Fréttablaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 6
6 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Gerir stjórnarandstaðan of
mikið úr sykurskattinum?
JÁ 51,3%
NEI 48,7%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Á að frysta launahækkanir?
Segðu þína skoðun á visir.is
STJÓRNMÁL Steingrímur J. Sigfússon fjármála-
ráðherra segir tekjur ríkisins hafa verið nokk-
uð minni á þessu ári en ráð hafi verið fyrir
gert. „Það er meiri samdráttur og heldur minni
velta í samfélaginu,“ segir fjármálaráðherra.
Haft var eftir Birki Jóni Jónssyni, alþingis-
manni Framsóknarflokksins, á Vísi að hann ótt-
aðist að forsendur fjárlaga væru brostnar. Kvað
hann nýlega þjóðhagsspá fjármálaráðuneytis-
ins verða rædda á fundi efnahags- og skatta-
nefndar í dag.
Fjármálaráðherra segir ýmsar ráðstafanir
sem ríkisstjórnin hafi gert til að koma til móts
við atvinnulífið, sérstaklega varðandi frestun
ýmissa gjalda, hafa hægt á tekjustreymi til rík-
issjóðs. En sú frestun verði aðeins í eitt skipti.
Steingrímur segir enn fremur að í vikunni
hafi hann kynnt í ríkisstjórn fyrsta yfirlit yfir
útgjaldaþróunina á þessu ári. „Það er alltaf
þannig að einhverjir liðir hafa farið fram úr en
aðrir ekki og heildarútkoman er vel ásættanleg
og vel innan áætlunar,“ segir ráðherra og boðar
að umrætt yfirlit verði sent til fjárlaganefndar
Alþingis ásamt undirliggjandi gögnum um ein-
staka fjárlagaliði.
„Fjárlaganefndin getur þá fylgst með þessu
með okkur,“ segir Steingrímur og ítrekar að vel
sé fylgst með ef útgjöld fari fram úr áætlun.
„Við ætlum að beita þessu aðhaldi mjög ákveð-
ið því ekki veitir af að menn nái að halda sér
innan við útgjaldarammann.“ - gar
Fjármálaráðherra segir tekjur ríkissjóðs undir áætlun en útgjöldin vera vel innan ramma:
Fjárlaganefnd fær yfirlit yfir útgjöld
STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON Fjármálaráðherra segir
tekjusamdrátt hjá ríkissjóði meðal annars stafa af því
að fyrirtækjum hafi verið heimilað að fresta greiðslu
ýmissa gjalda. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN „Við munum ekki
sleppa neinum ef það er hættulegt
þjóðaröryggi okkar,“ sagði Barack
Obama, forseti Bandaríkjanna, í
ræðu sem hann hélt á Þjóðskjala-
safni Bandaríkjanna í Washington
í gær.
Tilefnið var að Öldungadeild
Bandaríkjaþings hafnaði tillögu
Obama um lokun Guantanamo-
fangelsisins með yfirgnæfandi
meirihluta atkvæða á miðvikudag,
90 atkvæðum gegn sex.
Obama sagði að Guantanamo
skapaði líklega fleiri hryðjuverka-
menn en það innihéldi. Sagði hann
að barátta hans fyrir lokun fang-
elsisins yrði erfið en möguleg.
Frumvarpið sætti mikilli gagn-
rýni í meðferð sinni fyrir öld-
ungadeildinni þar sem þingmönn-
um fannst ekki koma nógu skýrt
fram hvernig farið yrði með þá 240
fanga sem væru í fangelsinu.
„Við erum að meðhöndla þessi
mál með þeim aðferðum sem lög
og þjóðaröryggi gera ráð fyrir,“
sagði Obama.
Dick Cheney, fyrrverandi vara-
forseti Bandaríkjanna, hélt ræðu á
öðrum stað í Washington á svipuð-
um tíma. Sagði hann þverpólitíska
sátt þurfa að vera um mikilvæg
mál sem kæmu frá forsetanum.
Hins vegar sagði hann að stefna
Bush-stjórnarinnar í utanríkismál-
um hefði verið að koma í veg fyrir
frekari hryðjuverkaárásir eins
og voru 11. september 2001. Þess
vegna væri nauðsynlegt að Guant-
anamo-fangelsið væri.
