópa-
vogi og undirbúning fyrir kosning-
ar á næsta ári. Þótt hann muni ekki
ræða viðskipti Kópavogsbæjar og
Frjálsrar miðlunar á fundinum fari
hann sjálfsagt yfir þá „árás“ sem
málatilbúnaðurinn sé.
„Ég fer yfir hvernig taktíkin er
frá Samfylkingu og sumum fjöl-
miðlum í þessu máli sem er mjög
sérkennileg,“ segir Gunnar sem
aðspurður kveður félaga sína í
Sjálfstæðisflokknum ekki vera að
heimta af honum skýringar. „Þetta
er nú ekki í fyrsta skipti sem þetta
kemur upp heldur gerist það á
þriggja til fjögurra ára fresti – sér-
staklega þegar fer að nálgast kosn-
ingar,“ segir Gunnar sem kveðst
sem fyrr ætla að bíða úttektar end-
urskoðenda áður en hann tjáir sig
um málefni Frjálsrar miðlunar: „Þá
sést þetta svart á hvítu.“ - gar
Gunnar ræðir ekki viðskipti dótturinnar við bæinn hjá Sjálfstæðisfélagi Kópavogs:
Segir málatilbúnaðinn „árás“
GUNNAR I. BIRGISSON Gunnar fundar
með Sjálfstæðisfélaginu á morgun.
DÓMSMÁL „Þessi niðurstaða kemur
okkur mjög á óvart. Við bjugg-
umst við því að málinu yrði vísað
frá, þar sem við teljum mann-
inn hafa orðið uppvísan að mjög
vafasömum starfsháttum og
gerst brotlegur við lög í starfi
sínu fyrir félagið,“ segir Sigurður
Grétar Ólafsson, formaður stjórn-
ar Byggingafélags námsmanna.
Félagið var á miðvikudag dæmt
í Héraðsdómi Reykjavíkur til að
greiða fyrrverandi framkvæmda-
stjóra laun í eitt ár. Sú upphæð,
með orlofi, bílahlunnindum og
mótframlagi í lífeyrissjóð, er
rúmar nítján milljónir króna. Við
það bætast dráttarvextir.
Forsaga málsins er sú að fyrr-
verandi framkvæmdastjóranum,
Friðriki Guðmundssyni, var vikið
tímabundið úr starfi í desember
2007 í kjölfar innri endurskoð-
unar á rekstri
félagsins. Í
febrúar árið
eftir var ráðn-
ingarsamn-
ingi við Friðrik
rift af stjórn
félagsins, sem
tilgreindi að
alvarlegar
athugasemd-
ir hefðu komið
í ljós við yfir-
ferð á bókhaldi, samningsgögnum
og tengdum gjörningum. Vegna
alvarlegra og vítaverðra brota í
starfi taldi félagið sig ekki skuld-
bundið til þess að greiða Sigurði
frekari laun eða tengd gjöld.
Starfssamningur Sigurðar frá
1. október 2006 kveður á um að
hann skyldi halda fullum laun-
um og hlunnindum í tólf mán-
uði eftir starfslok, skyldi koma
til uppsagnar af hálfu Bygginga-
félags námsmanna. Hann höfð-
aði því mál og krafðist auk þess
skaðabóta, þar sem hann taldi
málatilbúnað félagsins gjörsam-
lega haldlausan. Byggingafélag-
ið krafðist lögreglurannsóknar á
málum fyrri stjórnar. Efnahags-
brotadeild ríkislögreglustjóra hóf
rannsókn í apríl í fyrra.
Sigurður Grétar segir rann-
sókn efnahagsbrotadeildarinnar
vera í fullum gangi. Stjórn Bygg-
ingafélagsins heyri í starfsmönn-
um deildarinnar reglulega og bíði
eftir niðurstöðum hennar. Hann
gerir ráð fyrir að dómnum sem
féll á miðvikudag verði áfrýjað.
Fyrst þurfi þó að bera málið fyrir
stjórnina og fara yfir það með
lögmönnum félagsins.
kjartan@frettabladid.is
Dæmdar 19 milljónir
Byggingafélag námsmanna hefur verið dæmt til að greiða fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra laun í eitt ár. Upphæðin nemur rúmum nítján milljónum.
Stjórnar formaður gerir ráð fyrir áfrýjun. Lögreglurannsókn stendur enn yfir.
NÁMSMANNAÍBÚÐIR Byggingafélag námsmanna hefur byggt hús eins og þetta í Bólstaðarhlíð, þar sem íbúðirnar eru leigðar
stúdentum. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
SIGURÐUR GRÉTAR
ÓLAFSSON
Bæjarstjóri vísar á bug gagnrýni vegna hópferðar á vinabæjarmót í Svíþjóð:
Röng skilaboð að fara ekki utan
RÓSA
GUÐBJARTSDÓTTIR
LÚÐVÍK
GEIRSSON
Ég tel að þegar við blasir
niðurskurður þá séu ýmis
önnur verkefni í sveitarfélaginu
brýnni.
RÓSA GUÐBJARTSDÓTTIR
BÆJARFULLTRÚI Í HAFNARFIRÐI
STJÓRNMÁL „Þetta er að mestu
leyti komið í höfn,“ segir Stein-
grímur J. Sigfússon sem í fyrra-
dag var í Stokkhólmi að ræða
skilmála láns sem Svíar hyggj-
ast veita Íslendingum til að
styrkja gjaldeyrisforða landsins.
Lánið er hluti 2,5 milljarða doll-
ara lánapakka frá Svíum, Norð-
mönnum, Dönum og Finnum.
Steingrímur segir nú aðeins
pappírsvinnu eftir varðandi Svía-
lánið og að lán frá hinum Norð-
urlöndunum séu að verða frá-
gengin. Hann segir niðurstöðuna
í Svíaláninu þannig að báðir
aðilar geta sætt sig við hana.
Samningar vegna 200 milljóna
dollara láns frá Póllandi og láns
frá Rússlandi séu skemmra á
veg komnir. - gar
Samningum við Svía að ljúka:
Fáum bráðum
sænska dollara
MENNING Ameríski leikarinn
Wayne Allwine, sem hafði verið
rödd Mikka músar í 32 ár, lést í
gær 62 ára að aldri.
Allwine hafði unnið hjá fyr-
irtæki Walt Disney frá því árið
1966 og er sagður hafa hafið störf
í póstherberginu.
Wayne tók fyrst að talsetja
Mikka Mús árið 1977 og var sá
þriðji til að tala fyrir Mikka.
Aðrir sem talsettu Mikka voru
Jimmy MacDonald og Walt
Disney sjálfur.
Wayne lést úr sykursýki við
hlið konu sinnar sem hefur
talað fyrir Mínu mús, ástkonu
Mikka, í áraraðir. - vsp
Hjón rödduðu Mikka og Mínu:
Rödd Mikka
músar er látin
SPURNING DAGSINS