Fréttablaðið - 15.07.2009, Side 6
6 15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
fyrir alla sem
www.gottimatinn.is
gerður fyrir mat!
– 5x5x5 cm kubbur af rjómaosti gjörbreytir sósunni.
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
9
-1
0
9
7
Fitsroy 60+10
23.995
26.995 27.995
Vango og Mammut
6.995
8.995
38.995
20% afsláttur af
Mountain hardwear
fatnaði
- 20%
Margar gerðir af
göngubuxum
Mammut
Mount trail xt gtx
gönguskórnir
okkar vinsælustu
skór
FJARSKIPTI Íbúar við Hörpugötu í Reykjavík eru ósátt-
ir við að ekki verði lagður ljósleiðari í hús í götunni
þrátt fyrir rask á vegum Reykjavíkurborgar og Orku-
veitunnar í götunni. Hverfið er ekki á áætlun ársins
segir framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.
„Við undrumst að gengið sé hálfa leið þegar hægt
er, og tækifæri til, að ganga alla leið,“ skrifar Bald-
vin Gunnar Árnason, íbúi við Hörpugötu, í bréfi til
Gagnaveitunnar.
Reykjavíkurborg ákvað að endurnýja gangstéttir
við Hörpugötu, Góugötu og Þjórsárgötu og eins og
venjan er í slíkum tilvikum nota Orkuveita Reykja-
víkur og Gagnaveita Reykjavíkur tækifærið til að
leggja þær lagnir sem þarf, segir Birgir Rafn Þráins-
son, framkvæmdastjóri Gagnaveitunnar.
Hann segir að í þessu tilviki hafi verið lagður ljós-
leiðari undir gangstétt og að lóðarmörkum, en þar
sem Orkuveitan hafi ekki endurnýjað leiðslur heim að
húsum hafi Gagnaveitan ákveðið að tengja ljósleiðara
við húsin síðar.
Birgir segir að þar sem hverfið hafi ekki verið á
framkvæmdaáætlun Gagnaveitunnar í ár sé einfald-
lega ekki til fé til að leggja ljósleiðara að húsunum.
Óverulegur kostnaður sé við að fresta því, og ekki
þurfi að raska gangstéttum eða götunni aftur þegar
það verði gert. - bj
Íbúar ósáttir við að rask í götunni sé ekki nýtt til að koma ljósleiðara í hús:
Bíða eftir heimtengingum
RASK Reykjavíkurborg ákvað að endurnýja gangstéttir við
nokkrar götur í Skerjafirðinum í sumar, og nota veitufyrirtæki
tækifærið til að koma lögnum í jörð. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ATVINNA Allir starfsmenn SPRON
á uppsagnarfresti fengu launin sín
greidd í gær en slitastjórn SPRON
hafði lofað því að það yrði gert.
„Mér finnst gott að þingmenn
sýndu þann vilja að breyta þessu,“
segir Ósvaldur Knudsen, talsmað-
ur fyrrum starfsmanna SPRON,
sem segist jafnframt feginn að
þessu sé lokið.
Mikill styr hefur staðið um
launagreiðslur til starfsmanna
SPRON en sett voru lög á mánu-
dag þar sem slitastjórninni var
veitt heimild til að greiða út laun-
in. Slitastjórninni hafði ekki talið
sér heimilt að greiða út launin.
- vsp
Slitastjórn borgaði laun í gær:
Feginn að
þessu sé lokið
UTANRÍKISMÁL Árni Þór Sigurðsson,
formaður utanríkismálanefndar,
segir lögfræðinga Seðlabankans
hafa blekkt utanríkismálanefnd.
Minnisblað sem Sigríður Loga-
dóttir aðallögfræðingur og Sig-
urður Thoroddsen, lögfræðingur
á Alþjóða- og markaðssviði bank-
ans, lögðu fyrir utanríkismála-
nefnd Alþingis, var ekki umsögn
Seðlabankans. Þetta áréttaði Sig-
ríður í tölvubréfi á þriðjudags-
kvöld. Nefnd-
armenn stóðu í
þeirri meiningu
að um formlegt
álit bankans
væri að ræða.
Álitið er nei-
kvætt í garð
samninganna
og hafði vakið
nokkur v ið -
brögð. Í bréfinu
segir Sigríður: „Við lögfræðingar
SÍ viljum undirstrika að minnis-
blaðið til utanríkismálanefndar
er samantekt á því sem kom fram
á fundinum þar sem lögfræðingar
mættu sem gestir og ber ekki að
líta á sem umsögn Seðlabankans
sem slíka.“
Árni Þór Sigurðsson, formaður
nefndarinnar, segir að alltaf hafi
legið ljóst fyrir að verið væri að
leita eftir umsögn bankans, ekki
tveggja lögfræðinga. Aðrir nefnd-
armenn sem Fréttablaðið talaði við
tóku undir það.
