Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 18
18 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR
timamot@frettabladid.is
RONALD REAGAN (1911-2004)
LÉST ÞENNAN DAG.
„Ef við elskum landið okkar
ættum við einnig að elska
landa okkar.“
Ronald Reagan var forseti
Bandaríkjanna frá 1981 til
1989. Áður en hann varð for-
seti var hann þekktur kvik-
myndaleikari.
Á þessum degi árið 1885 birtist grein
eftir Bríeti Bjarnhéðinsdóttur í Fjall-
konunni. Greinin fjallaði um
menntun og réttindi kvenna og
var fyrsta greinin sem íslensk
kona skrifaði í opinbert blað.
Fjallkonan var nýlega stofn-
uð þegar Bríet fluttist til
Reykjavíkur. Blaðið opnaði
glugga með skrifum sínum
um stjórnmál, umbætur í at-
vinnumálum og kvenréttindi.
Bríet skrifaði ritstjóranum og
bað hann um að dæma grein
sem hún hafði skrifað og hún
birtist undir heitinu „Nokkur orð
um menntun og réttindi kvenna“
undir dulnefninu Æsa. Þar fór hún
að dæmi margra samtíðarkvenna
sinna víða um heim sem oft birtu fyrstu
ritsmíðar sínar undir dulnefni. Hún
hvatti konur til að berjast við ófrelsi
og hleypidóma, sem hingað til
hefðu staðið í vegi fyrir öllum
framförum þeirra.
Bríet átti stærstan þátt í að
hrinda af stað fyrstu bylgju
kvenréttindabaráttunnar hér
á landi fyrir lágmarksréttind-
um, svo sem kosningarétti,
kjörgengi og rétti til menntun-
ar og atvinnu. Hún átti frum-
kvæði að stofnun Kvenrétt-
indafélags Íslands, var formað-
ur félagsins í tvo áratugi og átti
mestan þátt í að íslenskar konur
urðu hluti af alþjóðlegri kvenrétt-
indabaráttu.
ÞETTA GERÐIST: 5. JÚNÍ 1885
Bríet birtir fyrstu grein sína
Flataskóli í Garðabæ fagnar fimmtíu
ára afmæli á morgun 6. júní en skólinn
er elsti grunnskólinn í Garðabæ.
Í tilefni af afmælinu verða sýning-
ar í öllum álmum skólans tileinkaðar
áratugunum fimm. Þar verður hægt
að skoða gamlar myndir úr skólalíf-
inu og ýmislegt sem einkenndi tíðar-
andann hvern áratug fyrir sig. „Við
leitumst við að hafa sama yfirbragð í
hverri álmu og eru efnistök þau sömu.
Í álmunum gefur að líta það sem gerð-
ist fréttnæmt bæði hér í Garðabæ og
á landsvísu viðkomandi áratug og má
þar nefna íþróttaafrek, tónlist sem ein-
kenndi áratuginn, leiki barna og tísku,
en krakkarnir hafa sett tilheyrandi föt
á gínur. Þá eru líka upplýsingar um
það sem gerðist markvert innan skól-
ans eins og til dæmis þegar viðbygg-
ingar voru reistar og annað í þeim
dúr. Verkefnið er fræðandi fyrir gesti
og gangandi en hefur einnig lærdóms-
gildi fyrir börnin,“ segir Sigurveig Sæ-
mundsdóttir, skólastjóri Flataskóla.
Dagskráin á morgun hefst klukkan
ellefu og byrjar á stompatriði á skóla-
lóðinni þar sem nemendur og starfs-
menn skólans berja tunnur. Þá verður
boðið upp á ratleik auk þess sem hægt
verður að virða fyrir sér verk nemenda
á göngum og í kennslustofum skólans.
Í hátíðarsalnum verður söngleikur-
inn Hljómhýra frumfluttur en hann er
eftir þau Brynju Skúladóttur og Hrafn-
kel Pálmarsson, foreldra nemenda í
Flataskóla. Þau sömdu söngleikinn sér-
staklega af þessu tilefni og gefa for-
eldrar við Flataskóla skólanum verkið.
Það eru nemendur í 4. bekk sem flytja
verkið undir stjórn foreldra og kenn-
ara. „Tvær sýningar verða á söngleikn-
um, klukkan 12 og 14, en á milli sýn-
inga og eftir þá seinni taka nemend-
ur að sér hljóðfæraleik og dans og auk
þess mun fyrsti útskriftarhópur skól-
ans sækja okkur heim,“ segir Sigur-
veig.
