Fréttablaðið - 22.05.2009, Síða 19
„Þessi réttur mætir vel þörfum
minnar fjölskyldu sem hefur mis-
munandi skoðanir og bragðsmekk,“
segir Guðrún Þórsdóttir, skólastjóri
Vinnuskóla Reykjavíkur, sem játar
því að hún styðjist nú ekki alltaf
við uppskriftir. „Rétturinn varð til
vegna þess að þegar ég var að búa
til meinholla grænmetisrétti eða
viðlíka kom alltaf þessi spurning
frá bóndanum: Er maturinn með
dýri?
Aðspurð út í hvort hún noti mikið
tófú í matargerð segir hún. „Það
eru svona fjögur ár síðan ég fór að
nota tófú að einhverju marki.“ Guð-
rún mælir með að gott sé að leyfa
tófúinu að liggja aðeins í ostrusósu
og kryddi, en í þessum rétti er það
óþarfi þar sem pestósósan gefur
milt og gott bragð.
En hvað með kryddið? „Ég nota
mikið nýmalaðan pipar í matar-
gerð og papriku ásamt grænum
kryddum,“ segir hún og bætir við
að ómissandi sé að nota kjúkl-
ingakrydd á þennan rétt og ekki
skemmi fyrir að einstaklega fljót-
legt sé að útbúa hann. Rétturinn
er fyrir allt að 6 manns. Meðlæti
getur ýmist verið salat eða hrís-
grjón allt eftir því hvað er til í búr-
inu hverju sinni.
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
KASSABÍLARALLÝ verður haldið á vegum frístundaheim-
ila Frostaskjóls á Ingólfstorgi í dag, föstudag, milli 14.45 og
16.15. Um 350 börn á þremur frístundaheimilum hafa í vetur
smíðað og skreytt bíla sína og ljúka nú vetrarstarfinu með því
að keppa sín í milli.
Bragðgóð hollusta
Guðrún Þórsdóttir, skólastjóri Vinnuskóla Reykjavíkur, notar gjarnan tófú í matargerð. Hún gefur hér
lesendum Fréttablaðsins uppskrift að rétti sem hentar vel fjölskyldum með mismunandi skoðanir.
500 g tófú
1,5 kg kjúklingabringur án húðar
1 haus brokkolí
1 glas pestó úr þurrkuðum tómötum
1 glas matarrjómi
2 hvítlaukar
Krydd að smekk hverrar fjölskyldu.
Tófúið er skorið í strimla og kjúkl-
ingabringurnar líka. Sett saman í
stóra skál og kryddað að smekk og
snúið saman með sleifum. Þessu er
raðað í ofnskúffu sem hefur verið
smurð með matarolíu. Hvítlaukarnir
skornir passlega smátt og þeim
dreift yfir réttinn. Matarrjóma og
pestói hrært saman og hellt yfir
réttinn. Brokkolíið rifið í lítil blóm og
dreift yfir réttinn. Rétturinn hitaður í
ofni við 220°C í 12 mínútur.
RÉTTUR MEÐ DÝRI
að hætti Guðrúnar fyrir 6
Veitingahúsið Perlan - Sími 562 0200 - Fax 562 0207
Netfang perlan@perlan.is - Heimasíða www.perlan.is
H
rin
g
b
ro
t
Næg ókeypis
bílastæði
við Perluna
Ódýrt og gott!
Súpubar 620 kr. · Salatbar 990 kr.
Súpa og salatbar á aðeins 1.430 kr.
~ NÝBAKAÐ BRAUÐ FYLGIR MEÐ SÚPU- OG SALATBAR. ~
Í kaffiteríunni Perlunnar er hægt
að fá alls kyns góðgæti á frábæru
verði: Crépes, samlokur, pizzur
og smurt brauð. Eins er hægt að
fá heimatilbúinn ítalskan ís, alls
kyns ísrétti, kökur og tertur.
Komnar aftur!
Láttu belgísku vöfflurnar
eftir þér, þær eru algjörlega
þess virði. Nú enn betri með
kanil auk vanillu.
E
lf
a
D
ög
g
M
ah
an
ey
R
ek
st
ra
rs
tj
ór
i k
af
fi
te
rí
u
n
n
ar
Réttur með dýri að hætti Guðrúnar Þórsdóttur,
skólastjóra Vinnuskóla Reykjavíkur.