Fréttablaðið - 22.05.2009, Side 28
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
FRÁBÆR
FÖSTUDAGUR
Helgi Seljan fréttamaður
1
5
22. MAÍ 2009
Ég myndi vilja
byrja á því að
hakka í mig sushi
eins og árið væri
2007.
Það síðasta sem ég gerði
þennan dag væri líklegast að
fá mér nætursiglingu um
Breiðfjörðinn á litlum báti,
helst Færeyingi.
2Svo væri ég til í sund með fjölskyldunni.
3Þar á eftir væri ég til í að taka strauið út úr bænum, helst í Stykkishólm þar sem við myndum borða kvöldmat.
4Svo væri ég til í að fara niður að höfn í Stykkishólmi og fylgj-ast með sólinni dansa út Breið-fjörðinn áður en hún myndi að
lokum tylla sér í sjóinn.
María Björk er fædd 13.07.1963 sem
gefur útkomuna 30, sem er jafnt og
3. Þristarnir hafa góða nærveru, eru
skemmtilegir, kátir, tónelskir og oft á
tíðum sterkir listamenn. Þeir eru hins
vegar yfirleitt ekki þær týpur sem
hreykja sér á hæsta steininum, sem er náttúrulega það
sem þarf ef þú hefur listamannsorkuna.
María Björk er kraftmikill þristur. Ég held varla að hún hafi
tekið sér blund frá því að hún fæddist, er alltaf að skipu-
leggja, plana og gera og þar er hún sterk. Hún hefur
marga drauma, bæði fyrir sig og aðra og hún mun láta
draumana rætast „no matter what“. María er mjög trygg-
lynd týpa og aðstoðar fólk oft á tíðum fram úr hófi, en ef
einhver glefsar í hana þá getur hún orðið gífurlega sár
og tekið það nærri sér í mörg ár. Hún er tilfinningaheit og
elskar allt sem lifir. Hún á eftir að koma mörgum einstakl-
ingnum á kortið og hún er á mjög sterku ári í ár. Þetta ár
einkennist af mikilli spennu og jafnvel streitu og ef eitthvað
er þá er of mikið að gera. María þarf að passa sig að hafa
valinn mann í hverju rúmi til að sinna fyrir sig því sem hún
kemst ekki yfir. Þetta er árið sem breytir ofsalega mörgu
fyrir Maríu. Mikill tilfinningahiti og ítölsk orka svermir yfir.
Þó einhverjar fjárhagsáhyggjur gætu hafa bankað á dyr
á þessu ári, mun allt verða bjart og sólin mun koma upp
nákvæmlega eins og María vildi það þegar líða tekur á.
Hún er með mjög gott karma og á háa innistæðu þar.
Nú er hennar tími kominn fyrir úttektina og seinni part-
inn af 2009 og 2010 mun María tengjast mikið útlönd-
um og vera mikið á flakkinu. Hún á eftir að gera marga
sterka samninga og líka fyrir prinsessuna okkar
hana Jóhönnu Guðrúnu svo María mun
koma, sjá og sigra, það er í hennar karma.
KLINGENBERG SPÁIR
María Björk Sverrisdóttir, umboðsmaður og söngkennari