Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Í dag er föstudagurinn 5. júní, 156. dagur ársins. 3.13 13.26 23.41 2.18 13.11 0.07 Hjá krakkaskaranum sem göslaðist um í einu úthverfi Reykjavíkur fyrir nokkrum ára- tugum voru bara fáeinir í langtíma skipulögðum frístundum. Flest okkar hinna prófuðum svona hitt og þetta, fimleika einn veturinn og fótbolta á sumrin, bara meðan ánægjan entist og alveg hreint metnaðarlaust. Í fljótu bragði man ég bara eftir henni Möggu sem hafði eitthvað úthald og æfði píanóleik árum saman. Mitt eigið tónlistaruppeldi einskorðaðist við Roger Whittaker og The Dubliners sem þá voru rosa heitir, en skipu- lagt músíknám gleymdist alveg. Þegar ég nefni þessa vanrækslu við móður mína í þeim tilgangi að kreista fram dálítið samviskubit, segir hún mér að skrifa þetta bara í svörtu bókina. Horfir svo full- komlega ósnortin út um gluggann og tekur alls ekkert eftir eymdar- svip píslarvottarins. TIL að bæta fyrir sinnuleysi eigin foreldra voru dætur mínar bara svona þriggja ára þegar farið var að huga að markvissri ræktun á hæfileikum. Sem augljóslega fel- ast einkum í skapandi hugsun, eins og sést á hugmyndaauðgi þeirra innan heimilis. Dagleg lágmarks- tiltekt felst iðulega í að þrífa sinn- ep af hurðarhúnunum og uppgötva að fíni sparijakki pabbans hefur verið notaður í búðarleik sem umbúðir utan um klósettburst- ann. Tímaritabörn sem dunda sér með öll fínu leikföngin inni í eigin herbergi er nefnilega ekki að finna heima hjá mér. TIL að virkja endalaust hugmynda- flug (óþekkt), skapandi hugsun (óþekkt) og framkvæmdagleði (óþekkt) voru blessaðir grísirnir sumsé drifnir í skipulegt tónlist- arnám. Eftir veturinn uppskárum við foreldrarnir gleðiklökka stund á vortónleikum í virðulegri kirkju. Þar lék millistykkið á píanó Kópa- vogur hoppstopp af aðdáunar- verðri leikni og sú aggalitla spil- aði dásamlega á smáfiðluna sína. Sem samanstendur raunar af fiðlu- formuðu frauðplasti, trépriki og þvottaklemmu og hljómar í sam- ræmi við það. ÞAR sem ég sat í sólinni um dag- inn og ræddi við vinkonu mína allskyns suzuki og waldorf og mik- ilvægi hvetjandi uppeldis, bar að þriðju móðurina. Sú hlustaði sposk á innblásnar umræðurnar dálitla stund en þurfti svo að skreppa til að gá að börnunum sínum. Þau voru einhvers staðar úti í móa að leika. Upp á eigin spýtur og alveg án skipulegrar aðstoðar. Farvegur skap- andi hugsunar Stubbasmiðjan hættir Aðeins í 3 daga 90% Meðallestur á tölublað, höfuðborgarsvæðið, 18-49 ára. Könnun Capacent í febrúar 2009 – apríl 2009. Hvar er þín auglýsing? 34% 74%

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.