- vsp
Obama hélt ræðu til varnar Guantanamo-frumvarpinu í Washington í gær:
Baráttan verður erfið en árangur mögulegur
BARACK OBAMA Varð fyrir miklu áfalli á miðvikudaginn þegar öldungadeild Banda-
ríkjaþings hafnaði tillögu hans um lokun Guantanamo-fangelsisins með yfirgnæf-
andi meirihluta.
STJÓRNSÝSLA Ákvörðun bæjarráðs
sveitarfélagsins Ölfuss um að
synja Lýsi hf. um leyfi fyrir upp-
setningu óson- hreinsunartanka
við fiskþurrkun fyrirtækisins í
Þorlákshöfn hefur verið ógilt af
úrskurðarnefnd skipulags- og
byggingarmála.
Úrskurðarnefndin segir að
bæjarráðið hafi hafnað umsókn
Lýsis án þess að byggingarnefnd
Ölfuss hafi afgreitt málið með
rökstuddum hætti. Það hafi verið
andstætt skipulags- og bygging-
arlögum. „Þar við bætist að með
hinni kærðu ákvörðun bæjarráðs
var umsókn kæranda hafnað að
svo stöddu án þess að gerð væri
grein fyrir því með skýrum hætti
við hvað væri átt,“ segir úrskurð-
arnefndin. - gar
Ósontankar fyrir Lýsi:
Rangt staðið að
synjun leyfis
FISKÞURRKUN LÝSIS Hart er deilt um
fiskþurrkun Lýsis í Þorlákshöfn.
UMHVERFISMÁL Þrjátíu ný græn
skref voru samþykkt í umhverf-
is- og samgönguráði Reykjavíkur
á þriðjudags-
kvöld. Þar er
meðal annars
gert ráð fyrir
fleiri forgangs-
reinum fyrir
strætó og að
búnir verði til
sælureitir í
öllum hverfum.
Fjöru-
tíu og fimm
græn skref
voru sett fram árið 2007 og nú
er 90% þeirra annaðhvort lokið
eða komin vel af stað, segir Þor-
björg Helga Vigfúsdóttir, formað-
ur umhverfis- og samgönguráðs
Reykjavíkur.
„Þeirra á meðal var umhverfis-
átak við Tjörnina, sett voru niður
80 þúsund tré og bláum tunnum
var komið upp fyrir þá sem vilja
endurvinna meira,“ segir Þor-
björg. - vsp
Fleiri græn skref í Reykjavík:
Forgangsreinar
verði fleiri
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
SJÁVARÚTVEGUR AVS-sjóðurinn,
sem styður verkefni til að auka
virði sjávarfangs, veitti í ár 76
styrki að upphæð 325 milljónir
króna. Alls bárust sjóðnum 160
umsóknir að upphæð 800 millj-
ónir króna, sem gefur til kynna
hversu mikil gróska er hér á
landi í rannsóknum og þróun sem
tengjast sjávarútvegi hér á landi.
Eins og undanfarin ár eru
umsóknir metnar í fjórum fag-
hópum AVS-sjóðsins þar sem
teknar eru fyrir umsóknir sem
taka á fiskeldi, líftækni, markaði
og svo umsvifamesta flokknum
er falla að veiðum og vinnslu. - shá
Styrkir veittir úr AVS-sjóðnum:
Mikil gróska í
rannsóknum
ÞORSKELDI Eldi þorskseiða fékk mynd-
arlegan styrk enda vonir bundnar við
atvinnugreinina. FRÉTTABLAÐIÐ/SVAVAR
INDÓNESÍA, AP Indónesísk herflug-
vél með hermenn og fjölskyldur
þeirra um borð hrapaði í fyrra-
dag á þorp nærri herstöð á eynni
Jövu. Minnst 98 manns fórust í
slysinu, þar af tveir á jörðu niðri.
Alls voru 109 manns um borð í
vélinni, sem var af gerðinni C-130
Hercules, smíðuð árið 1980. Tíu
börn voru meðal farþeganna. Auk
hinna látnu slösuðust fimmtán
manns; sumir þeirra hlutu alvar-
leg brunasár að sögn Bambang
Samudro, yfirmanns herstöðvar-
innar í Magetan. Stöðin er um 520
km austur af Djakarta.
