Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 1
Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
5. júní 2009 — 132. tölublað — 9. árgangur
„Ég fæ vatn í munninn þegar ég hugsa um þennan rétt,“ segir Renuka Perera, matreiðslukona frá Srí Lanka, hlæjandi. „Rétturinn er upprunninn í Srí Lanka og ég þró-aði uppskriftina sjálf. Pabbi minn var kokkur þannig að ég ólst upp á miklu matarheimili í Srí Lanka.“Uppvaxtarárin hafa sett svip sinn á Renuku því matargerð er hennar helsta áhugamál. „Ég elda oft fyrir fjölskyldu mína og kaupi eiginlega aldrei tilbúinn mat. Í framtíði iég ve ð k
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
HEIMILISIÐNAÐARDAGURINN verður hald-
inn í Árbæjarsafni sunnudaginn 7. júní. Þar verður
nemendasýning á Kornhúsloftinu, félagsmenn sýna
vinnubrögð og handverk og faldafeykissýning verður
í Líkn. Allir sem mæta á íslenskum búningi fá frítt inn.
www.heimilisidnadur.is
1 kg svínakjöt2 laukar, fínsaxaðir4 hvítlauksgeirar, rifnir2 msk. rifið engifer1/4 bolli tamarind-mauk6 msk. olía
4 msk. kókosmjólk300 ml vatn
SVART SVÍNAKARRÍFYRIR 4-5
Draumur að veruleikaRenuka Perera kom frá Srí Lanka fyrir þrettán árum og hefur síðan matreitt rétti heimalands síns ofan í
Íslendinga. Nú hefur hún gefið út matreiðslubók svo fleiri hafi tækifæri til að prófa réttina hennar.
Renuka Perera gefur Fréttablaðinu upp-skriftir að framandi réttum frá Srí Lanka.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/VILH
ELM
ng
b
ro
t
Nýr A la Carte
REYKT ÖNDmeð blönduðu salati, valhnetum og fíkjublönduVið mælum með Pinot Gris, Pully Fumé eða Pouilly Fuisse með þessum rétti.
4ra rétta tilboðsseðill
Verð aðeins 6.890 kr.með 4 glösum af sérvöldum vínum aðeins 10.490 kr.
Gjafabréf PerlunnarGóð tækifærisgjöf!
VEÐRIÐ Í DAG
Elsti grunnskóli
bæjarins
Flataskóli í Garðabæ
á 50 ára afmæli á
morgun.
TÍMAMÓT 18
RENUKA PERERA
Eldar svart svínakarrí
frá Srí Lanka
• matur
Í MIÐJU BLAÐSINS
FJALLGÖNGUMENN FRAMTÍÐARINNAR Leikskólabörn úr Laugaborg og Garðaborg nánast hlupu í gær upp Esjuhlíðar undir styrkri
stjórn fulltrúa Ferðafélags Íslands. Fjallgangan var þáttur í undirbúningi stofnunar Ferðafélags barnanna síðar í mánuðinum.
Ætlunin er að bjóða upp á sérstakar ferðir á forsendum barna og fjölskyldna. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Táknmynd
hrunsins
Hin fleygu orð
Gunnars Más lifa
lengi í minningunni.
FÓLK 34
Leikstýrir í fyrsta sinn
Jón Atli Jónasson frumsýnir
einleikinn Djúpið.
FÓLK 24
Brothættur hópur
Landsliðshópurinn í
handbolta er talsvert
breyttur og afar
brothættur.
ÍÞRÓTTIR 30
ÍSAK FREYR HELGASON
Kynhneigðin kom
snemma í ljós
Föstudagur
Í MIÐJU BLAÐSINS
ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ VERA ÖÐRUVÍSI
föstudagurFYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS 5. júní 2009
Ísak Freyr Helgason, 19 ára förðunarfræðingur á
erfiða æsku að baki Í dag e h
BJART EYSTRA Í dag verður
hæg breytileg átt. Bjartviðri á
Austurlandi, skýjað með köflum
norðaustan til annars skýjað og
hætt við lítilsháttar vætu. Hiti 8-16
stig hlýjast fyrir austan.
VEÐUR 4
16
12
9
13
14
10
EFNAHAGSMÁL Forsvarsmenn Seðlabanka Íslands
neita því að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hafi
ráðið nokkru um ákvörðun bankans sem tilkynnti
um lækkun stýrivaxta um eitt prósent í gær.
Við síðustu vaxtaákvörðun í maíbyrjun voru
vextir lækkaðir um 2,5 prósent og boðað að lækkun-
in yrði vegleg næst. Síðan þá hefur sendinefnd AGS
lýst því yfir að hún hafi verið mótfallin vaxtalækk-
un nú. Nú segja forsvarsmenn Seðlabankans að ekki
verði tekin stærri skref í lækkun stýrivaxta meðan
ekki liggur fyrir áætlun um tilhögun ríkisfjármála.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra segist
hafa orðið fyrir vonbrigðum með að lækkunin hafi
ekki verið meiri. Hún segir enn fremur að peninga-
stefnunefnd Seðlabankans hafi verið ljós margvís-
leg áform stjórnvalda í ríkisfjármálum og ekkert
hafi gefið tilefni til að ætla að ekki verði staðið við
þau.
