Fréttablaðið - 15.07.2009, Page 10
15. júlí 2009 MIÐVIKUDAGUR
Ísland er land þitt
Njóttu þess í góðum gönguskóm
HOLTAGÖRÐUM GLÆSIBÆ KRINGLUNNI SMÁRALIND SÍMI 545 1500
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
46
59
7
06
/0
9
Vakuum Men GTX
Toppskór fyrir þá sem gera kröfur.
Skór sem henta í lengri og krefjandi göngur.
Vatnsvarið Nubuk leður.
MFS sér til þess að skórnir passa.
GTX vatnsvörn. Vibram sóli. Þyngd: 800 g.
Verð: 49.990 kr.
Fáanlegir í dömuútfærslu.
Colorado Lady GTX
Vinsælir, vandaðir og liprir skór.
Meindl Multigriff sóli. GTX vatnsvörn.
Nubuk vatnsvarið leður.
Þyngd: 590 g.
Verð: 39.990 kr.
Einnig fáanlegir í herraútfærslu.
TNF Mens
Adversary Mid GTX
Léttir, liprir og snaggaralegir göngu- og ferðaskór.
Vatnsvarðir með GTX. Vibram sóli.
Þyngd: 470 g.
Verð: 25.990 kr.
Fáanlegir í dömuútfærslu (Minx Mid GTX)
Bílahreinsivörur
Þú sparar
3.746.-
TILBOÐ
2.990.-PAKKI 1Verð áður 6.736.-
SAMFÉLAGSMÁL Starfsmenn Reykja-
víkurborgar unnu í gær að því að
hreinsa upp rusl á lóð borgarinn-
ar við Hestavað í Norðlingaholti.
Fréttablaðið greindi frá því í gær
að börn hefðu slasað sig á lóðinni,
meðal annars lá drengur á spítala
með blóðeitrun eftir að hafa stig-
ið þar á nagla.
„Þetta er mikið gleðiefni,“
segir Katrín Garðarsdóttir, íbúi í
Kambavaði. Hún segir íbúana alla
ánægða með þróun mála. Að sögn
Jóhanns S. D. Christiansen, verk-
efnastjóra hjá Reykjavíkurborg,
gekk hreinsunin vel í gær og gert
er ráð fyrir því að farið verði
langleiðina með að klára hreins-
unina á svæðinu í dag. Þá verður
farið á fleiri svipaðar lóðir, bæði
í Norðlingaholti og Úlfarsárdal.
„Við erum líka að vinna í bygg-
ingalóðunum, erum að reyna að
minnka hættuástandið eftir bestu
getu,“ segir Jóhann, en bygginga-
lóðirnar sem um ræðir eru ekki
í eigu borgarinnar. Vegna slysa-
hættu og rusls ætlar borgin hins
vegar að senda erindi til lóðar-
hafa þar sem þeim er gert að
ganga vel frá eftir sig og skilja
við lóðir svo ekki sé hætta á slys-
um. Ef ekki verður brugðist við
því mun borgin hreinsa lóðirnar
á kostnað eigenda.
- þeb
Starfsmenn Reykjavíkurborgar vinna við hreinsun á lóðum í Norðlingaholti:
Hættulegar lóðir hreinsaðar
UNNIÐ AÐ HREINSUN Starfsmenn Reykjavíkurborgar unnu að því að hreinsa burt byggingarefni og rusl af svæðinu við Hestavað í
gær. Vonast er til að mesta ruslinu verði komið í burtu í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
BANDARÍKIN Olíufélagið Royal
Dutch Shell er stærsta fyrirtæki
heims, samkvæmt nýrri saman-
tekt viðskiptatímaritsins Fortune.
Tímaritið birtir árlega lista yfir
stærstu fyrirtæki heims.
Þetta bresk-hollenska fyrirtæki
skilaði 458 milljörðum dala í tekj-
ur, þar af 26 milljörðum í hagn-
að. Þetta samsvarar nærri 60.000
milljörðum króna í tekjur og 3.300
milljörðum í hagnað.
Flest stærstu fyrirtækin á list-
anum í ár eru olíufélög og orku-
fyrirtæki, en í þriðja sæti er þó
verslunarkeðjan Walmart og í sjö-
unda sæti er hugbúnaðarfyrirtæk-
ið Microsoft.
Í öðru sæti á listanum er olíu-
fyrirtækið Exxon Mobil, í fjórða
sæti er BP og í fimmta sæti Chevr-
on.
Bandarískum fyrirtækjum
hefur fækkað töluvert á listanum,
og tíðindi þykja að efsta fyrirtæk-
ið sé ekki bandarískt. Slíkt hefur
ekki gerst í tíu ár.
Walmart lendir hins vegar í
efsta sæti þegar fjöldi starfs-
manna er skoðaður. Verslunar-
keðjan er með 2.1 milljónir starfs-
manna. Á þennan mælikvarða
kemur Ríkisolíuverslun Kína með
1,6 milljónir starfsmanna.
Stærsta tap ársins kom hins
vegar í hlut bandaríska húsnæðis-
lánabankans Fannie Mae, sem
rann svo eftirminnilega á hausinn
í fyrra og glataði nærri 59 milljón-
um dala. - gb
Tímaritið Fortune fylgist með stærð fyrirtækja:
Orkufyrirtækin stærst í heimi
DÆLT Á TANKINN Shell er stærsta fyrir-
tæki heims. NORDICPHOTOS/AFP