Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 26
6 föstudagur 5. júní
1 Kápan sem ég er í ásamt bleiku regn-
hlífinni er flík sem ég saumaði mér sjálf.
2 Rauða pilsið er úr Topshop og svart-
hvíta bolinn saumaði ég. Hækkuskórnir
eru keyptir á Netinu á www.darkkitten.
com. 3 Grái kjóllinn með grafíska mynstr-
inu er eftir franska hönnuðinn Jean-
Pierre Braganza og er úr Liborius
og skórnir eru frá Kron by
Kronkron. 4 Samfestinginn
keypti ég í Mauerpark
Markt í Berlín. 5 Leður-
jakkinn er úr Einveru.
tíðin
✽ tíska og tíðarandi
KK Í BÆJARBÍÓI Í tilefni Bjartra daga, árlegrar menn-
ingarhátíðar í Hafnarfirði, halda þeir KK, Þorleifur Guðjóns-
son og Jón Ólafsson tónleika í Bæjarbíói í kvöld. Á efnis-
skránni verða þekktustu lög KK auk ýmissa blússlagara.
DJÚPIÐ Í kvöld verður einleikurinn Djúpið eftir Jón Atla
Jónasson frumsýndur í Borgarleikhúsinu. Djúpið er frásögn
úr íslenskum veruleika sem lætur engan ósnortinn. Ekki
missa af Ingvari E. Sigurðssyni í magnaðri sýningu.
Getur þú lýst þínum stíl?
„Demi-goth meets candyfloss“.
Hvað dreymir þig um að eign -
ast í sumar? Nýja skó með
mjög háum hælum og fallegan
sumarkjól! Eitthvað litríkt og flott.
Í hvað myndir þú aldrei fara?
Brúnkumeðferð. Heldur ekki
skó sítt gallapils við gallajakka.
Aldrei gallaefni við galla efni.
Hvað keyptir þú þér síðast?
Risastóra svarta tösku í Amer-
ican Apparel.
Uppáhaldsverslun? Ég er
alltaf veik fyrir Kron!
Uppáhaldsfatamerki? Ég held
mikið upp á merki á borð við
Chie Mihara og uppáhaldshönn-
uðurinn minn er Gareth Pugh.
Finnst þér merki á fötunum
skipta máli? Nei, ekki svo
mikið.
Hvert er skuggalegasta fata-
tímabilið þitt? Tja, ég á nokk-
ur! En svona versta tímabilið
þegar ég lít til baka var þegar
ég bjó í Englandi, þrett-
án ára, og klæddist eins
og aðrar breskar ungl-
ingsstelpur í kringum mig þá, í
útvíðum buxum og bolum sem
voru nokkrum númerum of litlir
og með bláan augnskugga upp
að augabrúnum.
Eru einhver tískuslys í fata-
skápnum þínum? Þar er bara
ekki pláss fyrir slys.
Hvaða snið klæðir þig best?
Kannski svolítið kvenlegt snið,
aðsniðið með mitti.
Þorgerður Þórhallsdóttir nemi
Dái kvenleg snið
21 3
5
4