Fréttablaðið - 05.06.2009, Blaðsíða 6
6 5. júní 2009 FÖSTUDAGUR
STÝRIVAXTALÆKKUN SEÐLABANKANS
4
10
4
0
0
0
|
l
an
d
sb
an
ki
nn
.is
L AU S N I R F Y R I R H E I M I L I Ð
Er greiðslubyrðin
að þyngjast?
Pantaðu ráðgjöf á landsbankinn.is,
í útibúinu þínu eða í síma 410 4000
Landsbankinn býður upp á mörg úrræði fyrir heimili sem eiga við greiðsluerfiðleika
að etja. Við aðstoðum þig við að velja lausn sem kemur til móts við þínar þarfir.
„Það er alveg ljóst að þetta háir stýrivextir
eru alveg óviðráðanlegir bæði fyrir heimili og
fyrirtæki í landinu,“ segir Sigurður Jóhann-
esson, framkvæmdastjóri SAH afurða ehf. á
Blönduósi.
Hann segir fyrirtækið jafnvel vera háð-
ara vöxtum en mörg önnur. „Við erum í raun
að kaupa inn 90 prósent af okkar hráefni á
tveimur mánuðum og greiða það þá út. Til
þess þurfum við náttúrulega lánsfé á skikk-
anlegum kjörum til að þetta verði ekki allt of
dýrt. En sú varð raunin í fyrra. Það er jafn
ljóst að ef stýrivextir eru lágir þá er mun auð-
veldara fyrir okkur að halda fólki í vinnu og
reka þessi fyrirtæki með ásættanlegri niður-
stöðu fyrir alla aðila.“ Hann segir einnig að
stýrivextir hafi bein áhrif á matvöruverð.
„Það er alveg klárt, vextir eru einn af okkar
útgjaldaliðum og ef okkur tekst að draga úr
þeim kostnaði myndi það skila sér til neyt-
enda.“
Jafnan starfa um 40 manns hjá fyrirtæk-
inu nema þegar sláturtíðin stendur yfir í sept-
ember og október en þá bætast 60 manns við
starfsmannahópinn.
Fréttablaðið ræddi við framkvæmdastjóra
og stjórnarmenn fleiri fyrirtækja á lands-
byggðinni sem tóku í sama streng. Einn sagð-
ist ekki vilja tjá sig þar sem nóg væri komið
af svartnættistali. - jse
Framkvæmdastjóri SHA afurða ehf á Blönduósi segir háa stýrivextir hafa áhrif á sláturfélögin:
Háð því að lán fáist á sæmandi kjörum
„Ég hafði vonast eftir meiri lækk-
un og það olli mér vonbrigðum að
hún varð ekki meiri en þetta,“
segir Jóhanna Sigurðardóttir for-
sætisráðherra um ákvörðun pen-
ingastefnunefndar Seðlabankans
um lækkun stýrivaxta um eitt pró-
sentustig.
Jóhanna segir að nefndinni hafi
verið ljós margvísleg áform stjórn-
valda í ríkisfjármálum og ekkert
hafi gefið henni tilefni til að ætla
að ekki verði staðið við þau. Þá séu
lánasamningar við Norðurlöndin,
samningar um Icesave-málið og
endurreisn bankakerfisins í far-
vatninu.
Hún segist ekki líta svo á að
lítil vaxtalækkun – öfugt við það
sem vonast var eftir – sé áfellis-
dómur yfir verkum ríkisstjórn-
arinnar. Talsverð lækkun gengis
krónunnar að undanförnu og verð-
bólguþrýstingur vegna þessa séu
ástæður þessarar varfærnislegu
ákvörðunar. Í næstu viku verði
kynntar opinberlega þær efna-
hagsráðstafanir sem gripið verði
til á þessu ári og þær muni renna
styrkari stoðum undir gengið.
„Nefndin hefur sagt að stýri-
vaxtalækkun verði ekki gerð á
kostnað gengisins. Verðbólgu-
þrýstingur er alvarlegur fyrir
heimilin ekki síður en háir vext-
ir.“
Jóhanna kveðst sannfærð um
að þegar áðurtalin viðfangsefni
verði komin í höfn muni stýrivext-
ir lækka umtalsvert. Næsti form-
legi vaxtaákvörðunardagur er 2.
júlí en Jóhanna telur að peninga-
stefnunefndin geti allt eins séð
ástæðu til að ákvarða vaxtalækk-
un fyrir þann tíma. Hún hafi til
þess heimild.
