Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 25
5. júní föstudagur 5 brosandi. Ísak hefur án efa vakið mikla eftirtekt því búið er að stofna aðdáendaklúbb tileinkað- an honum á Facebook sem rúm- lega 100 manns eru skráðir í, en Ísak kom af fjöllum þegar klúbb- urinn barst í tal. „Ég man að ég var í hálfgerðu sjokki þegar ég sá mig fyrst í sjónvarpinu, enda Nýtt útlit sýnt úti um allt land og margir biðu spenntir eftir þættinum. Fyrst pældi fólk mikið í hvað ég væri að gera, en svo fór fólk að fatta að mitt hlutverk var að vera aðstoð- armaður. Það voru líka margir sem gerðu athugasemdir við fötin mín því ég hef oft klæðst furðulegum fötum, en þetta er bara minn fata- skápur. Ég fer bara í það sem ég á og finnst það æði,“ segir hann. Spurður um framtíðaráform segist Ísak án efa ætla að halda sig í heimi tískunnar. „Í framtíð- inni langar mig að fara út og vinna við tískusýningar, til dæmis í París eða New York. Ég ætla allavega að ná þeim markmiðum sem ég set mér og stefni ótrauður áfram. Mér líður mjög vel í dag og mér finnst ég mjög heppinn að fá að vinna við það sem mér finnst skemmti- legast.“w Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Flottur „Ég er mjög hlédrægur í eðli mínu og fíla mig bara við að farða, taka þátt í verkefnum sem tengjast því sem aðstoðarmaður Kalla, að svara símanum og sjá til þess að við nærumst og svoleiðis, svolítið svona „The devil wears Prada“.“ GGJUNA Áhrifavaldurinn: Grace Jones! Draumafríið: Væri mikið til í að vera í ævintýra- ferð með góðum vini. Fljúga eitt- hvert og vita ekkert hvert stefnan er tekin! Hverju myndirðu sleppa ef þú yrðir að spara? Einhverjum óþarfahlutum sem maður kaupir en þarf samt ekkert á að halda. TAX FREE

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.