Flugvélakostur indónesíska
flughersins er kominn vel til ára
sinna og slys hafa verið tíð að
undanförnu. - aa
Flugslys í Indónesíu:
Nær 100 farast
með herflugvél
ATVINNUMÁL „Reykjavíkurborg
getur ekki ráðið alla sem eru
atvinnulausir í borginni. Það segir
sig sjálft. Borgin er hins vegar
að reyna að gera sitt besta til að
bregðast við vandanum,“ segir
Hallur Páll Jónsson, mannauðs-
stjóri Reykjavíkurborgar.
Um 3.600 sóttu um sumarstörf
hjá Reykjavíkurborg. Það er miklu
meira en hefur verið undanfarin
ár, að sögn Halls. Ráðið verður í
1.240 stöður sem er svipað og var
í fyrra.
Á undanförnum árum hafa flest-
ir umsækjendur verið framhalds-
og háskólanemar að sögn Halls.
Enginn aldurshópur hafi hins
vegar forgang fram yfir annan.
„Við reynum að dreifa því á hóp-
ana eins og kostur er svo hægt sé
að gæta jafnræðis. Sautján ára
unglingur hefur engan sérstakan
forgang fram yfir 23 ára,“ segir
Hallur.
Ekki hefur verið ráðið í öll
stöðugildin en stjórnendur eru að
ganga frá málum þessa vikuna.
Sumir hefja störf í maí, aðrir í júní
og sumir jafnvel í júlí. Um 260
vinnustaðir eru á vegum Reykja-
víkurborgar.
Þar fyrir utan er Vinnuskóli
Reykjavíkur, sem ræður börn á
aldrinum 13-16 ára. Um 4.000 börn
verða ráðin sem er umtalsvert
meira en á undanförnum árum,
að sögn Halls. „Síðan erum við að
reyna að ráða fólk á atvinnuleysis-
skrá í sérstök átaksverkefni.“
Allir sem sóttu um sumarstörf
hjá Kópavogsbæ munu fá vinnu.
Ráðið hefur verið í milli sjö hundr-
uð og átta hundruð stöður sam-
kvæmt upplýsingum frá Kópa-
vogsbæ.
„Það verða allir ráðnir sem eiga
lögheimili í Garðabæ og hafa sótt
um starf,“ segir Margrét S. Guð-
jónsdóttir, deildarstjóri starfs-
mannahalds hjá Garðabæ.
Hins vegar verður vinnutíminn
skertur frá því sem verið hefur í
klukkustunda- og dagafjölda.
Engin yfirvinna verður í boði.
„Í átakshópi vegna atvinnu-
ástandsins fá 17 ára krakkar vinnu
í sex stundir á dag í sjö vikur. Þeir
sem eldri eru fá sjö stundir á dag í
átta vikur,“ segir Margrét.
Þeir sem vinna hins vegar við
garðyrkju og í áhaldahúsinu fá
lengri vinnutíma, í átta stundir á
dag.
„Vinnuskólinn, sem er fyrir 14-
16 ára krakka, er aðeins öðruvísi,
en þau yngstu fá 91 klukkustundir
yfir sumarið og hinir um 170-180,“
segir Margrét. vidirp@frettabladid.is
Um 2.300 fá ekki
vinnu hjá borginni
Á fjórða þúsund sótti um starf hjá Reykjavíkurborg fyrir sumarið. Aðeins verða
1.240 ráðnir. Enginn aldur hefur forgang. Flestir umsækjendur eru nemar. Allir
fá sumarstarf í Kópavogi. Í Garðabæ fá allir vinnu en vinnutíminn skertur.
BÆJARVINNA Um 3.600 manns sóttu um sumarvinnu hjá Reykjavíkurborg sem er
miklu meira en undanfarin ár að sögn Halls Páls Jónssonar, mannauðsstjóra Reykja-
víkurborgar.
23 létust í sprengjuárásum
Í það minnsta 23 létust í nokkrum
sjálfsmorðsárásum í borgunum Bag-
dad og Kirkuk í Írak í fyrradag. Mann-
skæðasta árásin var í Dora-hverfinu í
Bagdad. Þar dóu tólf, þar á meðal þrír
bandarískir hermenn.
ÍRAK
KJÖRKASSINN