Myndarleg vaxtalækkun var, að
mati aðila vinnumarkaðarins, ein
forsenda þess að stöðugleikasátt-
máli næðist millum þeirra, með
aðkomu stjórnvalda. Jóhanna seg-
ist vissulega hafa áhyggjur af því
að vaxtaákvörðunin hafi óheppileg
áhrif á viðræður þar um og kunni
jafnvel að hleypa þeim upp. „Þær
voru á góðu skriði og það hefði
mjög slæm áhrif á efnahags- og
atvinnulífið ef þeim yrði teflt í
tvísýnu. En þó að þessi ákvörðun
valdi vonbrigðum er ekkert sem
heitir að gefast upp. Það er ekki
valkostur. Allt miðar þetta í rétta
átt en það kann að breytast ef
menn fyllast vonleysi. Og til þess
eru engar ástæður því ég er von-
góð um að okkur takist það ætl-
unarverk okkar að stýra þessari
skútu þannig að við sjáum fram á
endurreisn efnahagslífsins.“
bjorn@frettabladid.is
Ekki tekið tillit til
áætlana stjórnvalda
Forsætisráðherra er vonsvikinn yfir lítilli stýrivaxtalækkun. Ákvörðunin kunni
að tefla viðræðum um stöðugleikasáttmála í tvísýnu. Ráðherra segir margt á
döfinni sem gefi tilefni til lækkunar fyrir næsta formlega vaxtaákvörðunardag.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR „En þó að þessi ákvörðun valdi vonbrigðum er ekkert
sem heitir að gefast upp. Það er ekki valkostur,“ segir forsætisráðherra og kveðst
bjartsýn á að stýrivextirnir verði lækkaðir umtalsvert í byrjun júlí og jafnvel fyrr.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Nefndin hefur sagt að
stýrivaxtahækkun verði
ekki gerð á kostnað gengisins.
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
FORSÆTISRÁÐHERRA
FRÁ SAH AFURÐUM Skrokkurinn yrði ódýrari ef stýri-
vextir væru lægri. Háir stýrivextir gera SAH afurðum
erfitt fyrir eins og fleiri fyrirtækjum.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
segist vonsvikinn að Seðlabank-
inn skuli ekki hafa komið inn í þá
umræðu hvernig ná mætti fyrir-
huguðum niðurskurði í ríkisbú-
skapnum en um leið tryggja stöð-
ugleika. „Seðlabanka hefði verið í
lófa lagið að koma að málinu með
fyrirbyggjandi hætti,“ segir Gylfi.
„Hann hefði þá getað teiknað ein-
hverja sýn inn í framtíðina að því
marki að vextir yrðu fimm pró-
sent og hvað þyrfti þá til að verja
það. Það gerði hann ekki og ástæð-
an er sú að hann er alltaf að verja
þá afstöðu að það sé nauðsynlegt
fyrir þetta hagkerfi að vera með
þetta háa vexti. Við höfum viljað
koma á fundum með bankanum
þar sem hægt væri að rökræða
þetta en við eigum bágt með að
skilja að bæði í ofþenslu og í mikl-
um samdrætti skuli háir vextir
ávallt vera meðalið.“ - jse
Forseti ASÍ:
Háir vextir
meðal við öllu
„Það er alveg ljóst að með þess-
ari vaxtaákvörðun erum við ekk-
ert að halda áfram að tala um
launahækk-
anir 1. júlí,“
segir Vilhjálm-
ur Egilsson,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
atvinnulífsins.
„Það er búið
að kippa í burtu
forsendunum
sem við vorum
að vinna út frá.
Við erum þess vegna stopp í því
sem við vorum að vinna í og allt
bendir til þess að við munum bara
opna samninginn og allt fari á reit
eitt.“
Hann segir að komi til þess verði
rætt um nýjan samning á nýjum
forsendum. Hann treysti sér ekki
til að segja hversu langt gæti liðið
áður en þær viðræður hæfust. - jse
Framkvæmdastjóri SA:
Allt á reit eitt
VILHJÁLMUR
EGILSSON
Ætlar þú á tónleika í sumar?
Já 21,8
Nei 78,2
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Er verið að gera of mikið mál úr
skuldavanda heimilanna?
Segðu skoðun þína á Vísi.is
KÍNA, AP Tugir þúsunda komu
saman í Viktoríugarðinum í Hong
Kong í gær til að minnast þess að
tuttugu ár eru liðin frá atburðun-
um á Torgi hins himneska friðar.
Þar drápu hermenn hundruð eða
þúsundir mótmælenda, sem höfðu
krafist lýðræðisumbóta í Kína.
Minningarathafnir voru haldn-
ar víða um heim en Hong Kong er
eina svæðið í Kína þar sem leyfi-
legt er að tala opinberlega um
atburðina og minnast þeirra. Á
torginu sjálfu hefur verið gríðar-
leg öryggisgæsla undanfarna
daga og erlendum blaðamönnum
hefur verið meinaður aðgangur
að því. - þeb
Athöfn í Hong Kong:
Hvatt til opin-
berrar umræðu
MINNINGARATHÖFN Gríðarlegur fjöldi
fólks var í Viktoríugarðinum í Hong Kong
til að minnast atburðanna. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Biskup á Barðaströnd
Biskup Íslands, herra Karl Sigurbjörns-
son, hóf í gær ellefu daga vísitasíuferð
um Vestfirði. Yfirreið biskups hófst í
Reykhólaprestakalli. Hann mun funda
með prestum og sóknarnefndum,
skoða kirkjur og taka þátt í messum
og helgihaldi á hverjum stað, að því
er segir á heimasíðu Reykhólahrepps.
ÞJÓÐKIRKJAN
%
KJÖRKASSINN