Fréttablaðið - 22.05.2009, Qupperneq 18
18 22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið
timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab-
ladid.is eða hringja í síma 512 5000.
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
Gunnlaugur Halldórsson
Vallholti, Árskógsströnd,
lést á Sjúkrahúsi Akureyrar sunnudaginn 17. maí. Útför
hans fer fram frá Stærra-Árskógskirkju laugardaginn
23. maí kl. 14.00. Jarðsett verður í kirkjugarðinum að
Saurbæ í Eyjafjarðarsveit.
Guðrún Ingibjörg Kristjánsdóttir
Ingibjörg Gunnlaugsdóttir
Jóhanna Elín Gunnlaugsdóttir Sævar Einarsson
Guðný Halla Gunnlaugsdóttir Guðmundur Ólafsson
afa- og langafabörn.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Andrés Bergsson
Klapparstíg 5, Akureyri,
lést að Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, laugardaginn
16. maí. Útför hans fer fram frá Glerárkirkju mánudag-
inn 25. maí kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast
afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á
líknarstofnanir.
Arnar Andrésson Hrefna K. Hannesdóttir
Gísli Andrésson
Jón Andrésson Margrét Pálsdóttir
Guðrún Andrésdóttir Jakob Tryggvason
afa- og langafabörn.
80 ára afmæli
Áttræð er í dag, 22. maí,
Þórdís
Þorláksdóttir
frá Veiðileysu. Hún og eiginmaður
hennar, Steindór Arason frá Ísafi rði,
taka á móti ætting jum og vinum
sunnudaginn 24. maí í Skátaheimilinu
við Hjallabraut í Hafnarfi rði á milli
klukkan 15 og 18.
Ástkær móðir mín, tengdamóðir okkar, amma og langamma,
Björg Steindórsdóttir
áður til heimilis að Grænumýri 7, Akureyri,
lést að Kristnesspítala þriðjudaginn 19. maí.
Hulda Kristjánsdóttir Gestur Jónsson
Kristján Gestsson Ingibjörg Dagný Jóhannsdóttir
Jón Ásgeir Gestsson Hrund Steingrímsdóttir
Árni Björn Gestsson
Þóra Steinunn Gísladóttir
Gísli Sigurjón Jónsson
Björg Þórhallsdóttir
Höskuldur Þór Þórhallsson Þórey Árnadóttir
Anna Kristín Þórhallsdóttir Runólfur Viðar Guðmundsson
og barnabarnabörn.
MERKISATBURÐIR
1702 Erindisbréf gefið út vegna
gerðar manntals á Íslandi.
Það tekur þrjú ár.
1933 Egilssaga kemur út í út-
gáfu Hins íslenska forn-
ritafélags. Var þetta fyrsta
bókin, en ætlunin var að
gefa út 35 bindi alls.
1952 Fyrstu trén í Kjarnaskógi
við Akureyri eru gróður-
sett.
1954 Áburðarverksmiðjan í
Gufunesi er vígð.
1971 Fyrstu orlofshús opinberra
starfsmanna eru tekin í
notkun í Munaðarnesi.
1982 Sjálfstæðisflokkurinn
kemst til valda á ný í
Reykjavík eftir að hafa
tapað þeim fjórum árum
áður.
2008 Eurobandið tekur þátt í
forkeppni Eurovision.
Sextíu ár eru frá því að
kennsla hófst í elsta hluta
Kópavogsskóla og í tilefni af
því er foreldrum og öðrum
sem áhuga hafa boðið í heim-
sókn í skólann í dag, 22.
maí, frá klukkan 8 til 12.30.
Gestum býðst að fylgjast
með kennslu og skoða vinnu
nemenda í heimastofu hvers
bekkjar en kennt er sam-
kvæmt stundatöflum að
mestu leyti.
Í stofu 205 er sýning á
ferli og afrakstri vinnu nýrr-
ar, sameiginlegrar kvæða-
bókar nemenda 3. bekkjar
og eldri borgara í Gjábakka
og í stofu 102 eru myndir,
gamlar námsbækur og gaml-
ir munir.
Skemmtiatriði frá nem-
endum verða í samkomusal
skólans, Kjarnanum, og um
hádegi er boðið upp á grill-
aðar pylsur og ís.
Sextugsafmæli
Kópavogsskóla
Veggspjald sem gert var fyrir afmælið.
Hjördís Geirsdóttir, drottning sveita-
ballanna, á fimmtíu ára söngafmæli
á árinu. Hún ætlar að fagna því með
ýmsum hætti og leikur á als oddi fyrir
austan fjall um helgina.