Hún er þriðji skólastjóri skólans en
sá fyrsti var Vilbergur Júlíusson sem
gegndi starfinu í 25 ár. Síðan tók Sig-
rún Gísladóttir við og starfaði í tut-
tugu ár. „Ég er að klára mitt fimmta
ár en hér hefur ávallt verið lítil starfs-
mannavelta enda aðbúnaður til fyrir-
myndar. Þá er skólinn góður og rótgró-
inn um leið og hann er ávallt í sókn.
Hann nýtur auk þess mikillar virðing-
ar í bæjarfélaginu en hann var í upp-
hafi menningarmiðstöð hreppsins,
síðar bæjarins, og hér voru ýmis félög
og bókasafnið til húsa.“
Í tilefni af afmælinu gefur skólinn út
afmælisrit fyrir skólalok þar sem rýnt
er í söguna og fjallað á lifandi hátt um
skólastarfið í dag. vera@frettabladid.is
FLATASKÓLI: FAGNAR FIMMTÍU ÁRA AFMÆLI MEÐ AFMÆLISHÁTÍÐ
Börnin gera áratugunum skil
SÁTT Í STARFI Sigurveig er einungis þriðji skólastjóri skólans en í honum hefur starfsmannavelta verið lítil. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
MERKISATBURÐIR
1915 Danmörk breytir stjórnar-
skrá sinni til þess að veita
konum kosningarétt.
1920 Brjóstsykursgerðin Nói
hefur starfsemi í kjallara
við Túngötu í Reykjavík.
1967 Sex daga stríðið hefst: Ís-
raelskar flugsveitir sendu
flugskeyti á Egyptaland,
Jórdaníu og Sýrland.
1968 Forsetaframbjóðand-
inn Robert F. Kennedy er
skotinn við Ambassador-
hótelið í Los Angeles af
Sirhan Sirhan. (Hann lést
6. júní).
1974 Ólafur V. Noregskonungur
heimsækir Ísland.
1975 Ísland sigrar Austur-Þýska-
land í landsleik í knatt-
spyrnu 2-1.
1981 Fyrstu tilfelli alnæmis
finnast í Los Angeles.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
Svanfríður Þóroddsdóttir
Hólmagrund 4, Sauðárkróki,
lést föstudaginn 29. maí. Útför hinnar látnu fer fram
frá Sauðárkrókskirkju laugardaginn 6. júní klukkan
14.00.
Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg eiginkona mín, móðir,
tengdamóðir og amma,
Halldóra Guðmundsdóttir
Hlyngerði 12, Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut
þriðjudaginn 2. júní. Útför hennar fer fram frá
Bústaðakirkju föstudaginn 12. júní kl. 13.00.
Sigtryggur Helgason
Þórhildur Sigtryggsdóttir Hrafnkell Óskarsson
Kristbjörg Hrund Sigtryggsdóttir Skapti Haraldsson
barnabörn.
Okkar ástkæri sonur,
Arnór Alex Ágústsson
Laufvangi 9, Hafnarfirði,
lést á gjörgæsludeild Landspítalans þriðjudaginn 2.
júní. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju miðviku-
daginn 10. júní kl. 15.00. Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Hjördís Þórarinsdóttir
Sigurbjörn Ágúst Ágústsson
Silja Rut Tómasdóttir
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar elskulegs föður okkar, tengdaföður,
afa og langafa,
Andrésar Bergssonar
Klappastíg 5, Akureyri.
Arnar Andrésson Hrefna K. Hannesdóttir
Gísli Andrésson
Jón Andrésson Margrét Pálsdóttir
Guðrún Andrésdóttir Jakob Tryggvason
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
eiginmanns míns, föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Þórhalls Guttormssonar
íslenskufræðings.
Sérstakar þakkir fá eldri félagar úr Karlakór
Reykjavíkur og starfsfólk hjúkrunarheimilisins
Sóltúns.
Anna Þorsteinsdóttir Þorsteinn Þórhallsson
Ragna Steinarsdóttir
Páll Þórhallsson Þórdís Kjartansdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
AFMÆLI
MARK
WAHLBERG,
leikari og
söngvari, er
38 ára.
SIGURÐUR
BJÖRNSSON
yfirlæknir er
67 ára.
HALLBJÖRN
HJARTARSON
tónlistarmað-
ur er 74 ára.
VILHJÁLMUR
EINARSSON
frjálsíþrótta-
maður er 75
ára.