Fréttablaðið - 22.05.2009, Qupperneq 36
22. maí 2009 FÖSTUDAGUR
Enn heldur Atli Örvarsson, tón-
skáldið í Los Angeles, áfram að
bæta á sig blómum. Nú hefur verið
tilkynnt að hann semji tónlistina
við nýjustu kvikmynd bandaríska
stórleikarans Nicolas Cage, Season
of the Witch. Auk hans er Íslands-
vinurinn Ron Perlman í stóru hlut-
verki og hin unga Claire Foy en
ráðgert er að myndin verði frum-
sýnd 2010.
Handritið að myndinni þykir
vera ansi safaríkt en Cage hefur
átt erfitt uppdráttar að undanförnu
eftir að tvíleikurinn um fornleifa-
fræðing-
inn Ben
Gates í National Treasure fékk fremur
dræmar viðtökur. Season of the
Witch segir frá riddara sem er
fenginn til að flytja grunaða norn
á leynilegan stað en hún er grun-
uð um að hafa komið af stað svarta
dauða sem lagði Evrópu nánast í
rúst.
Leikstjóri er Dominic Sena, sem
á að baki hinar misjöfnu kvik-
myndir Swordfish og Gone in Sixty
Seconds.
- fgg
folk@frettabladid.is
„Mér þykir mjög vænt
um hana og ég er
brjáluð yfir því hvernig
ráðist hefur verið inn í
einkalíf hennar.“
LEIKKONAN SARAH
JESSICA PARKER
Tjáir sig um hótarnir sem
staðgöngumóður hennar hafa
borist að undanförnu.
Vinnustaðahrekkur Sveppa
tókst vonum framar og
hefnd Audda reyndist brútal.
„Sveppi hló nú en lét mig heyra
það þegar við vorum búnir að
slökkva á kamerunni. Sagði að ég
ætti ekki von á góðu. Honum þótti
þetta full brútalt,“ segir sjón-
varpsmaðurinn Auddi.
Einn dagskrárliður í þættin-
um Sveppi og Auddi á Stöð 2 er
vinnustaðahrekkur. Sveppi náði
að stríða Audda rækilega nýver-
ið þegar hann bætti unglingnum
Búa Einarssyni á vinalista Audda
á Facebook og Búi þessi fór þá
að ofsækja Audda honum til lít-
illar skemmtunar. Hann lá ekki
á þeirri skoðun sinni að krakka-
fíflið væri með öllu óþolandi. „Já,
hann má eiga það fíflið, að hann
náði mér,“ segir Auddi. En hefnd
Audda reyndist grimmileg og það
fá aðdáendur þeirra að sjá í kvöld.
„Ég átti eina mjög asnalega mynd
af Sveppa þar sem hann liggur
nakinn í kuðungi úti á svölum.
Mynd sem tekin var úti í Dan-
mörku okkur Huga til skemmt-
unar á sínum tíma. Sem betur
fer var henni aldrei eytt,“ segir
Auddi. Ekki er víst að Sveppi taki
undir það því myndina lét Auddi
stækka og fékk Strætó í lið með
sér. Myndin var sett risastór aftan
á leið 15 með textanum: Áttu í ves-
eni með aukakílóin? Þú ert ekki
einn. Kveðja, Sveppi. „Svo tók
ég Sveppa með mér í smá bíltúr.
Ég fékk að heyra á hvaða leið
Strætó var, og þegar við vorum
að keyra yfir Gullinbrú sagði ég
við Sveppa: Heyrðu, ert þetta
ekki þú? Og þá blasti myndin við,“
segir Auddi og vill ekki meina að
hann eigi skilið að fá það óþveg-
ið frá Sveppa í framhaldinu. Vill
meina að nú séu þeir jafnir.
jakob@frettabladid.is
Grimmdarleg hefnd Audda
GLAÐUR EFTIR VELHEPPNAÐ GRÍN
Auddi var ánægður með hvernig til tókst
og lítur nú á að jafnt sé á með þeim
komið eftir að Sveppi samþykkti óþol-
andi ungling inn á Facebook-síðu hans.
Konur hlæja
saman í Køben
Edda Björgvins
og Helga Braga
Verð á mann í tvíbýli:
84.900kr.
26.–28. júní 2009
Innifalið: Flug með sköttum og
öðrum greiðslum, akstur til og frá
flugvelli erlendis, gisting á 4* Hotel
Square og sjálfsstyrkingarnámskeið.
Njóttu lífsins í Køben með
frábærum konum. Sjálfs-
styrking, hlátur og tóm gleði!
Nánari upplýsingar á expressferdir.is
eða í síma 5 900 100
Fjórða vampírumyndin í Twi-
light-seríunni er í bígerð og verð-
ur hún byggð á bók Stephenie
Meyer, Breaking Down. Þetta
staðfesti leikarinn Robert Pattin-
son á kvikmyndahátíðinni í Cann-
es. Tökum á annarri myndinni,
New Moon, er að ljúka um þessar
mundir á Ítalíu og tökur á þeirri
þriðju, Twilight: Eclipse, hefjast
í október. Fyrsta Twilight-mynd-
in naut mikilla vinsælda víða um
heim þegar hún var frumsýnd á
síðasta ári og er beðið með mikilli
eftirvæntingu eftir framhalds-
myndunum. Myndirnar fjalla
um ástarævintýri unglingsstúlk-
unnar Bellu og vampírunnar
Edwards, sem Pattinson leikur.
Twilight í
fjórða sinn
TWILIGHT Robert Pattinson segir að
fjórða Twilight-myndin sé í bígerð.
Atli semur tónlist
við svarta dauða
Í GÓÐUM MÁLUM Atli Örvarsson virðist
hafa komið ár sinni vel fyrir borð í
Hollywood en hann semur tónlistina við
nýjustu kvikmynd Nicolas Cage.
„Hugmyndin var algjörlega út
úr kortinu og ég er alltaf til í
eitthvað svoleiðis.“
HJARTAKNÚSARINN BRAD PITT
Talar um handrit nýjustu myndar sinnar,
Inglorious Basterds, í leikstjórn Quentins
Tarantino.
„Patrick Swayze er á lífi
og nýtur lífsins. Meðferð
hans gengur vel.“
UPPLÝSINGAFULLTRÚI
PATRICKS SWAYZE
Vísar á bug fregnum
um andlát leikarans í
gærmorgun.
NICOL-
AS CAGE
Nýtur
liðsinnis
Atla Örvars-
sonar.