Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 22
2 föstudagur 5. júní
núna
✽ lærir að prjóna
þetta
HELST
augnablikið
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd Anton Brink
Útlitshönnun Kristín Agnarsdóttir Auglýsingar Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir
sigridurdagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Sími : 568 5305 • Grandagarði 5
Opið v i rka daga
900 - 1800
Laugardaga
900 - 1300
Flytja til Los Angeles
Meðlimir Steed Lord hafa í mörgu
að snúast þessa dagana. Þau eru
nú að leggja lokahönd á breiðskífu
sem er endurhljóðblanda af þeirra
fyrstu plötu „Truth Serum.“ Þau
luku einnig nýverið við að semja
lagið Transilvania fyrir nýjustu plötu
Crookers, A Ton Of Friends, en
þekktir tónlistarmenn á borð við
Kanye West, Roisin Murphy og
Kelis koma við sögu á plötunni.
Í sumar verður Steed Lord á
ferðalagi um Evrópu og held-
ur svo á túr í Ástralíu seinna
á árinu. Að Ástralíutúrnum
loknum hafa þau M.E.G.A., Kali,
Demo og AC Bananas í hyggju að
flytja til Los Angeles svo aðdáend-
ur Steed Lord ættu ekki að láta sig
vanta á hörkutónleika með sveitinni
sem fara fram á Jacobsen annað
kvöld.
Á von á barni
Leikkonan Kristín Þóra Haralds-
dóttir á von á sínu fyrsta barni
með eiginmanni
sínum, Kára
Allanssyni, org-
anista og kór-
stjóra. Kristín
lék í sýning-
unni Ökutímar í
Borgarleikhús-
inu, en hún þurfti að segja skilið við
hlutverk sitt í lok maí, enda komin
rúma sjö mánuði á leið.
SÉRSTÖK Fergie úr Black Eyed
Peas mætti í þessum sérstaka blá-
græna kjól og háhæluðum banda-
skóm á MTV-verðlaunahátíðina í
Japan í síðustu viku.
ÓLAFUR HAUKUR JOHNSON
„Eftir vinnu í dag fer ég í fótbolta með hóp af enskum strákum sem ég spila með hérna
í London og svo með kærustunni út að borða á uppáhalds taílenska veitingastaðinn
okkar. Á morgun ætla ég í hádegismat með tilvonandi skólafélögum mínum sem eru
að fara til Boston og svo í golf með nokkrum Íslendingum sem búa hér.“
Þ etta var eiginlega bara spurn-ing um frumkvæði,“ segir
Agnes Marinósdóttir, 29 ára vöru-
hönnuður. Agnes hannar undir
nafninu Aggystar og hafa tölvu-
töskur hennar, snyrtiveski og
buddur verið mjög vinsæl síðan
þau komu í verslanir fyrir um
einu ári.
„Ég fór í Iðnskólann í Hafnar-
firði eftir stúdent og tók vöru-
hönnun, en þetta gerðist
bara heima hjá mér, óháð
því sem ég gerði í skólan-
um. Þetta var langt ferli frá
því að hugmyndin fæddist fyrir
tveimur árum, þang-
að til vörurnar urðu
til, því það tók alveg
heilt ár að vera í
tölvupóstsam-
skiptum við út-
lönd, finna traust
fyrirtæki, mynda
sambönd og fá pruf-
ur,“ útskýrir Agnes. „Upp-
haflega var ég að hanna fyrir túr-
istabransann því mig langaði að
poppa hann aðeins upp með litum
og gera hann aðeins flippaðri en
gengur og gerist. Það þróaðist svo
út í að Íslendingar vildu þetta og
allir virtust vera að fíla þetta Ís-
landsmunstur,“ segir hún og bros-
ir. „Ég er líka með prjónamunst-
ur sem ég skannaði inn í tölvu
og Olga vinkona mín lagaði með
grafískri hönnun. Það er uppselt
í augnablikinu, en ég reikna með
að panta það aftur fljótlega,“ segir
Agnes sem notar svokallað Neo-
profene-efni í veskin og töskurnar.
„Þetta er sama efni og er notað í
köfunargalla, en ég valdi það bæði
af því að það er svo mjúkt, ending-
in er góð og það er hægt að henda
því í þvottavél,“ bætir hún við og
segir mikið að gera um þessar
mundir þar sem ferðamannatíma-
bilið stendur sem hæst frá maí til
september.
Agnes hefur einnig hannað
tölvuborð úr plexígleri, en borð-
ið er mjög létt og
er til dæmis kjör-
ið undir fartölv-
ur sem set ið
er með uppi í
rúmi eða sófa
og hitna mikið.
„Borðið er búið
til hjá Forma í Hafn-
arfirði og ég er að láta hanna utan
um það pakkningar svo það verð-
ur alíslenskt,“ útskýrir Agnes.
„Draumurinn er að framleiða allt
á Íslandi og koma vörunum svo
í sölu erlendis. Ég held að marg-
ir hönnuðir séu að hugsa þannig
og það myndi styrkja atvinnuveg-
inn,“ segir hún. Vörur Agnesar fást
nú í fjölda verslana um allt land,
en nánari upplýsingar má einnig
finna á Facebook-síðu Aggystar.
Agnes Marinósdóttir hannar undir nafninu Aggystar:
ÍSLANDS- OG PRJÓNA-
MUNSTUR VINSÆL
Litríkt „Upphaflega var
ég að hanna fyrir túrista-
bransann því mig langaði
að poppa hann aðeins upp
með litum og gera hann
aðeins flippaðri en gengur
og gerist,“ segir Agnes.
Út er komin bókin „Sjö daga safa-
kúrinn“ hjá Forlaginu og ætti hún
að vera kærkomin í eldhús þeirra
sem vilja koma sér í sundfata-
formið. Að sjálfsögðu þurfa allir
að passa sig á skyndikúrum en
safaföstur eru nokkuð sem eiga að
hreinsa líkamann og gefa okkur
aukna orku. Í bókinni eru 42 upp-
skriftir að ljúffengum og heilsu-
samlegum drykkjum ásamt grein-
argóðum upplýsingum um kúrinn
og áhrif hans. Það eina sem maður
þarf að eiga er góð ávaxta/græn-
metispressa og sneisafullur ís-
skápur af grænmeti og ávöxtum.
HÉR FYLGIR EIN AF UPP-
SKRIFTUNUM ÚR BÓKINNI
Ber fyrir flatan maga:
3 epli
150 ml trönuberjasafi án viðbætts
sykurs
125 g bláber, fersk eða frosin
1 msk. psyllium-trefjar í duft-
formi.
Þrjú kíló fá að
fjúka á einni viku
Hollusta Ferskir
ávaxta- og grænmetis-
safar eru uppistaðan í
Safakúrnum.