Fréttablaðið - 22.05.2009, Blaðsíða 10
10 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
fyrir börn og unglinga
Fjárhagslegar aðstæður margra heimila hafa breyst verulega til hins verra
á síðustu mánuðum. Því miður sýnir reynslan að eitt af því sem foreldrar
neyðast til að spara þegar þrengir að eru tannviðgerðir og eftirlit hjá
börnum og unglingum. Dregið hefur stórlega úr þáttöku íslenskra
stórnvalda í kostnaði vegna tannheilsu barna og við blasir gífurleg hætta
á tannskemmdum og jafnvel vanlíðan barna og unglinga um þessar
mundir. Í sumum tilfellum bíður fólk þess aldrei bætur.
Tannlæknar hafa ákveðið að koma til móts við þau heimili sem erfiðast
eiga uppdráttar með sjálfboðavinnu við skoðun og viðgerðir tanna hjá
börnum og unglingum. Skorað er á barnafjölskyldur sem búa við kröpp
kjör að nýta sér þetta tækifæri til ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir börn
og unglinga.
Hjálparvakt tannlækna er samstarfsverkefni Tannlæknafélags Íslands
og Tannlæknadeildar Háskóla Íslands. Þjónustan er veitt í húsnæði
Tannlæknadeildar Háskóla Íslands, Læknagarði, laugardaginn 23. maí.
frá kl. 10:00 – 13:00.
Ekki er tekið við tímapöntunum en ráðstafanir eru gerðar til þess
að biðtími verði ávallt hóflegur. Nánari upplýsingar eru veittar hjá
Tannlæknadeild Háskóla Íslands í síma 525 4850.zeb
ra
SAMFÉLAGSMÁL „Það þótti mörgum
það undarleg ákvörðun hjá mér að
flytja út á land í fásinnið þegar ég
tók þessa ákvörðun,“ segir Jóhann
Hafsteinsson, sérfræðingur hjá
greiðslustofu Vinnumálastofnun-
ar, en starfsemi hennar var flutt
til Skagastrandar 1. apríl 2007.
„En nú spyrja þeir hvort ég hafi
verið svo forsjáll að sjá hvað var
í vændum á höfuðborgarsvæð-
inu.“
Jóhann er eini starfsmaðurinn,
af þeim tólf sem þar eru í föstu
starfi, sem er ekki frá Skaga-
strönd eða nágrenni. Aðrir starfs-
menn voru búsettir fyrir á svæð-
inu eða fluttu þangað aftur eftir
nokkurra ára fjarveru. Enginn
hefur sagt upp störfum frá því
starfsemin var flutt.
Sömu sögu er að segja af Ragn-
ari Smára Helgasyni, sérfræðingi
hjá Fæðingarorlofssjóði, en starf-
semi sjóðsins var flutti 1. janúar
2007 til Hvammstanga. „Kona
mín er reyndar héðan og við
vorum búin að vera að bíða eftir
því lengi að fá tækifæri til þess að
flytja út á land,“ segir hann. „Ég
var að vinna hjá Eimskip og hún
hjá SPRON fyrir sunnan þannig
að það er ekki gott að segja hvað
við værum að gera hefði þetta
tækifæri ekki boðist.“
Jóhann og Ragnar Smári segja
að þenslan hafi síður náð norður
á þeirra slóðir og því beri einnig
minna á kreppunni þar.
Leó Örn Þorleifsson, forstöðu-
maður Fæðingarorlofssjóðs og
Jensína Lýðsdóttir, skrifstofu-
stjóri hjá greiðslustofu Vinnu-
málastofnunar, segja bæði að
flutningarnir hafi tekist afar vel.
Almenn ánægja sé með breyting-
una hjá starfsmönnum, samfélag-
inu á svæðunum og viðskiptavinir
finni ekkert að því að starfsemin
sé svo langt frá helsta þjónustu-
svæðinu.