Ekki náðist í Sigríði í gær, en í
svari frá Seðlabankanum segir að
minnisblaðið sé hluti af gögnum
sem notuð eru við gerð álits fyrir
fjárlaganefnd, en fulltrúar bank-
ans munu kynna það fyrir nefnd-
inni í dag. Minnisblaðið sé því
vinnugagn sem verði notað við
lokaútgáfu álitsins. Minnisblaðið
er ritað á bréfsefni Seðlabankans.
Árni Þór var harðorður í garð
Sigríðar og í viðtali við Ríkis-
útvarpið talaði hann um „einka-
flipp“ starfsmanna bankans.
„Fyrir mér virðist sem viðkom-
andi starfsmaður sé enn að vinna
fyrir Davíð Oddsson.“
Þessi ummæli vöktu hörð við-
brögð á Alþingi og Ólöf Nordal og
Ragnheiður Elín Árnadóttir, þing-
menn Sjálfstæðisflokksins, kröfð-
ust þess að Árni bæði starfsmenn-
ina afsökunar.
Svavar Gestsson, formaður
samninganefndarinnar um Ice-
save, segist vona að nefndin skoði
álit lögfræðinganna eins og önnur
álit. Það hafi þó allt aðra stöðu nú
þegar búið sé að upplýsa að það er
ekki álit Seðlabankans. Það breyti
því þó ekki að það verði að skoða
samviskusamlega, líkt og ótal
önnur álit og greinargerðir sem
hjálpi mönnum að komast að skyn-
samlegri niðurstöðu.
kolbeinn@frettabladid.is
Segir lögfræðinga
Seðlabankans blekkja
Formaður utanríkismálanefndar segir lögfræðinga Seðlabankans hafa blekkt
utanríkismálanefnd með því að gefa í skyn að persónulegt álit þeirra væri um-
sögn bankans. Minnisblaðið var á bréfsefni Seðlabankans en er vinnugagn.
ÁRNI ÞÓR
SIGURÐSSON
REYKJAVÍK Umhverfis- og samgöngu-
ráð Reykjavíkur ákvað í gær að
mæla með því við borgarráð að sam-
þykkja ekki skilyrði sem sett hafa
verið fram vegna endurfjármögnun-
ar Strætó bs.
„Skiljanlega hafa sveitarfélögin
áhyggjur af því að það sé endalaust
að fara peningur í Strætó og þar af
leiðandi settu þau fram ýmis skil-
yrði. Við viljum í raun endurfjár-
magna og að fyrirtækið haldi áfram
en okkur fannst skilyrðin of bind-
andi fyrir rekstur Strætó á næstu
árum. Til dæmis er varla hægt að
gera ráð fyrir því að áætlanir þessa
árs standist,“ segir Þorbjörg Helga
Vigfúsdóttir, formaður umhverfis-
og samgönguráðs. Hún kveður alla
fulltrúana í ráðinu sammála um
nauðsyn þess að endurfjármagna
Strætó en að skilyrði séu of ströng
og heftandi.
Samkvæmt tillögu Samtaka
sveitarfélaganna á höfuðborgar-
svæðinu á að setja samanlagt um
þrjá milljarða króna til að bæta
skuldastöðu Strætó. Hlutur Reykja-
víkurborgar nemur 1,4 milljörðum.
Þorbjörg Helga segir alla fulltrúana
í umhverfis- og samgönguráði sam-
mála um að áðurnefnd skilyrði séu
óaðgengileg. Hins vegar sé nauðsyn-
legt að endurfjármagna Strætó.
Ólafur F. Magnússon, sem lagði
fram sérstaka bókun á fundinum
í gær segist orðinn langþreyttur á
umræðu um að Strætó sé á hausn-
um. „Sum sveitarfélögin hafa verið
þung í taumi og virðast heldur vilja
bæta við þriðja einkabílnum hjá fjöl-
skyldum en að bæta þennan sam-
göngumáta,“ segir Ólafur. - gar
Vilja endurfjármögnun Strætó en telja fyrirtækinu settar ósveigjanlegar skorður:
Telja skilyrðin alltof bindandi
Hefur þú leitað í
Rauðakrosshúsið?
Já 3,8%
Nei 96,2%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Langar þig að skoða kjól
Jóhönnu Guðrúnar sem verður
til sýnis á Hringbraut 49 á
næstunni?
Segðu þína skoðun á vísir.is.
ÞORBJÖRG HELGA
VIGFÚSDÓTTIR
Skilyrði meðeig-
enda Reykja-
víkurborgar í
Strætó bs. eru
of bindandi
segir formaður
umhverfis- og
samgönguráðs.
Fyrir mér virðist sem
viðkomandi starfsmað-
ur sé enn að vinna fyrir Davíð
Oddsson.“
ÁRNI ÞÓR SIGURÐSSON
FORMAÐUR UTANRÍKISMÁLANEFNDAR
ALÞINGI Minnisblað sem utanríkismálanefnd Alþingis vissi ekki betur en að væri
formleg umsögn Seðlabankans reyndist aðeins vera álit aðallögfræðings og lögfræð-
ings á Alþjóða- og markaðssviði. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
KJÖRKASSINN