Hjördís er fædd og uppalin í Fló-
anum og byrjaði að syngja með bróð-
ur sínum aðeins fimmtán ára. „Bróð-
ir minn, Gissur Geirsson heitinn, sem
þá var í hljómsveitinni Tónabræður,
áttaði sig á því að stelpan var músík-
ölsk, kippti henni inn í æfingaherberg-
ið í sveitinni og þannig byrjaði ball-
ið,“ segir Hjördís. „Tónabræður urðu
svo að Caroll-kvintett sem varð svo að
Safír-sextett en á þessum árum voru
margar stórar lúðrasveitir að fæðast
og allar sveitirnar mannmargar.“
Sveitaböllin voru aðalskemmtunin
og tróð Hjördís upp við fjölmörg tæki-
færi á árunum 1959 til 1965 en þá var
henni kippt til Reykjavíkur. „Þar fór ég
að syngja á Klúbbnum með hljómsveit
Karls Lilliendahl og þaðan lá leiðin á
Hótel Loftleiðir þar sem við opnuðum
Víkingasal hótelsins hinn 1. maí árið
1966. Þar var ég húsgagn í fimm ár og
upp frá því hef ég verið að syngja með
alls konar hljómsveitum, en lengst af
með Jóni heitnum Sigurðssyni, harm-
óníkuleikara og textahöfundi. Hann
lést árið 1991 og síðan hef ég verið með
mína eigin hljómsveit.“
Þótt sveitaballamenningin hafi
nánast liðið undir undir lok á síðustu
árum hefur Hjördís ekki setið auðum
höndum. Hún starfar sem sjúkraliði
og snyrtifræðingur og stýrir sönghóp
í félagsmiðstöðinni Hæðargarði. „Þá
hef ég verið skemmtanastjóri á Kan-
arí með gítarinn og iPod-inn að vopni,“
segir Hjördís, sem á ekki í nokkrum
vandræðum með að laga sig að breytt-
um tímum.
Á morgun mun hún hins vegar rifja
upp gamla takta í íþróttahúsinu Iðu á
Selfossi en þar stýrir Ólafur Þórarins-
son, betur þekktur sem Labbi í Mánum,
skemmtun sem ber yfirskriftina Saga
sveitaballanna í tali og tónum og munu
fjölmargir aðrir listamenn koma fram.
Klukkan tíu mun Hjördís svo standa
fyrir dansleik ásamt Tríói Helga Kristj-
ánssonar í Tryggvaskála og á sunnu-
daginn klukkan fjögur verður haldin
djamm-session á sama stað eins.
„Í júlí ætla ég svo að rifja upp gömul
húsmæðraskólalög með harmóníku-
körlum á Gömluborg í Grímsnesi og í
haust er svo stefnan tekin á Rósenberg
og Salinn í Kópavogi en þangað ætla ég
að smala sönghópnum mínum og fólki
sem ég hef sungið með í gegnum tíðina.
Ég má svo til með að nefna bakradd-
irnar sem ekki verða af verri endan-
um eða þær Hera Björk Þórhallsdóttir,
dóttir mín, og Kristjana Stefánsdóttir.“
Þó að þar séu stórstjörnur á ferð hefur
Hjördís engar áhyggjur af því að falla
í skuggann af þeim. „Ég held að það sé
engin hætta á því,“ segir hún og hlær
dátt. vera@frettabladid.is
HJÖRDÍS GEIRSDÓTTIR: FAGNAR FIMMTÍU ÁRA SÖNGAFMÆLI MEÐ TÓNLEIKARÖÐ
Lagar sig að breyttum tímum
ENN Í FULLU FJÖRI
Hjördís mun leika á
als oddi fyrir austan
um helgina en þar
spilaði hún á fjöl-
mörgum svetaböllum
á árum áður.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
NAOMI CAMPBELL ER 39 ÁRA Í DAG
„Ég reyni alltaf að gera hið ómögu-
lega til að geðjast fólki. Það er
vegna þess að ég er óörugg með
sjálfa mig og forðast að horfa inn á
við. Stundum heldur fólk áfram af
því að það vill ekki horfast í augu
við sannleikann.“
Campbell var fyrsta þeldökka fyrir-
sætan til að sitja fyrir á forsíðu Vogue
Paris árið 1988.
Þennan dag árið
1952 voru fyrstu trén
í Kjarnaskógi gróður-
sett, en Kjarnaskógur
er skógur og útivist-
arsvæði í Kjarnalandi
í Eyjafirði rétt vestan
við Akureyri.
Landið komst í
eigu Akureyrarbæjar
árið 1910 og var nýtt
af bæjarbúum undir
grasnytjar og garð-
rækt. Árið 1956 fékk
Skógræktarfélag Ey-
firðinga landið undir
gróðrarstöð sína og og hófst markviss skógrækt
árið 1952.
Árið 2000 náði skógurinn yfir 800 hektara
svæði og var
hæsta tréð 15.25
metrar. Það var
alaskaösp en ríkj-
andi trjátegund-
ir í skóginum eru
birki og lerki. Í
skóginum er góð
aðstaða til útivist-
ar- og íþróttaiðk-
ana og er hann
fjölsóttur af Akur-
eyringum og
þeim sem sækja
bæinn heim. Þar
eru meðal ann-
ars leikvellir, trimmtæki, upplýst trimmbraut með
skíðaspori, göngustígar og á sem liðast um skóg-
inn.
ÞETTA GERÐIST 22. MAÍ ÁRIÐ 1952
Fyrstu trén í Kjarnaskógi gróðursett