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, segir að með þessari ákvörðun bank-
ans sé búið að kippa forsendunum fyrir launahækk-
unum í burtu og að viðræður um kjarasamninga
fari að óbreyttu aftur á byrjunarreit.
- óká, bþs, jse / sjá síðu 4 og 6
Seðlabankinn tilkynnti um eins prósents lækkun stýrivaxta í gær:
Ekki gert eftir forskrift AGS
SJÁVARÚTVEGUR Fyrningarleið í
sjávarútvegi verður ekki farin
ef sannast að hún hafi neikvæð
áhrif á byggðirnar í landinu.
Þetta kom fram í máli Atla Gísla-
sonar, þing-
manns Vinstri
grænna, á mál-
þingi í Vest-
mannaeyjum í
gær.
Elliði Vignis-
son, bæjar-
stjóri í Eyjum,
sagði að fella
þyrfti leiðina
út af stefnu-
skrá stjórnarflokkanna. Hug-
myndin ein, og umræða um hana,
væri tekin að skaða sjávarútvegs-
byggðirnar nú þegar.
Ólína Þorvarðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar,
minnti á af hverju fyrningar-
leið væri rædd yfirleitt; flótti úr
greininni með tilheyrandi skaða
fyrir byggðirnar í landinu, sem
væri öllum ljós. - shá / sjá síðu 10
Tekist á um fyrningu:
Fyrningarleið
háð breiðri sátt
EFNAHAGSMÁL Möguleg lausn á
Icesave-deilunni verður kynnt í
ríkisstjórn í dag. Samkvæmt heim-
ildum Fréttablaðsins verður tekin
afstaða til þess hvort sú leið sé fær
eða ekki. Það þarf þó ekki að þýða
að lausn finnist á deilunni því ef
íslensk stjórnvöld hafna þessari
leið eru samningar enn þá opnir.
Deila um Icesave-reikningana
hafa staðið lengi yfir. Upphaflega
átti að ljúka viðræðunum í síðasta
mánuði. Steingrímur J. Sigfússon
fjármálaráðherra segir þær hafa
tafist vegna ástandsins í Bretlandi.
Þar vísar fjármálaráðherra bæði
til vandræða Verkamannaflokks-
ins breska og versnandi efnahags-
ástands þar í landi, sem hefur ekki
liðkað fyrir viðræðunum.
Steingrímur segist enn bjart-
sýnn á að ásættanleg niðurstaða
náist og að hún verði betri en
fyrstu tölur gáfu til kynna. Fleiri
ráðherrar sem Fréttablaðið ræddi
við tóku í sama streng og sögðu
verstu mögulegu útkomu viðræðn-
anna alltaf vera betri niðurstöðu,
fyrir Íslendinga, en upphaflega
var ætlað.
Deilan um Icesave í Bretlandi
hefur snúist um hvert raunveru-
legt virði eigna Landsbankans
þar í landi sé og hvaða vaxtafyrir-
komulag eigi að vera á samning-
um. Þá eru einnig áhöld um hvernig
greiðslum skuli háttað.
Samninganefndir breskra og hol-
lenskra stjórnvalda eru staddar hér
á landi. Þær funduðu með íslensku
nefndinni fram á kvöld í gær.
Sáttatillagan verður einnig kynnt
í utanríkismálanefnd og þingflokk-
um stjórnarflokkanna í dag.
- bþs, kóp, kh
Áfangi í Icesave-deilu
kynntur í ríkisstjórn
Sendinefndir á vegum Breta og Hollendinga eru staddar hér á landi og fund-
uðu um lausn á Icesave-deilunni fram eftir kvöldi í gær. Ráðherrar bjartsýnir.
ELLIÐI VIGNISSON
MENNING Félag tónskálda og
textahöfunda (FTT) veitti Ósk-
ari Páli Sveinssyni og Þorvaldi
Bjarna Þorvaldssyni verðlaun
í gær en þeir hafa báðir átt lag
sem hreppt hefur annað sæti í
Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva; Óskar Páll fyrir lag
sitt „Is It True“ sem flutt var í
Moskvu í síðasta mánuði og Þor-
valdur Bjarni fyrir lagið „All
Out Of Luck“ sem var framlag
Íslands árið 1999 í Ísrael.
„Þetta eru verðskulduð silfur-
verðlaun,“ segir Jakob Frímann
Magnússon, formaður FTT.
„Þau jafnast kannski ekki á við
20 fálkaorður og 50 milljóna
króna silfursjóð en þau eru hug-
heil viðurkenning okkar félags
á frábærum árangri þessara
tveggja silfurdrengja íslenskrar
tónlistar.“ - jse
Tvö tónskáld verðlaunuð:
Silfurdrengir
tónlistarinnar