Fréttablaðið - 22.05.2009, Qupperneq 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Þórgunnar
Oddsdóttur
Í dag er föstudagurinn 22. maí,
142. dagur ársins.
3.51 13.24 23.00
3.12 13.09 23.10
4.990 kr.
á tilboði til 24. maí
4.290 kr.
Tímamótagjafi r
Við höfum úrvalið
af útskriftargjöfum.
23.456 kr.
17.990 kr.3.990 kr.
2.990 kr.
3.690 kr.
Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára.
Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009.
Hvar er þín auglýsing?
34%
74%
Íslensk sjónvarpssaga lumar á nokkrum myndskeiðum sem
hafa náð að festa sig svo í sessi að
þau eru orðin að eins konar tákn-
myndum. Þetta eru myndir sem
við sjáum aftur og aftur, Vigdís
Finnbogadóttir að veifa þjóðinni
af svölunum sínum, fyrsta haftið í
Hafrahvammagljúfri sprengt fyrir
Kárahnjúkavirkjun og óskýrar
myndir teknar á venjulega heim-
ilismyndbandsupptökuvél af björg-
unarsveitarmönnum að leita að
fólki í snjóflóðinu sem féll í Súða-
vík árið 1995.
SÍÐAN ég sá þessar myndir frá
Súðavík fyrst hef ég borið ómælda
virðingu fyrir björgunarsveitar-
fólki. Og núna, löngu seinna, þegar
stjórnmálamennirnir þreytast
ekki á að grípa til náttúruhamfara-
líkingarinnar ef efnahagsástandið
ber á góma get ég ekki losnað við
þetta myndskeið úr huga mér. Það
var myrkur og stórhríð en milli élj-
anna sá glitta í dúðaða björgunar-
sveitarmenn sem höfðu hætt sér
kauplaust út í hríðina með skóflu
í hönd til þess að bjarga lífi sam-
landa sinna. Þarna stóðu þeir kald-
ir og þreyttir með vindinn beint í
fangið og mokuðu og mokuðu án
afláts því þeir vissu að hver sek-
únda var mikilvæg.
RÁÐAMENN þjóðarinnar þykj-
ast hafa sett saman „aðgerðapakka
til bjargar heimilunum“. Þeir segja
að við þurfum að „standa af okkur
þetta gjörningaveður“ og til að við
missum ekki móðinn minna þeir
okkur á að Íslendingar eru sterkir
enda vanir að glíma við náttúru-
öflin. Á þessu hafa menn tönnlast
síðan bankakerfið hrundi í haust
og samt finnst okkur eins og við
séum enn að bíða í rústunum eftir
að björgin berist. Björgunarsveit-
armennirnir sem við sáum í mynd-
skeiðinu frá Súðavík voru í allt
öðrum ham. Engum þeirra datt í
hug að eyða dýrmætum tíma í að
karpa um í hvaða herbergi þeir
fengju að hvíla sig eftir mokst-
urinn eða hver af björgunarsveit-
unum ætti mestan heiður skilinn
fyrir verkið. Það eina sem skipti
máli var að moka!
LÍKINGAMÁLIÐ sem menn
grípa til núna er fullkomlega eðli-
legt. Auðvitað er þetta eins og
eftir hræðilegt slys eða hamfar-
ir. En hverjir hafa mesta reynslu
af umfangsmiklum björgunar-
aðgerðum? Værum við kannski
betur sett í dag ef við hefðum tekið
björgunarmyndmál pólitíkusanna
alvarlega strax í upphafi og virkj-
að samhæfingarstöðina í Skógar-
hlíð í stað þess að stóla á samkom-
una í húsinu við Austurvöll?
Björgunar-
aðgerðirnar