„Heimafólkið talar um það að
þetta sé stóriðja svæðisins,“ segir
Leó Örn. „Það má alveg færa rök
fyrir því. Hér í Húnaþingi vestra
búa tæplega tólf hundruð manns
og við vinnum tólf hér, það er að
segja eitt prósent af íbúafjölda.
Ef við yfirfærum þetta á Akur-
eyri þá yrði vinnustaður með
sams konar hlutfall með 180
starfsmenn og einhverjir myndu
kalla það stóriðju. Nema hvað að
þetta er vistvæn stóriðja.“
„Þetta eru ótrúleg lífsgæði, hér
vaknar maður upp við fuglasöng
en ekki bílaumferð og svo er ég
tvær mínútur að labba í vinnuna,“
segir Jóhann ánægður með vista-
skiptin. jse@frettabladid.is
Vistvæn stór-
iðja í Húna-
þingi vestra
Einungis tveir aðkomumenn eru í föstu starfi hjá
greiðslustofu og Fæðingarorlofssjóði. Starfsemi
þeirra var flutt á Skagaströnd og Hvammstanga árið
2007. Starfseminni er líkt við vistvæna stóriðju.
FRÁ GREIÐSLUSTOFU Á SKAGASTRÖND Enginn hefur sagt upp störfum frá því
starfsemi greiðslustofu var flutt til Skagastrandar árið 2007. Jóhann, sem hér situr við
tölvuna, er úr höfuðborginni og unir hag sínum vel fyrir norðan. Jensína er ánægð
með vinnuna á heimaslóð. FRÉTTABLAÐIÐ/JÓN SIGURÐUR
TRANA Á STAUR Skammt frá þorpinu
Hustopece nad Becvou í Tékklandi
tyllti þessi trana sér stundarkorn á
staur úti í vatni. NORDICPHOTOS/AFP
BÍLAR „Þetta gekk frábærlega vel.
Veðrið lék við áhorfendur og við
erum auðvitað þakklát veðurguð-
unum fyrir það, því það skiptir
miklu máli að ekki sé hávaðarok.
Fjöldi keppenda var fullkominn,
ekki of margir og ekki of fáir,“
segir Hugi Hreiðarsson, einn af
forsvarsmönnum hinnar árlegu
Sparaksturskeppni Atlantsolíu og
Félags íslenskra bifreiðaeigenda
sem haldin var í fyrradag.
Tuttugu og tveir bílar voru
skráðir til leiks í gær og keppt í
sjö flokkum. Keppninni er ætlað
vekja athygli á því að hægt sé að
draga verulega úr eldsneytisnotk-
un með réttu aksturslagi. Það var
Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, for-
maður umhverfis- og samgöngu-
ráðs Reykjavíkurborgar, sem
ræsti keppnina við bensínstöð
Atlantsolíu í Bíldshöfða.
Ekið var austur Þingvalla-
veg, Grafning og Grímsnes og
lauk fyrri hluta keppninnar með
tímatöku við bensínstöð Atlants-
olíu á Selfossi. Eftir tímatökuna
var ekið rakleitt yfir Ölfusár-
brú suður Eyrarbakkaveg og um
Þrengsli til Reykjavíkur. - kg
Tuttugu og tveir bílar tóku þátt í Sparaksturskeppni Atlantsolíu og FÍB:
Skódinn eyddi 3,02 lítrum á hundraði
SPARAKSTUR Veðrið lék við keppendur í
hinni árlegu Sparaksturskeppni.
bensínbifreiðar
CC Tegund Eyðsla á hundraðið
0-1200 Volkswagen Fox 4,02
1.201-1.600 Toyota Yaris 4,44
1.601-2000 Toyota Avensis, Sedan Sol 5,07
2.500-3.500 Volvo C 30 6,09
Dísilbifreiðar
CC Tegund Eyðsla á hundraðið
1.201-1.600 Volkswagen Fox 1.4 TDI 3,31
1.601-2.500 Skoda Octavia 3,02
2.500-3.500 Toyota Landcruiser 6,25
SJÁVARÚTVEGUR Aflaverðmæti
íslenskra skipa nam tæpum sextán
milljörðum króna á fyrstu tveimur
mánuðum ársins 2009 samanbor-
ið við 12,1 milljarð á sama tímabili
2008, samkvæmt frétt Hagstofu
Íslands. Aflaverðmæti hefur því
aukist um 3,8 milljarða, eða 31,5
prósent á milli ára. Hafa ber í huga
að gengislækkun krónunnar á
tímabilinu.
Aflaverðmæti botnfisks var í
lok febrúar orðið 12,5 milljarðar
og jókst um 26,9 prósent frá sama
tíma í fyrra. Verðmæti þorskafla
var um sjö milljarðar og jókst um
36,6 prósent. Aflaverðmæti ýsu
nam rúmum 2,3 milljörðum og
dróst saman um 12,2 prósent, en
verðmæti karfaaflans nam rúmum
1,5 milljörðum sem er rúm 112
prósent aukning frá fyrstu tveim-
ur mánuðum ársins 2008. - shá
Aflaverðmæti íslenskra skipa:
Gengið eykur
aflaverðmæti
BANDARÍKIN Fimm lögreglumenn
frá Birmingham, Alabama í
Bandaríkjunum voru reknir fyrir
að lemja meðvitundarlausan mann
sem þeir höfðu veitt eftirför. Mað-
urinn var grunaður um fíkniefna-
misferli undir stýri.
Málið kom upp í janúar 2008
þegar Anthony Warren keyrði á
lögregluþjón sem meiddist á fæti.
Í kjölfarið var hann kærður fyrir
tilraun til manndráps. Saksóknari
fékk myndband í hendurnar sem
klippt hafði verið á. Framhald
myndbandsins komst hins vegar
ekki í hendur saksóknarans fyrr
en nýlega.
Þar sjást samstarfsmenn lög-
regluþjónsins elta Anthony sem
keyrði út af og lá meðvitundarlaus
eftir á jörðinni. Lögregluþjónarn-
ir komu að honum og börðu hann
með hnefum og kylfum. Á meðan
hreyfði Anthony sig ekki.
Borgarstjóri Birmingham, Larry
Langford, sagði atvikið minna sig
á lögregluofbeldi í Alabama sem
tíðkaðist fyrir hálfri öld.
„Í Birmingham, Alabama í
nútímanum er þetta ekki viðun-
andi,“ sagði Larry.
Anthony játaði sig sekan fyrir
meiri háttar líkamsárás og var
dæmdur í tuttugu ára fangelsi.
Nöfn lögreglumannanna hafa
ekki verið gefin upp og ekki tekin
ákvörðun um hvort þeir verði
ákærðir. - vsp
Fimm lögreglumenn reknir í Birmingham:
Lömdu meðvitund-
arlausan ökuníðing
FLUTNINGUR STARFA TIL
SKAGASTRANDAR OG
HVAMMSTANGA
Greiðslustofa á Skagaströnd
Var flutt 1. apríl 2007. Hún sér um
greiðslur atvinnuleysistrygginga fyrir
allt landið og greiðir um tvo milljarða
á mánuði. Níu starfsmenn í byrjun
en nú starfa þar þrettán fastráðnir en
vegna mikils atvinnuleysis í þjóðfé-
laginu starfa þar nú þar að auki ellefu
tímabundið. Samtals eru þar því 24
starfsmenn.
Fæðingarorlofssjóður á Hvamms-
tanga
Var fluttur 1. janúar 2007. Níu voru
ráðnir í upphafi en síðan hafa tveir
bæst við. Um hver mánaðamót fá
um 4.500 manns greitt þaðan og
nema heildargreiðslur um sjö til átta
hundruð milljónum.